Íslenska ríkið fær frest til 14. desember til að svara í Landsréttarmálinu

Lögmaður kær­anda í Lands­rétt­ar­mál­inu, sem er í flýti­með­ferð fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, skil­aði athuga­semdum og bótakrófu til dóm­stóls­ins í gær­kvöldi. Í morgun var dóm­stól­inn búinn að senda íslenska rík­inu bréf og kalla eftir frek­ari svörum.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur sent íslenska rík­inu bréf í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða og gefið því frest til 14. des­em­ber til að svara athuga­semdum og bóta­kröfu í máli manns sem vill meina Arn­fríður Ein­ars­dóttir sé van­hæf til að dæma í Lands­rétti.

Kær­and­inn í mál­inu er maður sem ákærður hafði verið fyrir marg­vís­leg brot og átti að koma fyrir Lands­rétt.

[links]Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­son, verj­andi manns­ins, lagði hins vegar fram kröfu í Lands­rétti þann 2. febr­úar síð­ast­lið­inn um að Arn­­fríður, sem átti að dæma í mál­inu, væri van­hæf í ljósi þess að hún hefði ekki verið skipuð með réttum hætti í emb­ætti. Lands­réttur hafn­aði kröfu Vil­hjálms og sagði að skipun Arn­fríðar yrði ekki haggað.

Vil­hjálmur kærði þá nið­ur­stöðu til Hæsta­réttar sem komst að sömu nið­ur­stöðu og Lands­réttur. Þann 24. maí 2018 stað­festi Hæsti­réttur svo dóm Lands­réttar í mál­inu og skjól­stæð­ingur Vil­hjálms var dæmdur í 17 mán­aða fang­elsi.

Vil­hjálmur kærði í kjöl­farið þá nið­ur­stöðu að seta Arn­fríðar í Lands­rétti væri í sam­ræmi við lög til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hann ákvað að taka málið fyrir í lok júní og veita því flýti­með­ferð.

[adspot]Rík­is­lög­maður skil­aði í haust grein­ar­gerð til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins vegna máls­ins og svar­aði í henni tveimur spurn­ingum hans í löngu máli.

Vil­hjálmur skil­aði athuga­semdum við mála­til­búnað íslenska rík­is­ins og bóta­kröfu til dóm­stóls­ins í gær­kvöldi. Í morgun hafði bréf borist til til íslenska rík­is­ins þar sem því var gefin áður­nefndur frestur til 14. des­em­ber til að svara að nýju. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans snýst bótakrafan sem er sett í mál­inu um greiðslu á lög­manns­kostn­aði og miska­bóta.

Ráðherra braut stjórnsýslulög

Arn­­fríður var einn fjög­­urra umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara vil Lands­rétt sem dóms­­mála­ráð­herra lagði til að yrði skipuð í stað þeirra fjög­­urra sem sér­­­stök dóm­nefnd mat hæf­asta. Hæsti­réttur Íslands komst svo að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber 2017 að dóms­mála­ráð­herra hefði brotið stjórn­sýslu­lög með því að sinna ekki rann­sókn­ar­skyldu sinni með nægj­an­legum hætti þegar hún ákvað að skipta út þeim umsækj­endum sem metnir höfðu verið hæf­astir af dóm­nefnd­inni.

Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn ákvað, líkt og áður sagði, að taka kæruna til með­ferðar í lok júní 2018 og fór fram á skýr­ingar frá íslenska rík­inu. Spurn­ingar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins til íslenska rík­is­ins voru í tveimur lið­um. Þar var ann­ars vegar spurt hvernig það sam­rým­ist ákvæði mann­rétt­inda­sátt­mála að skipun dóm­ara hafi ekki fylgt þeim ákvæðum laga að Alþingi skuli greiða atkvæði um hvert og eitt dóm­ara­efni fyrir sig, í stað þess að greiða atkvæði um til­lögu ráð­herr­ans í heild eins og gert var. Hins vegar var spurt um nið­ur­stöðu Hæsta­réttar frá í maí í sam­hengi við fyrri dóm Hæsta­réttar um brot ráð­herr­ans á lögum við skip­un­ina. Með öðrum orðum vildi Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn vita hvernig ólög­leg skipan dóm­ara geti hald­ist í hendur við þá nið­ur­stöðu að sömu dóm­arar sitji lög­lega í rétt­in­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindadómstóll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár