Ríkið fær frest í Landsréttarmálinu

Íslenska ríkið hefur fengið frest til að skila svörum sínum við spurn­ingum Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu vegna Lands­rétt­ar­máls­ins svo­kall­aða fram í sept­em­ber.

Íslenska ríkið hefur fengið frest til 20. sept­em­ber næst­kom­andi til að skila svörum sínum við spurn­ingum Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu vegna Lands­rétt­ar­máls­ins svo­kall­aða sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

[links]Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn ákvað í júní að taka kæru vegna Lands­rétt­ar­máls­ins til með­ferðar og fór fram á svör við ákveðnum spurn­ingum frá íslenska rík­inu.

Meðal ann­ars var spurt að því hvernig það sam­rým­ist ákvæði mann­rétt­inda­sátt­mála, að skipun dóm­ara hafi ekki fylgt þeim ákvæðum laga að Alþingi skuli greiða atkvæði um hvert og eitt dóm­ara­efni fyrir sig, í stað þess að greiða atkvæði um til­lögu ráð­herr­ans í heild eins og gert var. Einnig er spurt um nið­ur­stöðu Hæsta­réttar frá í maí í sam­hengi við fyrri dóm Hæsta­réttar um brot ráð­herr­ans á lögum við skip­un­ina. Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn vill þannig svör við því, hvernig ólög­leg skipan dóm­ara geti hald­ist í hendur við þá nið­ur­stöðu að sömu dóm­arar sitji lög­lega í rétt­inum.

Íslenska ríkið fékk frest til 18. ágúst til að svara erindi dóm­stóls­ins. Sá frestur hefur nú verið lengdur fram í sept­em­ber.

Málið er að fá afar skjóta máls­með­ferð fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum, enda þess eðlis að það getur bæði verið for­dæm­is­gef­andi og mögu­lega haft afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir rétt­ar­kerfi ein­stakra ríkja eða álf­unnar allrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindadómstóll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár