Vaktaálagsauki hjúkrunarfræðinga hugsaður sem tímabundið átak

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að tíma­bundnu átaki um sér­stakt vakta­á­lag hjúkr­un­ar­fræð­inga á Land­spít­al­anum hafi lokið á óheppi­legum tíma – í miðjum far­aldri. Þó hafi verið ljóst frá upp­hafi að átak­inu myndi ljúka á þessum tíma.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að fram­kvæmd hefðu verið nokkur ólík tíma­bundið átök á Land­spít­al­anum til að bæta kjör hjúkr­un­ar­fræð­inga á spít­al­anum. Hann sagði að það hefði verið óheppi­legt að einu slíku hefði verið að ljúka núna þegar COVID-19 far­ald­ur­inn stendur yfir – því það komi út sem launa­lækkun.

Sóley Hall­dórs­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­al­anum, skrif­aði stöðu­upp­færslu á Facebook í gær sem vakið hefur mikla athygli. Þá greindi hún frá því að laun hennar hefðu lækkað um 41 þús­und krónur í gær þar sem vakta­á­lags­auki hefði verið tek­inn af hjúkr­un­ar­fræð­ingum um þessi mán­aða­mót.

„Ég var að koma heim úr frá­bæru og gef­andi vinn­unni minni á gjör­gæsl­unni í Fossvogi, starf­inu mínu sem ég elska! Vaktin var sér­lega strembin í dag, ég sinnti tveimur sjúk­lingum með covid19 í önd­un­ar­vél ásamt því að leið­beina frá­bærum bak­verði sem kom­inn er til að aðstoða á erf­iðum tímum. Ég var klædd í hlífð­ar­fatnað í 7,5 klst með til­heyr­andi óþæg­indum til að forð­ast smit. Á morgun ætla ég að vinna auka­lega morg­un­vakt og næt­ur­vakt vegna erf­iðra aðstæðna á deild­inni (eitt­hvað sem allir sem vinna þar gera við þessar aðstæður). Og hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru samn­ings­lausir ... og já og launin mín lækk­uðu um 41 þús­und krónur í dag. Það hlýtur ein­hver að segja bráðum við mig og sam­starfs­fólk mitt 1. apríl ... eða ekki,“ skrifar Sóley.

Segir samningaviðræður hafa skilað miklu

Bjarni sagði á Alþingi í dag að allan tím­ann hefði verið ljóst að um tíma­bundið átak væri að ræða „og verk­efnið núna er að búa þannig um kjara­samn­ings­gerð­ina að allir hjúkr­un­ar­fræð­ingar geti notið góðs af stöð­unni og fengið þegar uppi er staðið betri kjör.“

Fram kom í máli ráð­herr­ans að ríkið hefði verið í við­ræðum við hjúkr­un­ar­fræð­inga frá því áður en samn­ing­arnir urðu lausir. „Samn­ingslotan sem núna stendur yfir hefur skilað veru­lega miklu, sömu­leiðis sér­stakt átak sem hefur verið í gangi á und­an­förnum árum á Land­spít­al­anum. Þar hefur til dæmis verið unnið í þremur lotum inn á stofn­un­inni til að bæta starfs­um­hverfi hjúkr­un­ar­fræð­inga til að gera starfið meira aðlag­andi.“

Það væri að skila sér í því að í mið­lægum nýjum kjara­samn­ingum væri að verða grund­vall­ar­breyt­ing á vakta­fyr­ir­komu­lagi – ekki ein­ungis hjúkr­un­ar­fræð­inga heldur ann­arra stétta. „Og er komið í raun sam­komu­lag um þessa breyt­ingu sem var megin áherslu­at­riði hjúkr­un­ar­fræð­inga í þess­ari kjara­lotu á þeim tíma sem við erum núna að tala saman. Um þetta er komið sam­komu­lag sem mun leiða til þess að vakta­vinnu­fólk mun þurfa að vinna færri vinnu­stundir í hverri viku og vakta­fyr­ir­komu­lagið verður tekið upp til end­ur­skoð­unar,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár