Play segir vísbendingar um að skuldsetning Icelandair sé þegar orðin ósjálfbær

For­stjóri flug­fé­lags­ins Play telur að áform um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Icelandair Group, sem nýlega voru gerð opin­ber, séu óraunsæ. Þetta kemur fram í umsögn hans um vænt­an­lega rík­is­á­byrgð á lánum til Icelandair.

Arnar Már Magnússon,. forstjóri Play.
Arnar Már Magn­ús­son,. for­stjóri Play. Mynd: Bára Huld Beck

Arnar Már Magn­ús­son, for­stjóri flug­fé­lags­ins Play, segir í umsögn um ætl­aða rík­is­á­byrgð á lánum til Icelandair Group að áform um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Icelandair Group séu óraunsæ.

„Veittur er gálga­frestur með ýmsar skuld­bind­ingar, en þær í engu afskrif­aðar eða breytt í hlutafé. Þessar skuld­bind­ingar munu að lík­indum á seinni hluta ábyrgð­ar­tím­ans leggj­ast á að nýju af fullum þunga í við­bót við þann ádrátt sem orðið hefur á lána­lín­urnar sem eru and­lag rík­is­á­byrgð­ar­innar. Hafi komið til ádráttar á þessar rík­is­tryggðu lána­línur verður félagið þá þegar orðið veru­lega illa statt og því ósenni­legt að það standi undir þeirri auknu skulda­byrði sem hlýst af ádrætti á rík­is­tryggðu lána­lín­urnar. Greiðslu­fall mun því blasa við,“ skrifar Arnar Már í umsögn sinni sem birt var í dag á vef Alþingis.

Rík­is­end­ur­skoðun hefur þegar bent á það í umsögn að veð rík­is­ins fyrir ábyrgð­inni séu hverf­andi. Arnar Már segir að það gefi vís­bend­ingar um að skuld­setn­ing Icelandair Group sé nú þegar orðin ósjálf­bær.

[adspot]Eft­ir­lits­­stofnun EFTA (ESA) sam­­þykkti í síð­ustu viku rík­­is­á­­byrgð á lána­línu rík­­is­­bank­anna Íslands­­­banka og Lands­­bank­ans til Icelandair Group. Rík­­is­á­­byrgðin nær yfir 90 pró­­sent af lána­lín­unni og er upp á 15 millj­­arða króna. Nýti Icelandair lín­una, og fari samt í þrot, mun íslenska ríkið eign­­ast vöru­­merkið Icelanda­ir, bók­un­­ar­­kerfi félags­­ins og nokkur lend­ing­­ar­­leyfi þess á lyk­ilá­fanga­­stöð­u­m. Frumvarp um rík­is­á­byrgð­ina var lagt fram á Alþingi fyrir helgi og er nú til með­ferðar þar.

Skattfé lagt að veði gegn áformum um samkeppni

Play var kynnt til leiks í nóv­em­ber í fyrra. Þá átti eftir að tryggja félag­inu fjár­mögnun og áform þess hafa breyst umtals­vert und­an­farið tæpt ár, meðal ann­ars vegna heims­far­ald­urs­ins sem geisar. Sá sem fer fyrir hópi fjár­festa í Play í dag er Skúli Skúlason, sem er einn af stofn­endum Airport Associtates og Bluebird Cargo, en hann var einnig for­stjóri síð­ar­nefnda félags­ins á árunum 2007 til 2014. Play hefur ekki enn hafið sig á flug en félagið ætlar að vera til­búið til þess þegar það opnar aftur fyrir milli­landa­flug.

Í umsögn­inni segir að frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um rík­is­á­byrgð fyrir Icelandair Group virð­ist sett fram að gef­inni þeirri for­sendu að áform Play um að hefja flug frá Íslandi um leið og aðstæður leyfa gangi ekki eftir, enda gætu þau áform orðið til þess að raun­gera þá áhættu sem ætl­unin sé að taka með veit­ingu ábyrgð­ar­innar. „Að mati Play er það ótækt að ríkið leggi skattfé með þessum hætti að veði gegn áformum félag­ins um að veita Icelandair Group sam­keppni. Með hlið­sjón af þessum varn­að­ar­orðum er Alþingi hvatt til ítr­ustu var­færni áður en sam­eig­in­legir sjóðir almenn­ings eru skuld­bundnir með þeim hætti sem frum­varpið leggur upp með.“

Laskaður rekstur fær framhaldslíf

Í umsögn Arnars Más segir að ívilnun úr hófi fram við Icelandair Group sé lík­leg til að stuðla að fákeppn­is­mark­aði þar sem félagið, sem hafi reynst erfitt að fóta sig í sam­keppn­isum­hverfi, fái nægj­an­legt for­skot fyrir til­stuðlan rík­is­ins til þess að halda öðrum aðilum frá þeim mark­aði og veita þannig „löskuðum rekstri óverð­skuldað fram­halds­líf.“

[links]Hann segir að sú áhætta sem felist í frum­varp­inu fyrir rík­is­sjóð sé veru­leg. „Lagt er til að félagið geti, á þeim tíma­punkti þegar félagið verður komið í ósjálf­bæra stöðu fjár­hags­lega, dregið á lána­línur sem eru rík­is­tryggðar og þannig stór­aukið við skuldir sínar og því gert skulda­stöðu sína enn ósjálf­bær­ari en áður. Miklar líkur eru á að þessar skuldir endi á rík­is­sjóði komi til ádráttar á lána­lín­urnar, enda eru ekki lögð fram nein raun­veru­leg veð til trygg­ingar af hálfu félags­ins.“

Telji Alþingi engu að síður ástæðu til þess að koma Icelandair Group til hjálpar með þeim hætti sem lagt sé til í frum­varp­inu hvetur Arnar Már til þess að ábyrgð­ar­gjaldið verði aðlagað að því sem gert sé ráð fyrir í við­miðum Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) og Fram­kvæmd­ar­stjórnar ESB og því sem önnur Evr­ópu­lönd hafa verið að fara fram á við svip­aðar aðstæður nýlega. „Það þýðir að hækka ætti gjaldið veru­lega og skapa sterkan hvata til þess að félagið losi sig undan ábyrgð­inni við fyrsta hent­ug­leika. Einnig er hvatt til þess að sett verði frek­ari skil­yrði fyrir veit­ingu ábyrgð­ar­innar, t.d. að til­teknum lend­ing­ar­heim­ildum verði afsalað til sam­keppn­is­að­ila, svo lág­marka megi þau nei­kvæðu áhrif sem af henni munu hljót­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár