Leirflutningurinn mikli

4. júní 2021 sam­þykkti danska þingið lög um það sem kallað hefur verið metn­að­ar­fyllsta fram­kvæmda­á­ætlun í sögu Dan­merkur. Þá vissu þing­menn ekki af mik­il­vægu bréfi sem sam­göngu­ráð­herr­anum hafði borist en láðst að kynna þing­heimi.

Miklir leirflutningar af sjávarbotni þurfa að eiga sér stað áður en hægt verður að byrja að mynda landfyllinguna miklu við Kaupmannahöfn sem kallast á Lynetteholmen. Svíar hafa áhyggjur af því sem Danir ætla sér að gera við allan þennan leir.
Miklir leir­flutn­ingar af sjáv­ar­botni þurfa að eiga sér stað áður en hægt verður að byrja að mynda land­fyll­ing­una miklu við Kaup­manna­höfn sem kall­ast á Lynettehol­men. Svíar hafa áhyggjur af því sem Danir ætla sér að gera við allan þennan leir. Mynd: Kynningarefni danskra stjórnvalda.

Í októ­ber 2018 tók­ust tveir menn í hendur í danska for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þetta var vafa­lítið ekki eina handa­bandið í ráðu­neyt­inu í þessum mán­uði en kannski það mik­il­væg­asta. Menn­irnir tveir voru þeir Lars Løkke Rasmus­sen þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og Frank Jensen þáver­andi yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar. Með handa­band­inu inn­sigl­uðu þeir sam­komu­lag rík­is­ins og borg­ar­stjórnar Kaup­manna­hafnar um það sem for­sæt­is­ráð­herr­ann kall­aði „metn­að­ar­fyllstu fram­kvæmda­á­ætlun í sögu Dan­merkur“, fimm­tíu ára planið.

Þessi áætlun er í raun þrí­skipt en áður­nefnt handa­band var stað­fest­ing fyrsta hluta þess­arar miklu fram­kvæmdar, sem nefnd hefur verið Lynettehol­men. Um er að ræða land­fyll­ingu austan megin við núver­andi hafn­ar­mynni Kaup­manna­hafnar, gegnt Löngu­línu. Svæðið verður rúm­lega 200 hekt­arar á stærð og teng­ist Refs­haleøen. Gert er ráð fyrir að þarna verði um það bil 20 þús­und íbúðir auk fyr­ir­tækja. „Þetta er fimm­tíu ára plan“ sagði Lars Løkke Rasmus­sen. Miðað var við að þessu verk­efni yrði lokið árið 2070.

Lynettehol­men er eins­konar fram­hald af Refs­haleøen þar sem ætl­unin er að byggja 15 þús­und nýjar íbúðir. Á Refs­haleøen var skipa­smíða­stöðin Burmeister & Wain á árunum 1872 til 1996 þar sem fleiri en 10 þús­und manns störf­uðu um ára­tuga­skeið. Margar stórar bygg­ingar frá tíma B&W standa enn á þessu svæði, þar á meðal skemman sem notuð var fyrir Eurovi­son söngvakeppn­ina árið 2014.

[adspot]

Hinar tvær stór­fram­kvæmd­irnar í 50 ára plan­inu eru ann­ars vegar miklar fram­kvæmdir við Avedøre hólmann, við Kalvebod brúna og E20 hrað­braut­ina sem liggur við Kastrup flug­völl til Sví­þjóðar. Þarna á að setja níu hólma með land­fyll­ingum, sam­tals um 300 hekt­ara að stærð. Gert er ráð fyrir að á svæð­inu verði ein­göngu fyr­ir­tæki en ekki íbúð­ar­hús.

Þriðja stór­fram­kvæmdin í 50 ára plan­inu, og sú stærsta og kostn­að­ar­samasta, er göng sem liggja myndu frá Sjá­lands­brúnni gegnum Amager og Refs­haleøen (við Lynettehol­men) gegnum Norð­ur­höfn­ina og tengj­ast svo Hels­ingør hrað­braut­inni. Þessi fram­kvæmd myndi kosta tugi millj­arða danskra króna. Þegar, og ef af þess­ari fram­kvæmd verður, munu göngin létta veru­lega á umferð, ekki síst stórra flutn­inga­bíla, um tvö aðal­torg borg­ar­innar, Ráð­hús­torgið og Kóngsins Nýjatorg.

Lynetteholmen samþykktur í þinginu

Danska þingið, Fol­ket­inget, sam­þykkti 4. júní á síð­asta ári að ráð­ist skyldi í fyrsta hluta 50 ára áætl­un­ar­innar, land­fyll­ingar undir Lynettehol­men. Miklar umræður urðu um málið í þing­inu og ekki var ein­hugur um fram­kvæmd­ina meðal þing­manna. Ljóst var að kostn­að­ur­inn myndi hlaupa á millj­örðum danskra króna. Fram kom að ætl­unin væri að sala á landi, til fyr­ir­tækja, stæði undir kostn­aði við land­fyll­ing­arnar. Bréf sem danska sam­göngu­ráð­herr­anum hafði borist frá Svíþjóð vegna þess­ara fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda var ekki rætt í þing­inu, sem þó hefði kannski þótt ástæða til. Þingmenn vissu hins­vegar ekk­ert um þetta bréf en meira um það síðar.

Skóflustunga og leir

17. jan­úar síð­ast­lið­inn var fyrsta skóflustungan tekin vegna fram­kvæmda við Lynettehol­men. Sú athöfn var fyrst og fremst tákn­ræn því fyrsti hluti fram­kvæmd­anna, sem hófust nokkrum dögum fyrr, fer fram á sjónum utan við Refs­haleøen. Þetta fyrsta skref er að fjar­lægja leir af hafs­botn­inum á land­fyll­ing­ar­svæð­inu. Og það er ekk­ert smá­ræði, sam­tals um 2,5 millj­ónir kúbik­metra, þetta magn myndi fylla 70 þús­und flutn­ingagáma. Í umræðum á þing­inu kom fram að ætl­unin væri að moka leirnum upp í flutn­inga­skip, sem síðan sigldi með farm­inn suður í Kögeflóa (Køgebugt) og losa hann þar. Bréfið sem áður var getið, og þing­menn vissu ekki um þegar rætt var um leir­inn, snérist einmitt um þá ákvörðun að losa hann í Kögeflóa.[links]

Áhyggjur sænska umhverfisráðherrans

Í mars í fyrra skrif­aði Per Bolund þáver­andi umhverf­is­ráð­herra Sví­þjóðar, danska starfs­bróður sínum bréf þar sem hann gagn­rýndi og mót­mælti fyr­ir­ætl­unum um að demba í Kög­efló­ann leirnum sem mokað yrði upp af Lynetteholms­botn­inum. Þetta bréf lét Lea Wermelin umhverf­is­ráð­herra Dana undir höfuð leggj­ast að nefna á nafn í þing­inu þegar rætt var um leir­inn og los­un­ina. Í bréf­inu lýsti sænski ráð­herr­ann þungum áhyggjum sem los­unin myndi hafa á umhverfið. Hann fór fram á að beðið yrði með að losa leir­inn í Kög­efló­ann þangað til nán­ari rann­sóknir á hugs­an­legum afleið­ingum lægju fyrir. Það var ekki gert og nú hefur tæp­lega tíunda hluta af leirnum verið los­aður í Kög­efló­ann. Leir­los­un­ina var ætl­unin að vinna í áföngum, og áætlað var að halda leir­flutn­ingum áfram í haust. En nú er óljóst hvert fram­haldið verður.

Annað bréf frá Svíþjóð

Í mars sl. barst danska umhverf­is­ráð­herr­anum og sam­göngu­ráð­herr­anum annað bréf frá Svíþjóð. Það bréf var frá núver­andi umhverf­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Annika Strand­häll. Þar ítrek­aði ráð­herr­ann áhyggjur Svía vegna leirs­ins í Kögeflóa en nú gerð­ist það að danskir fjöl­miðlar komust í bréfið og í fram­haldi af því varð upp­víst um fyrra bréfið, sem eng­inn, utan danska umhverf­is­ráð­herr­ans hafði vitað um. Dönskum þing­mönnum var ekki skemmt þegar þeir komust að því að fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra hefði leynt bréf­inu frá Svíþjóð. Það er talið til marks um áhyggjur Svía að mjög sjald­gæft er að sænskir ráð­herrar skrifi bréf af þessu tagi og taki jafn sterkt til orða og þarna var gert.

Ráðherra vill nú skoða aðrar lausnir

Danskir fjöl­miðlar hafa und­an­farna daga fjallað ítar­lega um leir­málið, eins og þeir kalla það. Eftir hróker­ingar í dönsku rík­is­stjórn­inni heyrir Lynettehol­men fram­kvæmdin nú undir sam­göngu­ráðu­neytið. Trine Bramsen, núver­andi sam­göngu­ráð­herra hefur lýst yfir að hún vilji leita nýrra lausna í leir­mál­inu. Málið er á byrj­un­ar­reit en sér­fræð­ingar sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við telja besta kost­inn þann að grafa leir­inn á öruggum svæðum á landi. Slíkt myndi að mati sér­fræð­ing­anna kosta meira en hefði ekki sömu skað­legu áhrif á umhverfið. Trine Bramsen ráð­herra sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að nú myndi hún ásamt sér­fræð­ingum leggj­ast undir feld og ekk­ert yrði aðhafst í leir­mál­inu fyrr en ákvarð­anir lægju fyrir. Ráð­herr­ann sagð­ist ekki geta sagt til um hvenær það gæti orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár