„Dapurlegt“ að sjá Róbert Spanó taka við nafnbót í Tyrklandi

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi for­stjóra Lýð­ræð­is- og mann­rétt­inda­stofn­unar ÖSE, þótti „dap­ur­legt“ að sjá Róbert Spanó, for­seta MDE taka við heið­ur­dokt­ors­nafn­bót í Tyrk­landi á dög­unum.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir. Mynd: EPA

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir segir að sér þyki „dap­ur­legt“ að fylgj­ast með heim­sókn Róberts Spanó, for­seta Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu til Tyrk­lands. „Hann ætti að vita það manna best að það vantar mikið upp á að mann­rétt­indi séu virt og farið sé að reglum rétt­ar­rík­is­ins í Tyrk­landi,“ ritar Ingi­björg Sólrún á Facebook, en Róbert tók í vik­unni við heið­urs­dokt­ors­nafn­bót frá Istanbúl-háskóla og hefur verið gagn­rýndur fyrir.

Ingi­björg Sólrún segir að nú þegar fjögur ár séu liðin frá valda­ránstil­raun­inni í Tyrk­landi sé enn verið að ásaka emb­ætt­is­menn, dóm­ara, fræði­menn, blaða­menn, kven­frels­is­konur, mann­rétt­inda­fröm­uði og fleiri um að vera hand­bendi hryðju­verka­sam­taka – oftar en ekki vegna þess eins að þau lýsa yfir skoðun sem gengur gegn stefnu AKP-flokks­ins sem Erdogan Tyrk­lands­for­seti leiðir.

„Óvíða eru jafn margir blaða­menn á bak við lás og slá og fjöld­inn allur af dóm­urum og háskóla­kenn­urum hafa verið reknir og sóttir til saka á þeirri for­sendu að þeir séu hlið­hollir hryðju­verka­mönnum,“ skrifar Ingi­björg Sólrún, sem sjálf bjó í Tyrk­landi þegar valda­ránstil­raunin var gerð og seg­ist hún gera sér mjög vel grein fyrir alvöru þeirrar árásar.

[adspot]

Hún segir það þó óverj­andi að nota valda­ránstil­raun­ina sem „afsökun fyrir því að ásækja alla þá sem bjóða póli­tískum rétt­trún­aði AKP flokks­ins byrg­inn og útmála þá sem hryðju­verka­menn. Ég neit­aði að taka þátt í því hjá ODIHR og tyrk­neskum stjórn­völdum fannst ég eiga að gjalda fyrir það með stöðu­missi. Það er í takt við annað,“ segir Ingi­björg Sólrún, en eins og hún ræddi við Kjarnann í kjöl­far þess að hún lét skyndi­lega af störfum hjá ÖSE beittu Tyrkir sér gegn því, ásamt Tadsík­istum, að hún yrði end­ur­ráðin sem for­stjóri Lýðræðis- og mann­rétt­inda­stofn­unar ÖSE.[links]

Ástæðan fyrir því að Ingi­björg Sólrún var ekki í náð­inni hjá Tyrk­landi og Tads­ík­­ist­an var að hennar sögn sú að hún var ekki til­búin að skil­greina ákveðin félaga­sam­tök sem hryðju­verka­sam­tök.

Segir Róbert hafa tekið þátt í hvítþvætti

„Nú kemur for­seti Mann­rétt­inda­dóms­stóls­ins til Tyrk­lands, hittir for­set­ann og aðra ráða­menn og þiggur heið­urs­dokt­ors­nafn­bót úr þeirra hendi en mann­rétt­inda­fröm­uð­urnir, gagn­rýnu blaða­menn­irnir og full­trúar frjálsu félaga­sam­tak­anna fá hvergi að koma nærri. Inn á við í Tyrk­landi virkar þetta auð­vitað eins og hvít­þvottur og til þess eru ref­irnir skornir,“ segir Ingi­björg Sólrún og gagn­rýnir jafn­framt þau svör sem Róbert Spanó hefur veitt fjöl­miðlum aðspurður út í gagn­rýn­is­raddir, en hann hefur sagt að hefð sé fyrir því að for­setar MDE þiggi heið­urs­nafn­bætur frá ýmsum aðild­ar­löndum og slíku boði hafi aldrei verið hafnað.

„Róbert Spanó segir að það sé hefð fyrir því að for­seti Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins þiggi heið­urs­dokt­ors­nafn­bót en mér er til efs að það sé hefð fyrir að þiggja hana í ríki þar sem staða mann­rétt­inda er með þessum hætti og hið akademíska frelsi jafn bág­borið og það er í Tyrk­landi,“ segir Ingi­björg og bendir á að í Tyrkland sé á meðal þeirra ríkja sem verst standi í sam­an­burði á akademísku frelsi.

„Mér er nær að halda að það hafi verið for­dild en ekki hefð sem réði því að Róbert Spanó þáði þessa veg­tyllu,“ ritar Ingi­björg Sólrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindadómstóll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár