Katrín: Verið að velja úr „hlaðborði aðgerða“ í húsnæðismálum

Bann við 40 ára verð­tryggðum lánum verður að fara saman við fram­boð á nýjum lána­mögu­leikum fyrir tekju­lága­hópa sam­fé­lags­ins. Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að fyr­ir­hugað bann við 40 ára verð­tryggðum jafn­greiðslu­lánum, sem samið var um í hinum svoköll­uðu lífs­kjara­samn­ingum í síð­ustu viku, verði að hald­ast í hendur við það að ný lán fyrir tekju­lága hópa komið fram.

Sem stendur er sér­stak­lega verið að horfa á svokölluð hlut­deild­ar­lán, eða eig­in­fjár­lán eins og þau voru kölluð af starfs­hópi félags- og barna­mála­ráð­herra sem skil­aði til­lögum í síð­ustu viku, fela í sér að ríkið verði í raun með­eig­andi að íbúðum sem lán­tak­end­urnir kaupa.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við for­sæt­is­ráð­herra í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í kvöld klukkan 21.

Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan:

Katrín segir þar að gagna­grunn­ur­inn sem stjórn­völd kynntu nýlega, Tekju­sagan, hafi dregið það mjög vel ann­ars vegar þróun ráð­stöf­un­ar­tekna og hins vegar gefnar stærðir hvað varðar hús­næð­is­stuðn­ing, barna­bætur og annað slíkt. „Þar kemur þetta mjög skýrt fram með tekju­lága hóp­inn sem er á leigu­mark­aði og er að nýta allt of stóran hluta af sínum ráð­stöf­un­ar­tekjum í hús­næði.“

Það sé þannig að meiri­hluti fólks á Íslandi hafi hug á því að kom­ast í eigin hús­næði. „Þar hafa verið þessir þrösk­uldar fyrir ungt tekju­lágt fólk.“

Vegna þessa var kynnt það sem Katrín kallar „hlað­borð aðgerða“ á vegum starfs­hóps á vegum félags- og barna­mála­ráð­herra í lok síð­ustu viku. Hægt er að lesa allt um þær til­lögur hér.

Nú standi yfir vinna hjá rík­is­stjórn­inni að velja þær aðgerðir af þessu hlað­borði sem hún telur væn­leg­ust til að lækka þrösk­ulda tekju­lágra hópa inn á hús­næð­is­markað. „Það hangir auð­vitað saman við það sem við boðum um að draga úr vægi verð­trygg­ingar. Að það séu ein­hverjir val­kostir fyrir fólk aðrir.“

Katrín segir að nýju lánin sem stefnt sé að verði ekki í boði fyrir alla og að vinna sé framundan með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins við að skil­greina hvaða hópar muni eiga rétt á þeim.

Aðspurð um hvort að fyr­ir­hug­aðar aðgerðir stjórn­valda í hús­næð­is­málum séu fjár­magn­aðar sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun segir Katrín að það sé horft til Íbúða­lána­sjóðs sem aðila sem hafi ákveðnu félags­legu hlut­verki að gegna þar. „Þannig að þetta birt­ist kannski ekki sem bein útgjöld að hálfu rík­is­ins í fjár­mála­á­ætlun heldur í gegnum Íbúða­lána­sjóð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár