Róbert Spanó kjörinn forseti Mannréttindadómstóls Evrópu

47 ára Íslend­ingur er orð­inn for­seti Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Róbert Spanó.
Róbert Spanó. Mynd: Skjáskot

Íslend­ing­ur­inn Róbert Spanó var í dag kjör­inn for­seti Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hann tekur við emb­ætt­inu 18. maí næst­kom­andi. Frá­far­andi for­seti dóm­stóls­ins er Linos-Alex­andre Sicilianos frá Grikk­landi sem lauk níu ára skip­un­ar­tíma­bili sínu í ár.

Róbert var kjör­inn vara­for­seti dóm­stóls­ins fyrir rúmu ári síðan, eða 1. apríl 2019.

Hann var áður for­seti sinnar dóm­deildar frá því í maí 2017 og sat meðal ann­ars í dómnum sem dæmdi íslenska rík­inu í óhag í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Róbert sat í yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sem hlust­aði á mál­flutn­ing í mál­inu í febr­úar síð­ast­liðnum og mun sitja þar áfram eftir að hann tekur við sem for­seti.

[adspot]Róbert fædd­ist í Reykja­vík þann 27. ágúst árið 1972.Hann útskrif­að­ist með gráðu í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og með masters­gráðu með áherslu á Evr­ópu­rétt og sam­an­burð­ar­lög­fræði frá Oxford-háskóla árið 2000.

Róbert vann sem vara­dóm­ari í hér­aðs­dómi árin 1997-1998 og var lög­fræði­ráð­gjafi og síðan aðstoð­ar­maður Umboðs­manns Alþingis frá 1998 til 2004. Hann var útnefndur Umboðs­maður Alþingis til bráða­birgða árið 2009 á meðan Tryggvi Gunn­ars­son starf­aði í rann­sókn­ar­nefnd um banka­hrunið. Róbert gegndi stöðu umboðs­manns til árs­ins 2013.

Árið 2009 var Róbert for­maður nefndar sem falið var að taka íslensk umferð­ar­lög til heild­ar­end­ur­skoð­unar og semja frum­varp til nýrra umferð­ar­laga.

Róbert var skip­aður laga­pró­fessor við Háskóla Íslands í nóv­em­ber árið 2006. Í sept­em­ber 2007 var hann kjör­inn vara­for­seti laga­deildar skó­lands og var síðar for­seti deild­ar­innar frá 2010 til 2013.

Róbert hóf níu ára tíma­bil sem dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu þann 1. nóv­em­ber árið 2013. Hann hefur skrifað mikið um mann­rétt­inda­lög, stjórn­lög, laga­túlkun og með­ferð saka­mála.

Mannréttindasáttmálinn lögfestur hér 1994

Ísland gekkst undir Mann­rétt­inda­sátt­mál­a Evrópu að þjóða­rétti árið 1953 en sam­kvæmt tví­eðlis­kenn­ingu þjóða­réttar hafði hann því ekki bein laga­leg áhrif hér á landi í rúm 40 ár eða fram að lög­fest­ingu árið 1994. Í kjöl­far lög­fest­ing­ar­innar var mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar breytt árið 1995 í sam­ræmi við sátt­mál­ann. Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu er síðan ætlað að tryggja að aðild­ar­ríki Evr­ópu­ráðs­ins virði þau rétt­indi sem kveðið er á um í sátt­mál­an­um.

Dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins eru þó ekki bind­andi að íslenskum lands­lögum og hafa þannig ekki bein og milli­liða­laust rétt­ar­á­hrif að íslenskum rétti. Sam­kvæmt athuga­semdum með frum­varpi að stjórn­skip­un­ar­lög­unum 1995 var þó reiknað með að dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins myndu hafa leið­sagn­ar­gildi við skýr­ingu mann­rétt­inda­á­kvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindadómstóll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár