Reykjanesbær kominn með fulla stjórn á fjármálum sínum á ný

Reykja­nes­bær hefur á síð­ustu árum farið í gegnum sárs­auka­fullar aðgerðir til að ná niður him­in­háu skulda­hlut­falli sínu, sem hafði mynd­ast eftir við­var­andi halla­rekstur. Nú er Reykja­nes­bær laus undan því að lúta eft­ir­liti með fjár­málum sínum.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar. Mynd: Hringbraut

Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar þarf ekki lengur að bera ákvarð­anir um fjár­út­lát undir eft­ir­lits­nefnd með fjár­málum sveit­ar­fé­laga, líkt og hún hefur þurft að gera und­an­farin ár vegna bág­bor­innar fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. Ástæðan er sú að betri fjár­mála­stjórn, aðhalds­að­gerðir og tekju­aukn­ing bæj­ar­sjóðs hefur bætt fjár­hags­stöð­una til muna. Raunar er það svo að Reykja­nes­bær er að losna undan eft­ir­lit­inu tveimur árum fyrr en áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Í frétt vegna þessa, sem birt hefur verið á heima­síðu Reykja­nes­bæjar, segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, að þetta séu sér­stak­lega ánægju­leg tíð­indi og

nið­ur­staða sem stefnt hafi verið að síðan í árs­lok 2014, þegar aðgerð­ar­á­ætl­unin „Sóknin“ var kynnt til leiks til að bæta fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. „Auk þess sem ráð­deild hefur stýrt störfum okkar, hafa ytri aðstæður einnig hjálpað til. Má þar nefna að flug­um­ferð um Kefla­vík­ur­flug­völl hefur auk­ist, atvinnustig verið gott, íbúum fjölgað og svo mætti áfram telja.“

Þar segir enn fremur að bæj­ar­stjórn muni í fram­hald­inu leggj­ast yfir fram­tíð­ar­á­ætl­anir bæj­ar­fé­lags­ins, en fjöl­mörg stór verk­efni eru þar á teikni­borð­inu í upp­bygg­ingu skóla- og íþrótta­mann­virkja, ýmissa fjár­fest­inga og fram­kvæmda.

Herinn fór og tilraunir mistókust

Það hafa skipst á skin og skúrir í Reykja­nesbæ frá því að sveit­ar­fé­lagið varð til fyrir rúmum ald­ar­fjórð­ung, sér­stak­lega á síð­ustu árum. Árið 2006 hvarf Banda­ríkja­her frá land­inu og þar með lok­aði stærsti vinnu­staður þess sem tryggði Reykja­nesbæ auk þess marg­hátt­aðar tekjur.

[adspot]Til að bregð­ast við þeirri stöðu hófu stjórn­mála­menn, meðal ann­ars í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæj­ar, að beita sér fyrir upp­bygg­ingu iðn­að­ar­svæðis í Helgu­vík. Sam­hliða gekkst Reykja­­nes­­bær í ábyrgð fyrir millj­­arða króna ­upp­­­bygg­ingu hafnar á svæð­inu. Hug­myndin var sú að höfnin myndi síðar skila sveit­ar­fé­lag­inu miklum tekjum þegar stór­iðju­fyr­ir­tæki hæfu starf­semi sína þar. Þá var lagt í átak við að fjölda íbúum sveit­ar­fé­lags­ins með ódýrum lóða­út­deil­ingum.

Íbúum í Reykja­nesbæ fjölg­aði um 30 pró­sent á árunum 2005 til 2009. Það var líka ákveðið að selja allar verð­mæt­ustu eignir sveit­ar­fé­lags­ins, þar á meðal eign­ar­hlut­inn í HS Orku. Á þessu tíma­bili, 2003 til 2014, skil­aði var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Gripið til neyðaraðgerða

Sam­an­dregið þá fór áætl­unin um við­bragð við brott­hvarfi hers­ins ekki eins og lagt var upp með. Þess í stað end­aði Reykja­nes­bær sem eitt skuld­­settasta sveit­­ar­­fé­lag lands­ins og rekstur þess árum saman var afleitur. Á tíma­bil­inu 2003 til 2014 var A-hluti Reykja­­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Vegna þessa þurfti sveit­ar­fé­lagið meðal ann­ars að leggja auknar skatt­byrðar á íbúa sína.

Þessi staða varð meðal ann­ars til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti hreinan meiri­hluta sinn í kosn­ing­unum 2014. Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Beinnar leiðar og Frjáls afls tók við og réð Kjartan Már Kjart­ans­son sem bæj­ar­stjóra.

Verk­efnið sem sveit­ar­fé­lagið stóð frammi fyrir á þessum tíma var gríð­ar­lega umfangs­mikið. Reykja­nes­bær var skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014, eða rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 var leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar var því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

[adspot]Fjár­fest­ing­arnar sem ráð­ist hafði verið í skil­uðu mun minna til baka er vonir stóðu til um. Skuldir vegna hafn­ar­upp­bygg­ing­ar­innar voru orðar 7,5 millj­arðar króna árið 2015. Margir þeirra sem fengu lóðir í sveit­ar­fé­lag­inu stóðu ekki undir þeirri skuld­bind­ingu og Íbúða­lána­sjóður tók yfir húsin þeirra. Alls voru rúm­lega 40 pró­sent allra eigna sem Íbúða­lána­sjóður hélt á árið 2015 á Suð­ur­nesj­um. Á því ári voru 17 pró­sent íbúa á svæð­inu í alvar­legum van­skilum sem var hæsta hlut­fall van­skila á land­inu. Lang­tíma­at­vinnu­leysi var líka mikið vanda­mál í sveit­ar­fé­lag­inu.

Ráðist í „Sóknina“

Til að bregð­ast við þessu var ráð­ist í aðgerð­ar­á­ætlun til átta ára, sem kall­að­ist „Sóknin“. Helst mark­mið hennar var að ná skulda­hlut­fall­inu niður fyrir 150 pró­sent fyrir árið 2021. Í þessu átaki fólst að íbúar þurftu að bera auknar burðar. Lagt var auka­á­lag ofan á hámarks­út­svar, fast­eigna­skattar hækk­aðir, föst yfir­vinna bæj­ar­starfs­manna lögð af, öku­tækja­styrkir aflagðir, fagsviðum fækkað og ýmsum milli­stjórn­endum sagt upp störfum.

Í hálkunni milli jóla og nýárs 2014 var íbúum boðið að koma og sækja sand til að dreifa á stétt­ina hjá sér. Það voru ekki til bæj­ar­starfs­menn til að sinna því við­viki.

Í febr­úar 2015 skrif­aði nýr bæj­ar­stjóri, Kjartan Már, grein þar sem hann lýsti veru­leik­anum sem blasti við. Þar sagði meðal ann­ars: „Fjár­hags­staða Reykja­nes­bæjar er graf alvar­leg. Sú stað­reynd hefur legið fyrir um nokk­urt skeið. Samt eru ótrú­lega margir sem halda ennþá að þetta sé bara póli­tískur skolla­leikur með það að mark­miði að láta stöð­una líta verr út en hún raun­veru­lega er. Það er fjarri lagi.[...]Samt hitti ég fólk af og til sem heldur hinu gagn­stæða fram og trúir því að þetta sé allt í plati. „Var nú nauð­syn­legt að hækka útsvar­ið? Var nauð­syn­legt að hækka fast­eigna­skatt­inn?

Var nauð­syn­legt að draga saman og hag­ræða í rekstri? Var nú nauð­syn­legt að segja upp fastri yfir­vinnu? Var nú nauð­syn­legt að segja upp föstum akst­ur­styrkj­um? Var nauð­syn­legt að fækka fag­svið­um? Var nú nauð­syn­legt að segja upp öllum fram­kvæmda­stjór­un­um? Var nú nauð­syn­legt að gera samn­ing við inn­an­rík­is­ráðu­neyt­ið? Var nú nauð­syn­legt að …….“ Öllum spurn­ingum í þessum dúr er bara hægt að svara á einn veg; „Já, það var bráð­nauð­syn­legt að taka þessar ákvarð­anir þótt erf­iðar væru.““

Kjartan sagði enn­fremur að komið væri að ögur­stundu og það hefði ein­fald­lega ekki verið hægt að bíða lengur og sjá hvort ástandið myndi lag­ast. Það þyrfti að grípa til aðgerða og það hefði verið gert. Skuldir Reykja­nes­bæjar væru allt of háar og að það þyrfti að greiða þær niður. „Það gerum við ekki nema með því að eiga rekstr­ar­af­gang á hverju ári sem nota má til þess að greiða niður skuldir og því þurfum við að halda gríð­ar­lega vel á spil­unum á næstu 8 árum að minnsta kosti. Allir sem halda öðru fram eru í afneitun og á villi­göt­u­m.“

Ný uppbygging

Á þessum tíma var þó lífs­mark í atvinnu­upp­bygg­ingu á svæð­inu. Til­raunir til að byggja álver í Helguvík reynd­ust með öllu óraun­hæfur og hafa verið sleggnar af. Þá fór upp­bygg­ing kís­il­vera í Helguvík illa og mik­ill þrýst­ingur er á það meðal íbúa að slík fái ein­fald­lega ekki a starfa á svæð­inu. En gagn­ver voru risin, líf­tækni­fyr­ir­tæki voru með starf­semi í píp­unum og svo var auð­vitað að eiga sér stað for­dæma­laus vöxtur í ferða­þjón­ustu þar sem Kefla­vík­ur­flug­völlur lék lyk­il­hlut­verk.

Næstu ár voru sveit­ar­fé­lag­inu góð. Atvinnu­leysið nán­ast hvarf, íbúum sveit­ar­fé­lags­ins fjölg­aði mest allra á land­inu, fast­eigna­verð hækk­aði gríð­ar­lega og tekjur sveit­ar­fé­lags­ins juk­ust skarpt. Störfin sem urðu til voru flest tengd ferða­þjón­ustu, enda fjölg­aði ferða­mönnum úr hálfri milljón í 2,3 millj­ónir á sjö árum.

Á sama tíma­bili fjölg­aði íbúum sveit­ar­fé­lags­ins mjög hratt. Um mitt ár 2011, þegar ástandið var nokkuð hart í Reykja­nesbæ, bjuggu þar 13.990 manns. Þar af voru 1.230 erlendir rík­is­borg­arar. Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru íbúar sveit­ar­fé­lags­ins orðnir 19.380 og hafði þar með fjölgað um 5.390 á nokkrum árum. Nánast öll aukn­ingin var til­komin vegna fjölg­unar á erlendum rík­is­borg­urum sveit­ar­fé­lags­ins. Þeir voru 8,8 pró­sent íbúa þess 2011 en 25,5 pró­sent þeirra í lok mars síð­ast­lið­ins.

Þegar síð­asti árs­reikn­ingur Reykja­nes­bæjar var afgreiddur í bæj­ar­stjórn í maí 2019 var nið­ur­staða hans sú besta sem sést hefur í sögu sveit­ar­fé­lags­ins. Skulda­við­mið sam­stæðu sveit­ar­fé­lags­ins var komin niður í 137,29 pró­sent, og þar með undir lög­boðið 150 pró­sent við­mið.

Fá milljarða vegna sölu á HS Orku

Reykja­nes­bær fékk síðan enn einar gleði­frétt­irnar stuttu síðar, þegar gengið var frá sölu á hlut Fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK í HS Orku til félags í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

[adspot]Í ágúst 2012 seldi Reykja­nes­bær nefni­lega skulda­bréf sem sveit­ar­fé­lagið eign­að­ist við sölu á hlut þess í HS Orku til Geysis Green Energy. Kaup­and­inn var áður­nefndur sjóður, ORK, sem rek­inn var af Virðingu, sem síðar gekk í gegnum nokkrar sam­ein­ingar og er nú hluti af Kviku banka. Sjóð­ur­inn var fjár­magn­aður af líf­eyr­is­sjóðum og fag­fjár­festum.

Heim­ildir Kjarnans herma að kaup­verðið hafi verið 8,8 millj­arðar króna. Reykja­nes­bær á rétt á því að fá rúm­lega fjóra millj­arða króna til við­bótar við það sem sveit­ar­fé­lagið fékk þegar það seldi skulda­bréfið upp­haf­lega. Þeim verður öllum ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda.

Fall WOW air hefur mikil áhrif

Það hafa þó einnig teikn­ast upp nýjar áskor­anir. Við fall WOW air í lok mars í fyrra bæj­ar­ráð Reykja­nes­bæjar ljóst að áfallið muni hafa mikil sam­fé­lags­leg áhrif til skamms tíma. Það sé einkum vegna þess hversu mik­ill fjöldi íbúa hafi starfað hjá WOW air eða í fyr­ir­tækjum sem veitti WOW air bæði beina og óbeina þjón­ustu.

Atvinnu­leysi er hæst á Suð­ur­nesjum á öllu land­inu. Þar mælist atvinnu­leysið nú 8,4 pró­sent og hefur auk­ist hratt það sem af er ári.

Á Suð­ur­nesj­unum voru fleiri Pól­verjar atvinnu­lausir en íslenskir rík­is­borg­arar í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins. Það er í fyrsta sinn sem það ger­ist. Alls eru 45 pró­sent þeirra sem eru án atvinnu, en búsettir á Suð­ur­nesj­unum, Pól­verjar, 42 pró­sent eru íslenskir rík­is­borg­arar og tæp 13 pró­sent frá öðrum löndum.

Suð­ur­nesin eru eina land­svæðið á Íslandi þar sem fleiri Pól­verjar eru án atvinnu en Íslend­ingar. Reykja­nes­bær er stærsta sveit­ar­fé­lagið á Suð­ur­nesjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár