Rekstrartekjur Félagsbústaða jukust um tæp 10 prósent milli ára

Rekstr­ar­tekjur Félags­bú­staða námu rúmum 4 millj­örðum á árinu 2018. Aukning tekna skýrist af fjölgun leigu­í­búða en félagið leigir nú út tæp­lega 2600 íbúðir í Reykja­vík og vegna vísi­tölu­bund­innar hækk­unar leigu­verðs.

Rekstr­ar­tekjur Félags­bú­staða námu rúmum 4 millj­örðum á árinu 2018 og juk­ust um tæp 10 pró­sent milli ára. Aukning tekna skýrist af fjölgun leigu­í­búða á árinu 2018 en félagið leigir nú út tæp­lega 2600 íbúðir í Reykja­vík og vegna vísi­tölu­bund­innar hækk­unar leigu­verðs um 2,8 pró­sent á árinu. Rekstr­ar­gjöld hækk­uðu um 9 pró­sent milli áranna 2017 og 2018.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2018 sem stað­festur var af stjórn í gær.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu kemur fram að sjóð­streymi Félags­bú­staða sýni að hand­bært fé frá rekstri sé 558 millj­ónir króna sam­an­borið við 653 millj­ónir árið áður. Afborg­anir lána nemi 641 millj­ónum króna og heilda­skuldir 41.052 millj­ónum króna. Þær hafi hækkað um 3.643 millj­ónir á árinu en Félags­bú­staðir keyptu fast­eignir fyrir 2.972 millj­ónir króna og vörðu 935 millj­ónum í við­hald á fast­eignum sínum á árinu.

Afkoma árs­ins fyrir fjár­magnsliði, eða EBIT, nam 1.816 millj­ónum króna eða 45,1 pró­sent af rekstr­ar­tekjum. Mats­hækkun fjár­fest­inga­eigna fyrir árið nam 2.942 millj­ónum króna og hagn­aður árs­ins 2.384 millj­ónum króna.

Virði fjár­fest­inga­eigna í lok árs­ins er 83.203 millj­ónir krónur og eigið fé er 42.641 millj­ónir. Eig­in­fjár­hlut­fall í lok er 51 pró­sent og vaxta­ber­andi skuldir í lok árs nema 37.790 millj­ónum króna.

Bók­færður hagn­aður af rekstri Félags­bú­staða á árinu 2018 nam 2.384 millj­ónum króna og er hann allur til­kom­inn vegna hækk­unar á virði eigna sem tekur mið af fast­eigna­mati, segir í til­kynn­ing­unni.

Félagið er stærsti eig­andi félags­legs hús­næðis á land­inu og um leið stærsta leigu­fé­lag lands­ins. Leigu­í­búðum í eigu Félags­bú­staða í Reykja­vík hefur fjölgað um 400 frá árinu 2014 en í lok árs 2018 áttu Félags­bú­staðir 2.618 íbúðir. Stefnt er að því að þær verði orðnar 3.170 árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár