Ósammála úrskurðarnefnd: Vill ekki að skýrsla sé afhent

Rekt­ors­fram­bjóð­andi um mál Friðriks Eysteins­sonar: „Síðan kemur ein­hver aðili og óskar eftir því að fá þessa skýrslu, þá er verið að brjóta trúnað á starfs­fólk­inu“

Jón Atli Bene­dikts­son, rekt­ors­fram­bjóð­andi og núver­andi aðstoð­ar­rektor Háskóla Íslands er mót­fall­inn því að háskól­inn hlíti úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál í máli Friðriks Eysteins­sonar, fyrr­ver­andi aðjúnkts við við­skipta­fræði­deild. Þetta kom fram í við­tali við rekt­ors­fram­bjóð­endur í Viku­lokum á Rás 1 í gær. 

Forsaga máls­ins er sú að haustið 2013 ræddu sál­fræð­ingar við starfs­fólk við­skipta­fræði­deildar vegna sam­skipta­vanda í deild­inni. Útbúin var skýrsla sem Friðrik hefur barist fyrir að fá afhenta, enda telur hann að efni hennar stað­festi að hann hafi verið beittur órétti af stjórn­endum deild­ar­innar auk þess að hafa orðið fyrir þöggun og ein­elti vegna gagn­rýni sinnar á starfs­hætti skól­ans. 

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál kvað upp úrskurð þann 21. jan­úar um að háskól­inn skyldi afhenda Friðriki skýrsl­una. Háskól­inn hlýddi ekki úrskurð­inum og krafð­ist end­ur­upp­töku máls­ins. Þeirri kröfu var hafnað þann 23. mars síð­ast­lið­inn en um leið var rétt­ar­á­hrifum úrskurð­ar­ins frestað með því skil­yrði að Háskóli Íslands bæri málið undir dóm­stóla innan sjö daga frá birt­ingu úrskurð­ar­ins og óskaði eftir flýti­með­ferð. Reykja­vík viku­blað greindi frá því á dög­unum að háskól­inn ætlar með málið fyrir dóm.

„Með vísan til fram­an­greinds telur úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála að Háskóla Íslands sé, sam­kvæmt 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012, skylt að veita kær­anda aðgang að skýrslu, dags. 20. nóv­em­ber 2013, sem unnin var af fjórum sér­fræð­ingum hjá sáfræði­stof­unni Lífi og sál, ehf., fyrir Háskóla Íslands,“ segir í úrskurði úrskurð­ar­nefndar.

Háskól­inn hélt því fram að í skýrsl­unni hefði ekki verið fjallað um Friðrik en nefndin komst að annarri nið­ur­stöðu: „Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál telur engum vafa und­ir­orpið að í skýrsl­unni sé fjallað sér­stak­lega um kær­anda eins og hann heldur í raun fram og því beri að afgreiða kæru hans á grund­velli 14. gr. upp­lýs­inga­laga.“

Rekt­orsefni ósam­mála
Í umræðum í Viku­lokum í gær vakti Einar Stein­gríms­son rekt­ors­fram­bjóð­andi máls á þessu og taldi rétt að háskól­inn hlýddi boðum úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Guðrún Nordal, sem einnig býður sig fram til emb­ættis rekt­ors, sagð­ist ekki þekkja málið né vilja tjá sig um það.

Jón Atli Bene­dikts­son varði hins vegar vinnu­brögð háskól­ans og sagði: „Þegar starfs­fólk háskól­ans innan ákveð­innar deildar fer í ákveðna vinnu­staða­grein­ingu og það er sagt er við það að trún­aður muni ríkja um allt sem kemur út úr þessu, síðan kemur ein­hver aðili og óskar eftir því að fá þessa skýrslu, þá er verið að brjóta trúnað á starfs­fólk­inu. Og auð­vitað verður stofn­unin að standa með sínu fólki. og þetta er ekki þöggun, alls ekki.“ 

Líkt og úrskurð­ar­nefnd bendir hins vegar á ganga „lof­orð stjórn­valds um trúnað um gögn í vörslu þess“ ekki framar „þeim ákvæðum upp­lýs­inga­laga sem leiða til þess að aðgangur skuli heim­il­aður, þ.e.a.s. að lof­orð stjórn­valda eru mark­laus fari þau í bága við ákvæði upp­lýs­inga­laga um upp­lýs­inga­skyldu þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár