Sigríður kallar MDE „nefnd“ sem hafi gert atlögu gegn íslensku dómskerfi

Fyrr­ver­andi dóm­stóla­ráð­herra sakar dóm­ara við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu um atlögu gegn dóms­kerfi Íslend­inga. Um sé að ræða „póli­tískt at“. Umboð Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins á Íslandi sé ekk­ert.

„Þess vegna voru mér það sár von­brigði að sjá íslensk stjórn­mál, fjöl­miðla og rétt­ar­kerfið falla á kné þegar erlend nefnd sem ekk­ert umboð hefur frá sjálf­stæðum Íslend­ingum gerði atlögu að dóms­kerfi okkar Íslend­inga.“

Þetta segir Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hún fjallar um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í mars síð­ast­liðnum, um að hún og Alþingi hafi skipað fjóra dóm­ara í Lands­rétt með ólög­mætum hætti. Sigríður þurfti að segja af sér emb­ætti dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins.

Þar segir Sigríður enn fremur að aldrei áður í sögu lýð­veld­is­ins hefðu hand­hafi fram­kvæmda­valds, hand­hafar lög­gjaf­ar­valds og hand­hafar dóms­valds á Íslandi, auk for­seta Íslands, fest nýja stofnun í sessi með jafn afger­andi hætti og gert var með Lands­rétt. „Lands­réttur og dóm­ar­arnir fimmtán sem rétt­inn skipa hafa ein­stakan stuðn­ing þeirra er málið varðar. Ég treysti því að þegar frá líður verði litið á þessa atlögu frá póli­tísk kjörnum dóm­urum í Strass­borg með sömu augum og minni­hlut­inn gerði. Sem umboðs­laust póli­tískt at.“

Áfelli yfir Sigríði og Alþingi

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu féll þriðju­dag­inn 12. mars síð­ast­lið­inn. Í honum fengu bæði Sig­ríður Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, og Alþingi á sig áfell­is­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. Sig­ríður fyrir að hafa brotið stjórn­sýslu­lög með því að breyta list­anum um til­nefnda dóm­ara frá þeim lista sem hæf­is­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­styðja þá ákvörðun með nægj­an­legum hætti.

Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig. Sig­ríður sagði af sér emb­ætti dag­inn eftir dóm­inn og óvissa ríkir um starf­semi milli­dóm­stigs­ins vegna dóms­ins.

Í dag er staðan sú að þeir fjórir dóm­arar sem Sigríður ákvað að setja á list­ann yfir þá sem ætti að skipa í Lands­rétt, en höfðu ekki verið metnir á meðal 15 hæf­ustu af hæf­is­nefnd, dæma ekki í nokkrum málum.

Á meðal þeirra lög­manna sem tjáð hafa sig um málið er Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir, lög­maður hjá Rétti.

Í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í mars sagði hún að í öllu ferl­inu, alveg frá því að það var verið að skipa dóm­ar­anna í sum­ar­byrjun 2017, hafi við­vör­un­ar­bjöllur hringt, margir sett út á ferlið og miklar deil­ur. „Þegar á þeirri stundu hefði ráð­herr­ann átt að hugsa „Heyrðu, ef að illa fer hér þá verður kata­st­rófa. Við skulum gera allt sem við getum gert til að lag­færa ferlið ef það þarf og gea það skot­helt til að kata­st­rófan verði ekki“. Í sein­asta lagi hefði ráð­herr­ann átt, um leið og fyrir lá að dóm­stól­inn ætl­aði að dæma í mál­inu, og málið komið í gegnum allar þessar síur, um leið og þetta liggur fyrir þá átti ráð­herr­ann að skipa starfs­hóp á núll einni. Okkar helstu og bestu sér­fræð­inga til þess að vera viss um hvað við ætl­uðum að gera dag­inn eftir dóm ef að kata­st­rófan myndi ger­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindadómstóll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár