Enn ein rannsóknin á brunanum í Scandinavian Star

Danskir þing­menn krefj­ast nú nýrrar rann­sóknar á brun­anum í far­þega- og bíla­ferj­unni Scandinavian Star árið 1990. Nýlega komu í ljós alvar­legar brotala­mir varð­andi rann­sókn elds­voð­ans sem kost­aði 159 manns­líf.

Scandinavian Star hér við bryggju í Lysekil í Svíþjóð. Þangað var skipið dregið brennandi
Scandinavian Star hér við bryggju í Lysekil í Svíþjóð. Þangað var skipið dregið brenn­andi Mynd: Wikimedia Commons

Bruninn í Scandinavian Star árið 1990 hefur iðu­lega verið nefndur stærsta morð­gáta á Norð­ur­löndum. Og ekki bara stærsta, heldur stærsta óleysta morð­gátan. Ætíð er talað um dauða þeirra 159 sem lét­ust af völdum brun­ans sem morð en full­víst er talið að elds­voð­inn í skip­inu hafi verið af manna­völdum.

Skipið var smíðað í Frakk­landi árið 1971, hét þá Massalia. Var í senn far­þega- og bíla­ferja, gat tekið tæp­lega 900 far­þega og allt að 250 bíla. Árið 1984 fékk skipið nýtt nafn, Scandinavian Star, þá var það í sigl­ingum á milli St. Pét­urs­borgar og Mexíkó. Í mars­mán­uði árið 1990 tóku nýir eig­endur við skip­inu, ætl­unin var að það myndi sigla milli Óslóar og Frederiks­havn á Norður-Jótlandi. Nýjum eig­endum lá mikið á að koma skip­inu í notkun en aug­lýst hafði verið að reglu­bundnar sigl­ingar milli Noregs og Dan­merkur hæfust 1. apríl, innan við mán­uði eftir eig­enda­skiptin. Tíminn var því naumur, nýju eig­end­urnir ákváðu að end­ur­nýja margt, einkum í far­þega­rýmum skips­ins, þar sem ýmis­legt var orðið „lúið“. Jafn­framt þurfti ýmsu að breyta, meðal ann­ars hafði verið spila­víti á einni hæð­inni. Það var því í mörg horn að líta og síðar kom í ljós að ýmis­legt hafði farið úrskeiðis í flýt­inum.

Óhappafleyta

Happafley er orð sem iðu­lega er notað um skip, sem aldrei lendir í óhöppum og ætíð skilar öllum heilum í höfn. Scandinavian Star var ekki í þeim hópi. Árið 1985 kvikn­aði eldur út frá djúp­steik­ing­ar­potti, eng­inn slas­að­ist en tals­vert tjón varð í eld­hús­inu. Í byrjun mars 1988 kvikn­aði eldur í vél­ar­rúmi skips­ins, orsökin talin sprungin vökva­leiðsla. Áhöfn­inni tókst að ráða nið­ur­lögum elds­ins, sem olli ekki miklu tjóni. Nokkrum dögum síðar, 15. mars 1988, varð aftur laus eldur í vél­ar­rúmi skips­ins sem þá var skammt undan ströndum Mexíkó. Um borð voru 439 far­þegar og 268 manna áhöfn. Öllum var bjargað frá borði, en eftir á sögðu far­þegar frá því að áhöfnin hefði ekki kunnað til verka og tungu­mála­erf­ið­leikar hefðu valdið mis­skiln­ingi. Fjórði brun­inn um borð í þessu óhappafleyi fékk ekki jafn far­sælan endi.

Áhöfnin kunni lítt til verka

Eins og áður var nefnt komst Scandinavian Star í hendur nýrra eig­enda í mars 1990. Þá hafði verið ákveðið að ferjan myndi sigla milli Óslóar og Frederiks­havn. Áhöfnin, sem var nán­ast öll ný, fékk ein­ungis nokkra daga til und­ir­bún­ings en venju­lega tekur átta til tíu vikur að þjálfa nýja áhöfn. Kenna áhöfn­inni á skipið, ekki síst varð­andi öryggi. Hver á að gera hvað ef skyndi­lega þarf að yfir­gefa skipið, hvar eru björg­un­ar­bátar stað­settir, hvar eru eld­varn­ar­dyr sem á að loka, ef svo ber undir? Þessu og ótal­mörgu öðru þarf áhöfnin að kunna skil á. Og til þess eru örfáir dagar ekki nægj­an­legir, eins og glögg­lega kom í ljós aðfara­nótt 7. apríl 1990.

Fjórir brunar, 159 mannslíf

Scandinavian Star lagði úr höfn í Ósló föstu­dags­kvöldið 6. apríl 1990. Stór hluti far­þeg­anna var fjöl­skyldu­fólk á leið í páska­frí, og höfðu litlar áhyggjur þótt brott­för seink­aði um tvær klukku­stundir. Um mið­nætti höfðu flestir far­þegar tekið á sig náðir.

Skömmu fyrir klukkan tvö um nótt­ina sáu far­þegar að á fjórða þil­fari log­aði í teppum og sæng­ur­fatn­aði. Fljót­lega tókst að slökkva þann eld sem greini­lega var, að sögn vitna, af manna­völdum.

[adspot]

Átta mín­útum eftir að fyrsti eld­ur­inn upp­götv­að­ist varð elds vart á far­þega­gangi á öðru þil­fari, þessi eldur var síðar kall­aður eldur númer tvö. Þar var verið að stand­setja far­þega­klef­ana og því engir far­þegar á þeim gangi. Eldurinn breidd­ist mjög hratt út og ban­eitr­aður reykur og gufur áttu greiða leið um ganga þar sem eld­varn­ar­dyr stóðu allar opnar. Í skýrslu vegna brun­ans var full­yrt að á fyrsta hálf­tím­anum eftir að eld­ur­inn (númer tvö) kvikn­aði hefðu 158 manns lát­ist, einn til við­bótar lést síðar á sjúkra­húsi. Síðar kvikn­uðu tveir eldar til við­bótar, sá fjórði eftir að skipið hafði verið dregið til hafnar í Lysekil í Svíþjóð.[links]

Í pistli sem birt­ist hér í Kjarn­anum í febr­úar 2016 undir heit­inu „Tekst loks að upp­lýsa stærstu morð­gátu á Norð­ur­löndum“ má lesa ítar­lega frá­sögn af brun­anum og eft­ir­málum hans. Í þeim pistli var greint frá því að rann­sókn, ein margra sem fram hafa farið, hefði verið fyr­ir­skipuð. Rann­sókn­ar­nefnd­inni, sem var á vegum norsku lög­regl­unnar, var ætlað að kom­ast að því hver bæri ábyrgð á elds­voð­anum og hver hefði kveikt í. Þeirri rann­sókn lauk árið 2017 og er skemmst frá því að segja að líkt og í fyrri rann­sóknum var nið­ur­staðan að ekki hefði tek­ist að upp­lýsa málið. Norska lög­reglan lagði þetta mál á hill­una, flokkað sem óupp­lýst. En mál­inu var ekki lokið þar með og í apríl á síð­asta ári sam­þykkti danska þingið að hvað Danmörk varð­aði myndi Scandinavian Star málið ekki fyrn­ast og ef nýjar upp­lýs­ingar kæmu fram yrði lagt mat á mik­il­vægi þeirra, eins og ráð­herra komst að orði. Í bréfi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til dóms­mála­nefndar þings­ins, Fol­ket­inget, sagði að lög­reglan hefði rann­sakað hvort Scandinavian Star hefði verið tryggt fyrir um það bil tvö­falt raun­virði skips­ins. Í bréfi ráðu­neyt­is­ins kom fram að ekki væri hægt að sýna fram á að skipið hefði verið oftryggt (over­forsikret), en því hafði reyndar margoft verið haldið fram.

Fyrrverandi lögregluþjónar segja frá

Í byrjun þessa mán­aðar birti danska dag­blaðið Politi­ken frá­sögn tveggja fyrr­ver­andi yfir­manna í dönsku lög­regl­unni, þeir eru nú komnir á eft­ir­laun. Ummæli þeirra vöktu mikla athygli en þau stang­ast á við full­yrð­ingar dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem getið var um hér að framan.

Rétt er að nefna að eftir brun­ann í Scandinavian Star árið 1990 ákváðu norsk, sænsk og dönsk yfir­völd að skipta með sér rann­sókn­inni á brun­anum. Norðmenn skildu rann­saka upp­tök og orsakir, Svíar myndu ann­ast rann­sókn­ina á skip­inu sjálfu og Danir öryggi­mál um borð í skip­inu og enn­fremur trygg­inga­mál þess og eig­enda­sögu.

Í frá­sögn lög­reglu­þjón­anna fyrr­ver­andi kom fram að danska lög­reglan hefði ekki lagt áherslu á, og ekki gert neitt, varð­andi rann­sókn eig­enda- og trygg­inga­mál­anna, það hefði að mati þeirra dönsku verið á könnu Norð­manna. Það var þessi frá­sögn sem vakti mikla athygli danskra þing­manna. Peter Skaarup, tals­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins í dóms­málum, sagð­ist hafa hrokkið við þegar hann las frá­sögn lög­reglu­þjón­anna ,,það að ráðu­neytið sendi frá sér rangar upp­lýs­ingar í jafn mik­il­vægu máli nær engri átt, og við þing­menn krefj­umst þess að fá botn í málið“. Og nú er Scandinavian Star komið til kasta danska þings­ins.

[adspot]

Eftir þrjá daga (21.10) fer fram opin umræða (hør­ing) í danska þing­inu. Þar mætir fjöldi fólks og svarar spurn­ingum þing­manna, varð­andi Scandinavian Star og athygl­inni beint að trygg­inga­málum skips­ins. Síðar verður málið rætt í fyr­ir­spurna­tíma þings­ins. Þar á rík­is­stjórnin að upp­lýsa þing­heim um stöðu máls­ins og hvað stjórnin hygg­ist gera til að fá botn í hvað snúi upp og niður í trygg­inga­málum Scandinavian Star þegar brun­inn varð. Hvort um trygg­inga­svik hafi verið að ræða og hvort brun­inn hafi bein­línis verið skipu­lagður í gróða­skyni. Í umfjöllun Politi­ken síð­ustu daga hafa þing­menn sagt aug­ljóst að framundan sé enn ein rann­sóknin vegna Scandinavian Star. Danskur þing­maður sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði, í við­tali við danska útvarpið, DR, þá stað­reynd að trygg­inga­upp­hæð skips­ins hefði verið hækkuð um 100 pró­sent nokkrum dögum fyrir brun­ann, og þannig langt yfir raun­virði veki óneit­an­lega grun­semdir.

Flókin eigendasaga

Viku fyrir brun­ann urðu eig­enda­skipti á Scandinavian Star. Þá keypti banda­rísk útgerð skipið. Sama dag var Daninn Niels- Erik Lund skráður eig­andi og annar Dani, Henrik Johansen, var síðan skráður eig­andi skips­ins nokkrum dögum síðar. Danskir dóm­arar töldu að Henrik Johansen hefði í raun átt skipið þegar brun­inn varð. Eftir rétt­ar­höld í Kaup­manna­höfn árið 1993 hlaut hann sex mán­aða dóm, vegna ófull­nægj­andi bruna­varna um borð í skip­inu. Norskur dóm­stóll komst hins­vegar að því, árið 2011 að eig­and­inn, þegar skipið brann, hefði verið Niels-Erik Lund.

Eins og nefnt var hér að framan er næsta víst að innan tíðar hefst enn ein rann­sóknin á brun­anum um borð í Scandinavian Star í apríl 1990. Hver nið­ur­staða þeirrar rann­sóknar verður leiðir tím­inn í ljós.

Við þetta má svo bæta að Scandinavian Star var end­ur­byggt eftir brun­ann en var selt í brota­járn árið 2004.

Að lokum má geta þess að um Scandinavian Star, og brun­ann hafa verið skrif­aðar að minnsta kosti tíu bækur og enn­fremur hafa verið gerðir margir sjón­varps- og útvarps­þættir um þessa óhappafleytu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár