Versti ársfjórðungurinn í Bandaríkjunum frá 2008 en sá næsti verður mun verri

4,8 pró­sent sam­dráttur varð í banda­ríska hag­kerf­inu á fyrsta árs­fjórð­ungi sam­kvæmt nýjum bráða­birgða­hag­tölum sem birtar voru í dag. Búist er að við að sam­drátt­ur­inn verði marg­falt meiri á þeim næsta.

Hjólreiðamaður á ferð í New York um liðna helgi.
Hjól­reiða­maður á ferð í New York um liðna helgi. Mynd: EPA

Banda­ríska hag­kerfið dróst saman um 4,8 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs miðað við sama tíma­bil í fyrra, sam­kvæmt nýjum bráða­birgða­hag­tölum sem birtar voru vest­an­hafs í dag. Þetta er mesti sam­dráttur sem orðið hefur í Banda­ríkj­unum á árs­fjórð­ungs­grund­velli frá því undir lok árs 2008, er hrun varð á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum.

Í skýrslu frá kaup­sýslu­stofnun Banda­ríkj­anna, sem tekur hag­töl­urnar saman, segir að einka­neysla hafi dreg­ist saman um 7,6 pró­sent og atvinnu­vega­fjár­fest­ing um 8,6 pró­sent.

Samkvæmt frétt Washington Post búast grein­endur við því að þetta sé bara byrj­unin og sjá margir fyrir sér að sam­drátt­ur­inn á öðrum árs­fjórð­ungi, sem nær yfir tíma­bilið frá byrjun apríl og til loka júní, verði um eða yfir 30 pró­sent miðað við fyrra ár.

Janúar og febr­úar voru enda nokkuð eðli­legir mán­uðir í Banda­ríkj­unum, en svo fór far­ald­ur­inn á flug og höggið sem nú má merkja í hag­töl­unum átti sér stað seint í árs­fjórð­ungnum, er gripið var til víð­tækra sótt­varna­ráð­staf­ana í land­inu, sem varð til þess að fyr­ir­tækjum var lokað og fólk hélt sig heima.

New York Times hefur eftir Dan North, aðal­hag­fræð­ingi hjá greiðslu­vá­trygg­ing­ar­fé­lag­inu Euler Hermes North America, að hag­tölur ann­ars árs­fjórð­ungs verði án efa þær verstu sem flestir hafi séð á lífs­leið­inni.

Þessar tölur sem banda­rísk yfir­völd birtu í dag eru bráða­birgða­út­reikn­ingar, og enn eiga eftir að bæt­ast við ein­hver gögn um stöðu mála sem verða tekin með í reikn­ing­inn.

Í frétt Washington Post segir að grein­ing­ar­deildir fjár­mála­stofn­ana á borð við Goldman Sachs og JPMorgan Chase búist við því að raun­sam­dráttur árs­fjórð­ungs­ins muni nema á bil­inu 8-11 pró­sent.

26 milljón umsóknir um atvinnuleysisbætur

Fjöldi atvinnu­leys­is­um­sókna hefur slegið öll met í Banda­ríkj­unum und­an­farnar vikur, en tölur um fjölda viku­legra umsókna frá vinnu­mála­stofnun lands­ins eru alltaf birtar á fimmtu­dögum.

Síðasta fimmtu­dag var greint frá því að 4,4 millj­ónir manna hefðu sótt um atvinnu­leys­is­bætur og er fjöldi bótaum­sókna því kom­inn upp í rúmar 26 millj­ónir á ein­ungis rúmum mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár