„Hver einasti dagur er þrunginn spurningum og svörum“

Heil­brigð­is­ráð­herra sagði á Alþingi í dag að stjórn­völd yrðu að svara ýmiss konar spuringum sem vakna vegna þeirrar skimunar sem framundan er jafn­óðum og verk­efn­inu vindur fram.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að verið væri að vinna að svörum við ýmiss konar spurn­ingum sem vaknað hefðu vegna skimunar ferða­manna og Íslend­inga sem koma til lands­ins eftir 15. júní. „Það er þannig að hver ein­asti dagur er þrung­inn spurn­ingum og svörum sem í raun og veru eru umhverfi þessa verk­efnis,“ sagði ráð­herr­ann.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvort það verk­efni að skima fyrir veirunni stæði og félli með því að hingað kæmu fáir ferða­menn. Hún benti á að afkasta­getan væri sögð vera 2.000 sýni á sól­ar­hring, sam­tals hjá Land­spít­ala og Íslenskri erfða­grein­ingu og spurði hún því ráð­herra: „Eru með­talin þau sýni sem koma með Norrænu, en það ágæta skip tekur 1.400 far­þega? Hvað með þá sem koma með flugi á Akureyri? Hvað með íslenska ferða­langa, geta þeir valið að fara frekar í ókeypis sýna­töku hjá Íslenskri erfða­grein­ingu heldur en að borga 15.000 krónur við landa­mærin? Geta ferða­menn jafn­vel líka gert það, að panta sér ókeypis sýna­töku hjá Íslenskri erfða­grein­ingu?

Nú, land­læknir benti rétti­lega á það á fund­inum fyrr í dag að við værum með veik­leika þegar kemur að ófull­nægj­andi hús­næði og ónógum fjölda heil­brigð­is­starfs­fólks. Telur ráð­herra það líka vera áhyggju­efni? Hvað með þær val­kvæðu aðgerðir sem hefur nú verið frestað mán­uðum saman? Verður þeim áfram slegið á frest vegna þessa verk­efnis?“ spyrði hún.

Að lokum spurði Helga Vala hvernig Svandís sæi fyrir sér að tekið yrði á áhöfnum flug­véla og far­þega­skipa, sem og ferða­fé­lögum í umræddum far­ar­tækjum ef ferða­maður greind­ist sýktur af COVID-19 sjúk­dómnum. „Fá allir þeir inn í sótt­varn­ar­húsi, sér að kostn­að­ar­lausu? Hver greiðir laun áhafn­ar­með­lima sem þurfa að fara í sótt­kví og ann­arra sem þurfa að fara í sótt­kví vegna þessa ferða­lags?“

Til skoðunar að Sjúkrahúsið á Akureyri komi að greiningu

Svandís svar­aði og sagði að verk­efnið mið­aði við það að grein­ing­ar­getan væri 2.000 sýni á sól­ar­hring. „Það þýðir heild­ar­um­fang sýna sem verði tekin og greind – þar með talin þau sýni sem koma í gegnum Norrænu eða önnur hlið inn í landið. Við hins vegar höfum verið með til skoð­unar að Sjúkra­húsið á Akureyri komi að grein­ingu að ein­hverju leyti. En það er algjör­lega ljóst að á meðan við erum að stíga fyrstu skrefin í þessu mjög svo flókna verk­efni að þar verðum við að svara þessum spurn­ingum jafn­óðum og verk­efn­inu vindur fram. Ekki síst er varðar utan­um­haldið í stóru mynd­inni.

Það verður líka að vera þannig áfram vegna þess að hátt­virtur þing­maður spyr sér­stak­lega um heil­brigð­is­kerfið að öðru leyti, og þá erum við að tala um mönnun og aðstöðu og slíkt, að við þurfum áfram að hafa burði til þess að taka sýni úr fólki með ein­kenni, ef það kemur til þess að fólk fái COVID-ein­kenni, að við séum með burði til þess að greina það fólks.

Ég vil líka greina frá því hér að við gerum ráð fyrir því að fjár­magna upp­bygg­ingu og tækja­væð­ingu veiru­fræði­deildar svo hún standi undir auk­inni grein­ing­ar­getu, en það hefur komið fram hjá úttekt almanna­varna að það sé sér­stakt áhyggju­efni að skortur á grein­ing­ar­getu veiru­fræði­deildar sé flösku­háls í sjálfu sér í almanna­varna­á­standi þegar um er að ræða far­aldur. Og við það verður nátt­úru­lega ekki unað og þetta snýst ekki bara um glímuna við COVID-19 heldur mögu­lega aðrar bylgjur í fram­tíð­inni þar sem við erum mögu­lega að glíma við aðra sjúk­dóma,“ sagði Svandís.

Má fólk fara upp í rútu sem bíður niðurstöðu?

Helga Vala kom aftur í pontu og ítrek­aði spurn­ing­una varð­andi sýna­tök­una, hvort ferða­menn og Íslend­ingar gætu pantað sér tíma hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og fengið þar ókeypis skimun í stað þess að borga þetta 15.000 króna gjald við landa­mærin. „Mig langar að spyrja út í ferða­tak­mark­anir á því fólki sem bíður nið­ur­stöðu, verða ein­hverjar ferða­tak­mark­anir í almenn­ings­sam­göngum eins og þekk­ist víða um Evrópu? Má fólk fara upp í rútu sem bíður nið­ur­stöðu? Hvernig sér hæst­virtur ráð­herra fyrir sér að rekja ferðir þeirra sem bíða nið­ur­stöðu eða ann­arra?“

Svandís svar­aði og sagði að mein­ingin væri sú að á meðan fólk biði eftir nið­ur­stöðu vegna sýna­töku þá væri gert ráð fyrir því að það hefði hægt um sig. „Það skrái sig inn á hót­el­her­bergi og bíði eftir því að nið­ur­staða úr sýna­töku ber­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár