Tekst loks að upplýsa stærstu morðgátu á Norðurlöndum

Danskur skipa­eft­ir­lits­maður hefur nafn­greint tvo menn sem hann full­yrðir að hafi kveikt í far­þega-og bíl­ferj­unni Scandinavian Star fyrir tæpum 26 árum með þeim afleið­ingum að 159 lét­ust. Margir telja að til­gang­ur­inn hafi verið trygg­inga­svik en eldar kvikn­uðu á mörgum stöðum. Norsk rann­sókn­ar­nefnd komst á sínum tíma að þeirri nið­ur­stöðu að danskur flutn­inga­bíl­stjóri hefði átt sök á brun­anum en dró þá nið­ur­stöðu til baka í hitteð­fyrra. Bíl­stjór­inn var meðal þeirra sem lét­ust. Nú eru að minnsta kosti tvær rann­sóknir vegna brun­ans í gangi.

Áhöfnin ný og óreynd

Að kvöldi föstu­dags­ins 6. apríl 1990 lét Scandinavian Star úr höfn í Ósló áleiðis til Frederiks­havn á Jótlandi. Brottför seink­aði um rúmar tvær klukku­stundir. Um borð voru 383 far­þegar og 99 manna áhöfn, einnig tugir flutn­inga-og fólks­bíla. Ástæða þess að brott­för dróst var að áhöfnin var ný og ókunnug skip­inu sem hafði ein­ungis farið örfáar ferðir milli Noregs og Dan­merkur. Margir far­þeg­anna fengu lykla sem pössuðu ekki að klef­unum og fleira varð til að seinka för skips­ins. Scandinavian Star hafði nýlega verið breytt í far­þega­ferju en skipið hafði áður hýst spila­víti. Stór hluti far­þeg­anna var fjöl­skyldu­fólk á leið í páska­frí og margir létu sér þessa seinkun í léttu rúmi liggja. Flestir gengu til náða um mið­nætti.

Fyrsti bruni 7. apríl kl. 01.55

Farþegar sem voru á stjái á fjórða þil­fari sáu að utan við far­þega­klefa 416 log­aði í sæng­ur­fatn­aði og teppum. Fólkinu tókst að slökkva eld­inn í þann mund sem nokkrir úr áhöfn­inni komu aðvíf­andi. Greini­legt var að eld­ur­inn var af mann­völdum en skip­stjór­inn gerði engar sér­stakar ráð­staf­anir, til dæmis að hafa vakt­menn á göngum og þil­förum.

Annar bruni 7. apríl kl.02.08 - aðalbruninn

Ekki voru liðnar tíu mín­útur frá því að fyrsti eld­ur­inn upp­götv­að­ist þangað til vart varð við eld á far­þega­gangi stjórn­borðs­megin á öðru þil­fari. Engir far­þegar voru á þessum gangi vegna þess að verið var að stand­setja klef­ana. Síðar kom í ljós að þarna hafði kviknað í pappír, rúm­fötum og teppum. Eldurinn breidd­ist mjög hratt út og hit­inn náði víða 200 gráðum. Vegg-og loft­klæðn­ingar, sem voru úr mjög eld­fimum efnum fuðr­uðu upp og eit­ur­gufur og ban­eitr­aður reykur áttu greiða leið um ganga þar sem flestir far­þeg­anna voru í fasta svefni en eld­varn­ar­dyr stóðu allar opnar. Einnig höfðu dyr við bíla­þil­far skips­ins verið opn­aðar og súr­efnið sem þar barst inn magn­aði eld­inn. Sér­stakur kubbur eða klossi hélt dyr­unum opnum, ein­ungis áhöfnin átti að vita hvar þessi klossi væri geymdur. Við rann­sókn kom í ljós að reyk­ur­inn var svo eitr­aður að fólk missti með­vit­und á 30 sek­úndum og lifði í mesta lagi 3 mín­útur. Í skýrslu yfir­valda var full­yrt að 158 hefðu lát­ist á fyrsta hálf­tím­anum eftir að eld­ur­inn braust út, einn til við­bótar lést síðar á sjúkra­húsi. Lang flestir úr reyk­eitun. Það var því ekki að ástæðu­lausu að þessi elds­voði var síðar kall­aður aðal­brun­inn. Elsti far­þeg­inn sem lést var 79 ára, sá yngsti nokk­urra mán­aða, 136 þeirra sem lét­ust voru Norðmenn. Klukkan 04.20 höfðu allir sem lifðu af yfir­gefið skipið. Farþegar og áhöfn.

Slökkviliðið kemur

Skömmu eftir að áhöfnin og far­þeg­arnir sem lifðu af yfir­gáfu skipið kom sænskt slökkvi­lið um borð í skipið. Fyrsta verk þess var að kanna hvort ein­hverjir væru á lífi um borð. Fljót­lega fund­ust tveir Portú­galar sem sögð­ust hafa verið sof­andi og ekki vaknað fyrr en allir voru farnir frá borði. Þegar þetta var log­aði enn á mörgum stöðum í skip­inu. Þegar sænska slökkvi­liðið, og norskt slökkvi­lið sem þá var komið til aðstoðar, hafði barist við eld­inn drjúga stund tók skipið að halla, ástæða þess var að mikið vatn safn­að­ist fyrir á efstu þil­förum þess.

Skipstjórinn og vélstjórinn aftur um borð

Flestir yfir­menn Scandinavian Star höfðu ásamt áhöfn skips­ins verið fluttir yfir í skipið Stena Saga. Nú gerð­ist það að skip­stjór­inn, yfir­vél­stjór­inn, vél­stjór­inn og raf­virk­inn voru fluttir, með þyrlu, til baka á hið brenn­andi skip. Raf­virk­inn taldi að þeir gætu aðstoðað við slökkvi­starfið og veitt ráð­legg­ingar. Þegar þre­menn­ing­arnir voru komnir til baka um borð í Scandinavian Star upp­hófust deilur. Yfir­vél­stjór­inn full­yrti að ef dæla ætti vatn­inu sem safn­ast hafði fyrir á efstu þil­förum Scandinavian Star burt yrði að stöðva slökkvi­dæl­urnar. Það var gert en þá bloss­aði eld­ur­inn upp aftur. Seinna komst slökkvi­liðs­stjór­inn, Ingvar Brynfors, að því að full­yrð­ing yfir­vél­stjór­ans stóðst ekki, dæl­urnar sem dældu burt vatn­inu af þil­för­unum og slökkvi­dæl­urnar gátu sam­tímis verið í gangi. Hann sagði jafn­framt frá því að að yfir­vél­stjór­inn og vél­stjór­inn hefðu um þetta leyti horfið „gufað upp“. Raf­virk­inn áður­nefndi hélt því fram að dyrnar á göngum skips­ins yrðu að vera lok­aðar en slökkvi­liðs­menn hefðu opnað þær og sett þar sér­stakan hurða­stopp­ara (fleyg) til að hurð­irnar myndu ekki hindra rennslið í vatns­slöng­unum.

Þriðji eldurinn

Um hádeg­is­bil á laug­ar­deg­inum taldi slökkvi­liðið að tek­ist hefði að ráða nið­ur­lögum elds­ins og drátt­ar­skip sem höfðu tekið Scandinavian Star í tog stefndu til lands. Slökkvi­liðs­menn voru enn um borð í skip­inu en ein­ungis þrír eða fjórir úr áhöfn­inni. Um þrjúleytið gaus upp eldur á einum far­þega­gang­inum, rúmum hálfum sól­ar­hring eftir að fyrsti brun­inn varð. Hitinn var að sögn slökkvi­liðs­manna gíf­ur­legur enda brann allt sem brunnið gat á gang­inum og í klef­unum þar sem lík þeirra sem lét­ust af völdum reyk­eitr­unar í aðal­brun­anum lágu. Ingvar Brynfors slökkvi­liðs­stjóri sagði síðar að eng­inn hefði skilið hvernig þessi eldur kvikn­aði og að hann og sínir menn væru hand­vissir um að þetta væri enn ein íkveikjan.

Fjórði eldurinn

Um klukkan hálf tíu á laug­ar­dags­kvöld­inu, 7. apríl var Scandinavian Star komið að bryggju í sænska smá­bænum Lyseki. Ingvar Brynfors hélt ásamt liði sínu frá borði eftir að hafa farið um allt skipið og full­vissað sig um að hvergi leynd­ist glóð. En ekki var þó allt búið enn; um klukkan hálf fjögur um nótt­ina gaus upp mik­ill eldur. Hann kvikn­aði í eða við veit­inga­stað undir brú skips­ins og breidd­ist hratt út til áhafn­ar­klef­anna sem voru á gangi við veit­inga­stað­inn. Slökkvi­lið barð­ist við þennan eld klukku­stundum saman og það var ekki fyrr en undir hádegi á sunnu­deg­inum 8. apríl að tek­ist hafði að ráða nið­ur­lögum hans.

Rannsóknin

Fljót­lega eftir að tek­ist hafði að slökkva eld­inn á sunn­dags­morgn­inum kom Flemming Thue Jensen skipa­eft­ir­lits­maður um borð í ferj­una til að rann­saka verksum­merki. Hann sá strax margt sem vakti grun­semdir. Það fyrsta sem hann rak augun í var að rúm­botnar úr járni höfðu verið lagðir í eld­varna­dyrnar, þær lok­uð­ust því ekki þegar skip­stjór­inn ætl­aði að loka þeim með þartil­gerðum bún­aði, úr brúnni. Trekk­ur­inn magn­aði eld­inn og ólok­aðar dyrnar opn­uðu eld­inum leið um skipið. Flemming Thue sá líka kloss­ann sem settur hafði verið við hurð­ina til að hún gæti ekki lok­ast og hann vissi hvar þessi klossi var geymdur og jafn­framt að ein­ungis áhöfnin vissi um þann geymslu­stað.

„Mér varð semsé strax ljóst að elds­voð­arnir í ferj­unni væru af manna­völdum.“ Þegar skipa­eft­ir­lits­mað­ur­inn fór upp næsta þil­far, þar sem þriðji brun­inn varð sá hann að rör sem flytur vökva fyrir lyftu­búnað í skip­inu var í sundur. Undir þeim stað voru rúm­botnar úr járni (dýn­urnar sjálfar höfðu brunnið) sem eft­ir­lits­mann­inn grun­aði að hefðu verið not­aðar til kom­ast að rör­inu. Síðar fund­ust leifar af olíu, sem Flemming Thue Jensen telur að hafi verið dælt í gegnum áður­nefnt rör til að magna eld­inn. Allt sem honum þótti athuga­vert skráði hann í litla bók sem hann hafði í vas­anum.

Þegar Flemming Thue skipa­eft­ir­lits­maður átt­aði sig á því þegar þriðji eld­ur­inn kvikn­aði voru ein­ungis þrír eða fjórir úr áhöfn skips­ins um borð lagði hann saman tvo og tvo: brennu­varg­ur­inn hlyti að vera einn þess­ara manna. Á þeim tíma vissi hann ekki að skömmu eftir að Scandinavian Star lagð­ist að bryggj­unni í Lysekil sá fólk nokkra menn fara í mik­illi skynd­ingu frá borði og hraða sér á brott. Enginn veit enn þann dag í dag með fullri vissu hvaða menn voru þarna á ferð en margt bendir til að það hafi verið áður­nefndir skip­verjar.

Greindi lögreglu frá grunsemdum

Þann 10. apríl hafði Flemming Thue Jensen lokið rann­sókn sinni og ætl­aði að greina yfir­manni sænsku rann­sókn­ar­lög­regl­unnar í Lysekil frá nið­ur­stöðum sínum. Yfir­mað­ur­inn var ekki á staðnum en Flemming Thue Jensen sagði norskum lög­reglu­manni stutt­lega frá nið­ur­stöðum sínum. Nefndi sér­stak­lega fleyg­inn sem settur hafði verið við hurð­ina og vökva­rörið. „Mitt verk var að skýra frá stað­reyndum, ekki að álykta.“

Hvort norski lög­reglu­mað­ur­inn kom frá­sögn­inni á fram­færi við yfir­mann­inn veit Flemming Thue ekki.

Sjórétturinn

Þegar Flemming Thue Jensen kom til Kaup­manna­hafnar að kvöldi 10. apríl 1990 hitti hann yfir­menn sína hjá Sigl­inga­mála­stofn­un­inni. Þar var honum sagt að þegar hann kæmi fyrir Sjó­rétt­inn ætti hann að tak­marka frá­sögn sína við aðal­brun­ann (bruna 2) sem varð 159 manns að bana.

Daginn eftir, í Sjó­rétt­inum, nefndi hann þó að það væru fleiri atriði sem vert væri að skoða en til­greindi það ekki nánar. Hann nefndi líka síðar þetta með rörið og hurða­kloss­ann við norska rann­sókn­ar­menn „en þeir höfðu ekki áhuga fyrir að hlusta á mínar skýr­ingar“.

Norska lög­reglan yfir­heyrði Flemming Thue Jensen aldrei en það kom í hennar hlut að upp­lýsa málið.

Danski bílstjórinn

Í mars 1991 til­kynnti norska lög­reglan að rann­sókn máls­ins væri lokið. Danskur vöru­bíl­stjóri, Erik Mörk Andersen, hefði verið valdur að aðal­brun­anum en bíl­stjór­inn var meðal þeirra 159 sem lét­ust. Norska lög­reglan komst líka að þeirri nið­ur­stöðu að síð­ari brun­arnir hefðu verið afleið­ing aðal­brun­ans.

„Ég gapti af undrun þegar ég heyrði og sá yfir­mann norsku lög­regl­unnar segja frá þessu í sjón­varpi“ sagði Flemming Thue Jensen síðar. Hann ákvað að tala ekki um málið framar og minnt­ist ekki á það við nokkurn mann árum saman.

Ættingjar mjög ósáttir

Ætt­ingjar margra þeirra sem lét­ust um borð í Scandinavian Star hafa aldrei sætt sig við nið­ur­stöður norsku lög­regl­unnar. Þeir stofn­uðu fyrir þremur árum sam­tök með það fyrir augum að fá málið tekið upp aftur og það tókst á end­anum. Árið 2014 til­kynnti norska lög­reglan að hún hefði ekki sann­anir fyrir því að danski bíl­stjór­inn Erik Mörk Andersen hefði átt sök á brun­anum.

Ákvað að segja frá vitneskju sinni

Flemming Thue Jensen sat í stof­unni heima hjá sér í Frederiks­havn og horfði, einsog iðu­lega, á sjón­varps­frétt­irnar. ”Ég hróp­aði upp að þeir væru hálf­vitar og var nærri dott­inn af stólnum”. Þannig lýsir Flemming Thue Jensen við­brögðum sínum þegar hann heyrði yfir­mann norsku lög­regl­unnar segja frá því að hún hefði engar sann­anir gegn danska bíl­stjór­anum. Jafn­framt til­kynnti norska lög­reglan að ný rann­sókn yrði sett í gang. Nið­ur­stöður hennar eiga að liggja fyrir síð­sum­ars.

Þegar þetta lá fyrir ákvað Flemming Thue Jensen að segja frá því sem hann vissi. Hann taldi sig þó ekki geta það fyrr en hann yrði kom­inn á eft­ir­laun, nokkrir mán­uðir eru nú síðan það varð. Hann hefur þegar hitt norska rann­sókn­ar­nefnd og nafn­greint tvo menn sem hann kveðst full­viss um að beri ábyrgð á því sem gerð­ist um borð í ferj­unni.

Margir hafa gagn­rýnt Flemming Thue Jensen fyrir að hafa ekki rætt um vit­neskju sína fyrr en nú. Hann svarar því til að það hafi hann vissu­lega gert en þá hafi menn ekki viljað hlusta. Sem emb­ætt­is­maður hafi hann ekki getað talað um þetta umfram það sem hann gerði strax í upp­hafi. Nú, þegar hann væri hættur og málið tekið upp aftur, gæti hann hins­vegar sagt frá öllu sem hann vissi. Nöfnum mann­anna sem hann telur ábyrga hefur hann þó ein­ungis greint rann­sókn­ar­nefnd­inni frá. Frásögn hans, fyrir nokkrum dögum, rataði sam­stundis í nær alla nor­ræna fjöl­miðla og hefur vakið mikla athygli.

Tryggingasvik?

Strax eftir brun­ann í apríl 1990 heyrð­ust raddir um að brun­inn hefði verið ”pöntuð aðgerð”, til að fá trygg­inga­bætur. Á sínum tíma fékkst eng­inn botn í þessar til­gátur en hugs­an­leg trygg­inga­svik eru meðal þess sem rann­sóknin nú bein­ist að.

Skipið Scandinavian Star var smíðað í Frakk­landi árið 1971, hét þá Massalia. Gat tekið tæp­lega 900 far­þega og allt að 250 bíla. Sigldi fyrstu árin milli Marseille, Malaga og Casablanca. Skipið var síðan um nokk­urra ára skeið í eigu Stena Cargo Line undir nöfn­unum Stena Baltica og Island Fiesta. Árið 1984 fékk skipið nafnið Scandinavian Star og sigldi þá á milli St. Pét­urs­borgar og Mexíkó. Nýir eig­endur tóku við skip­inu í mars 1990 og það hafði farið nokkrar ferðir milli Óslóar og Frederiks­havn þegar brun­inn varð. Eftir brun­ann var skipið end­ur­byggt, hóf sigl­ingar á ný 1994 en tekið úr notkun sjö árum síðar og selt í brota­járn árið 2004.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár