Katrín: Fleiri aðgerðir í undirbúningi

For­sæt­is­ráð­herra segir að stjórn­völd muni gera allt sem þau geta til að tryggja að Ísland kom­ist í gegnum þann efna­hags­lega skafl sem blasir við. Tryggja á lífs­af­komu, hjálpa fyr­ir­tækjum, verja grunn­stoðir og ná svo við­spyrnu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Þetta ástand er ekki eilíft. Það skiptir hins vegar máli hvernig við höldum á spil­unum hversu langvar­andi það verður. Þess vegna skiptir máli að við gerum allt það sem við getum til þess að tryggja að við komumst í gegnum skafl­inn, þannig að þegar þessu stríði er lokið, þá verðum við fljót að spyrna við. “

[links]Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í Kast­ljósi í kvöld þar sem hún ræddi meðal ann­ars þær efna­hags­legu afleið­ingar sem eru að teikn­ast upp vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Aðspurð hvernig íslenska ríkið væri í stakk búið til að takast á við þessa stöðu og hvenær væri von á að sjá þær aðgerðir sem gripið verði til benti Katrín á að fyrstu aðgerðir hefðu verið kynntar fyrir nákvæm­lega viku síðan. „Mér finnst eins og það sé svona ár síðan, það er svo mikið búið að ger­ast.“

Katrín stað­festi að frek­ari efna­hags­að­gerðir væru í und­ir­bún­ingi, en Kjarninn greindi frá því í gær að slíkar yrðu vænt­an­lega kynntar í vik­unni. Heim­ildir Kjarnans herma að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, hafi boðað það á fundi með þing­flokks­for­mönnum í dag að svo­kall­aður band­ormur frá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, væri vænt­an­legur í lok viku inn á þingið. Slíkur band­ormur er sam­an­safn breyt­inga á ýmsum lögum og við­mæl­endur Kjarnans eru sam­mála um að hann verði lagður fram eftir að aðgerð­ar­pakki rík­is­stjórn­ar­innar verður kynntur. Því sé lík­legt að það stytt­ist í kynn­ingu á honum.

Ætla að ná fram fernum markmiðum

Katrín sagði að stjórn­völd þyrfti að gera fernt með aðgerðum sínum. „Stóru mark­miðin í þeim eru í fyrsta lagi að tryggja lífs­af­komu fólks. Alþingi var í dag að ræða frum­varp um hluta­bætur, það mun taka breyt­ingum.[...]Við erum að tryggja að lífs­af­koma fólks sé tryggð og að það geti haldið ráðn­ing­ar­sam­band­inu við sinn vinnu­veit­anda.

[adspot]Við þurfum að ráð­ast í aðgerðir til þess að styðja við fyr­ir­tækin vegna þess að þau auð­vitað halda uppi atvinnu­líf­inu í þessu landi. Þar vinnur allt fólkið í land­inu. Við þurfum sömu­leiðis að verja grunn­stoðir atvinnu­lífs­ins.[...]Í fjórða lagi þurfum við að gefa í í fjár­fest­ingu til að tryggja að hag­kerfið nái ákveð­inni við­spyrnu.“

Allir skynja alvarleikann

For­sæt­is­ráð­herra sagði að Icelandair væri að horfa framan í aðstæður þar sem flug sé nán­ast að leggj­ast af. En þreng­ing­arnar sem væru framundan væru ekki ein­ungis bundnar við ferða­þjón­ustu. Til að mynda værum við að flytja út fisk á veit­inga­staði sem fæstir væru nú opnir á okkar helstu mörk­uðum.

Þegar Katrín var spurð af því hvort að það yrði póli­tískur óstöð­ug­leiki hér í nán­ustu fram­tíð sagði hún það vera algjört val hvort að svo yrði. „Það verða gerð mis­tök í þessu ferða­lagi eins og öðru.“ Hún hafi í dag fundað með for­svars­mönnum launa­fólks og atvinnu­lífs í dag og að það hafi verið dýr­mæt sam­töl. Allir skynji alvöru máls­ins, líka full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár