Kynferðisbrotum fjölgar og kærum fækkar

Fjöldi kyn­ferð­is­brota­mála hjá Stíga­mótum jókst á milli síð­ustu tveggja ára. Einungis 41 mál var kært af 468 málum. Flest málin eru nauðg­anir og karlar eru ger­endur í lang­flestum til­vikum.

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, kynnti ársskýrslu samtakanna í morgun.
Guðrún Jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, kynnti árs­skýrslu sam­tak­anna í morgun. Mynd: Sunna

Einungis 8,8 pró­sent kyn­ferð­is­brota­mála sem bár­ust Stíga­mótum í fyrra voru kærð til lög­reglu. Af 468 málum voru 41 kærð. Þetta er lægra hlut­fall heldur en árið áður, en þá voru rúm­lega 13 pró­sent mála kærð, eða 56 mál af 423. 

Guðrún Jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, sagði á kynn­ing­ar­fundi á árs­skýrslu Stíga­móta fyrir árið 2015 í morgun að ein mögu­leg ástæða þessa lága hlut­falls kærðra mála væri sú að léleg með­ferð kyn­ferð­is­brota hjá lög­reglu hafi verið áber­andi í fjöl­miðlum und­an­farið ár. En það sé þó ekk­ert nýtt að fá mál séu kærð.

Ekki eins mörg viðtöl síðan í Karls Vignis-málunum

Fjöldi nýrra mála hjá Stíga­mótum 2015 var 330 og voru brota­þolar 302 og svo 28 í gegn um aðstand­endur. Heild­ar­fjöldi ein­stak­linga sem kom til Stíga­móta var 677. Ofbeld­is­menn voru 507, þar af 30 konur. Árið 2014 var heild­ar­fjöldi kyn­ferð­is­brota­mála 306.

Heild­ar­fjöldi við­tala var 2.209 og er hvert við­tal klukku­tími. Guðrún sagði að ekki hafi verið gerð svo mörg við­töl síðan 2013 þegar málin sem voru tengd Karli Vigni Þor­steins­syni voru öll að koma upp á yfir­borðið.

Karlar nauðga í langflestum tilvikum

Flest málin hjá Stíga­mótum í fyrra voru nauðg­anir, eða 155 af 464. Sifja­spells­mál voru 125, kyn­ferð­is­leg áreitni taldi 99 mál, nauðg­un­ar­til­raunir voru 39, mál tengd klámi voru 19 og vænd­is­mál voru fimm.

245 konur leit­uðu til Stíga­móta vegna nauð­gana og 37 karlar. Karlar voru ofbeld­is­menn í 95,5 pró­sent til­vika þegar kom að konum og í 76 pró­sent til­vika hjá körlum.

Alltaf fá mál kærð

Séu árs­skýrslur Stíga­móta frá árunum 1992 til 2014 skoð­aðar kemur fram að um fjögur pró­sent til 17 pró­sent mála ár hvert hafi verið kærð til lög­reglu. Í árs­skýrsl­unni segir að ástæður fyrir að mál eru ekki kærð eru margar, en oft eru mál fyrnd þegar þau ber­ast Stíga­mótum. 

„Algengt er líka að fólk treystir sér ekki lengur í gegn um yfir­heyrslur og hefur ekki trúa á að það nái fram rétti sínum fyrir dóm­stólum. Enn önnur skýr­ing og ef til vill algeng­ari en marga grunar er að þau sem beitt eru kyn­bundnu ofbeldi eru svo þjökuð af skömm, sekt­ar­kennd og lélegri sjálfs­myn að þau treysta sér ekki til þess að kæra og finnst þau jafn­vel bera ábyrgð á ofbeld­inu sjálf, annað hvort að hluta til eða alveg,” segir í árs­skýrsl­unni.

Þá kom fram í rann­sókn sem gerð var af Hildig­unni Magn­ús­dóttur og Katrínu Erlings­dóttur árið 2007 að um 85 pró­sent þeirra sem leit­uðu til Stíga­móta nefndu skömm sem ástæðu þess að kæra ekki og að 75 pró­sent kvenna litu svo á að nauðg­unin hafi verið þeim sjálfum að kenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár