Hafa ekki heimild til að aflífa heilbrigð dýr á landsvísu

Yfirvöld í Danmörku hafa ekki heim­ild til að fella alla minka í land­inu líkt og rík­is­stjórnin stefnir að. Á morgun verður lagt fram frum­varp á þing­inu um málið en skiptar skoð­anir eru innan þing­heims á því.

Um 17 milljón minkar eru á dönskum minkabúum.
Um 17 milljón minkar eru á dönskum minka­búum. Mynd: EPA

Danska rík­is­stjórnin hyggst leggja fram frum­varp á morgun sem mun veita yfir­völdum aðgang að öllum minka­búum lands­ins. Á Norður-Jótlandi hefur greinst stökk­breytt kór­ónu­veira í bæði mönnum og minkum og hafa yfir­völd áhyggjur af því að bólu­efni sem verið er að þróa gagn­ist ekki gegn þessu stökk­breytta afbrigði. Því til­kynnti Mette Frederik­sen á mið­viku­dag að allir minkar á öllum búum lands­ins yrðu felldir. Mink­arnir eru lík­lega um sautján millj­ónir tals­ins.

Yfirvöld hafa, að því er fram kemur í BT, þegar heim­ild til að aflífa dýr á búum þar sem upp er kom­inn sjúk­dómur sem og á búum innan þess land­svæðis þar sem sjúk­dómur kemur upp. En laga­heim­ild skortir til að fella dýr á búum ann­ars staðar í land­inu líkt og for­sæt­is­ráð­herr­ann hyggst láta gera.

Umhverf­is­ráðu­neytið í Danmörku hefur stað­fest að frum­varps­drögin hafi þegar verið samin og að til standi að koma með með hraði í gegnum þingið. Flýti­með­ferðin er að sögn land­bún­að­ar­ráð­herr­ans nauð­syn­leg vegna alvar­leika máls­ins. Svo alvar­leg sé staðan að ekki hafi þótt rétt­læt­an­legt að bíða með að til­kynna um ákvörðun stjórn­valda þar til frum­varpið lægi fyrir.

Ekki eru allir á eitt sáttir að málið verði afgreitt með hraði. Henrik Dahl, þing­maður Liberal Alliance (LA), vill að málið verði skoðað ofan í kjöl­inn því að aflífun minkanna á lands­vísu séu „ofbeld­is­full og ýkt við­brögð“. Hann segir það ekki hafa verið stað­fest að hið stökk­breytta veiru­af­brigði gæti ógnað bólu­setn­ingu gegn COVID-19 og því liggi ekk­ert á að keyra frum­varpið í gegn.

[links]Þing­maður Íhalds­flokks­ins undr­ast að það hafi ekki verið skýrt tekið fram á blaða­manna­fundi for­sæt­is­ráð­herr­ans í síð­ustu viku að aflífun allra minkanna hafi ekki verið skipun heldur ósk rík­is­stjórn­ar­innar. „Við höfðum öll skilið það þannig að stjórn­völd hefðu fyr­ir­skipað að dýr­unum yrði slátrað um allt land en svo kemur í ljós að það er undir þing­inu komið,“ segir þing­mað­ur­inn Rasmus Jarlov. Hann telur þörf á meiri vit­neskju um málið áður en til svo rót­tækrar aðgerðar verði gripið að slátra öllum minkum í land­inu og þar með þurrka út heila atvinnu­grein.

Þingmenn Ein­inga­list­ans (Enheds­listen) munu styðja rík­is­stjórn­ina og sam­þykkja frum­varpið þar sem þeir telja um heilsu­far­sógn að ræða. Þingmenn Venstre hafa ekki tekið ákvörðun enda vilja þeir fyrst heyra rök rík­is­stjórn­ar­innar og sjá frum­varpið.

Minkur sem millihýsill

Frá því í sumar hafa um 215 kór­ónu­veirusmit í mönnum verið rakin til minka­búa í Danmörku. Að minnsta kosti tólf mann­eskjur á Norður-Jótlandi hafa greinst með stökk­breytt afbrigði veirunnar sem ótt­ast er að geti stefnt virkni bólu­efnis gegn COVID-19 í hættu. Þeir sem sýkst hafa af þessu afbrigði eru á aldr­inum 7-79 ára. Átta þeirra tengj­ast minka­búum beint og fjórir tengj­ast svo þeim sýktu með öðrum hætti. Hið nýja afbrigði er kallað „klasi 5“ og hefur það ekki greinst áður. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) segir vís­bend­ingar um að hið nýja afbrigði sé ekki eins mót­tæki­legt fyrir mótefnum og önnur afbrigði kór­ónu­veirunnar sem veldur COVID-19 en að frek­ari rann­sókna sé þörf.

Talið er að kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 hafi kom­ist í menn úr leð­ur­blökum. Það hefur þó ekki enn verið stað­fest. WHO segir að minkar geti líkt og leð­ur­blökur verið milli­hýslar veirunnar. Þeir hafa smit­ast af mönnum en síðan hefur veiran smit­ast þeirra á milli og loks aftur í menn.

„Allar veirur, SARS-CoV-2 þar með talin, breyt­ast með tím­anum,“ segir í yfir­lýs­ingu sem WHO gaf út á föstu­dag. Veiran getur svo þróað með sér ein­staka eig­in­leika í mink­unum. „Aðgerðir sem dönsk stjórn­völd ætla að taka munu tak­marka útbreiðslu minka­af­brigðis veirunnar í Danmörku.“

Veiran hefur greinst í minkum í sex löndum; Danmörku, Hollandi, Spáni, Svíþjóð, Ítalíu og Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár