Kristín Margrét Kristmannsdóttir

Vill tækifæri til að komast aftur inn í samfélagið
Viðtal

Vill tæki­færi til að kom­ast aftur inn í sam­fé­lagið

Unnur Regína Gunn­ars­dóttir fékk reglu­lega að heyra að hún væri kvíðin ung kona á meðan hún barð­ist í fimm ár eftir því að fá rétta grein­ingu. Nú er hún greind með sjald­gæfan sjúk­dóm og sér sjálf um að halda utan um með­ferð­ina, þegar hún á eig­in­lega alveg nóg með að takast á við afleið­ingar veik­ind­anna. Hún þráir að ná bata og kom­ast aftur út í sam­fé­lagið, fara að vinna og verða að gagni, eins og hún orðar það, 27 ára gömul kona sem búið er að skil­greina sem öryrkja.
„Úr persónulegu helvíti yfir í stórkostleg ævintýri“
Viðtal

„Úr per­sónu­legu hel­víti yfir í stór­kost­leg ævin­týri“

Lista­mað­ur­inn Jakob Veigar Sig­urðs­son var kom­inn í gjald­þrot, and­lega og fjár­hags­lega, og allt sem áður skipti máli var farið. Hann varð fyrir áhrifa­mik­illi reynslu þegar hann rank­aði við sér eftir þriggja daga óminn­is­á­stand, sem varð upp­hafið að því að líf hans breytt­ist úr per­sónu­legu hel­víti yfir í stór­kost­legt ævin­týri. Nú ferð­ast hann um heim­inn með pensla á lofti og kær­leik að vopni.
„Þarna missti ég mömmu mína en eignaðist systur“
Viðtal

„Þarna missti ég mömmu mína en eign­að­ist systur“

Íris Krist­ins­dóttir var ein þekktasta söng­kona lands­ins áður en hún hvarf af sjón­ar­svið­inu. Hún segir hér frá því hvernig hún brann út og rataði nið­ur­brotin í fang ofbeld­is­manns, glímdi við sáran missi og upp­lifði óvænta gleði þegar hún fann ást­ina á ný, eign­að­ist tví­bura og tengd­ist systur sinni á dán­ar­beði móð­ur­innar, sem neit­aði að deyja fyrr en fjöl­skyldan hefði sam­ein­ast.
Frelsaði sig frá fortíðinni
Viðtal

Frelsaði sig frá for­tíð­inni

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Davíð Arnar Odd­geirs­son var staddur í vinnu­ferð erlendis þegar honum var byrluð ólyfjan og hann mis­not­aður kyn­ferð­is­lega. Eftir að hann sagði frá ofbeld­inu mætti hann þögn, sem varð til þess að hann ræddi ekki aftur um ofbeldið næstu árin. Sex árum síðar ákvað hann að horfast í augu við sárs­auk­ann og heila brostið hjarta. Síðan þá hefur hann aldrei verið sterk­ari. Honum tókst ekki aðeins að öðl­ast frelsi frá for­tíð­inni heldur finna til­gang með sárs­auk­anum og umbreyta honum í eitt­hvað ótrú­lega gott.
„Ég hef sagt upp reiðinni“
Viðtal

„Ég hef sagt upp reið­inni“

Í sex ár kvald­ist Kolbrún Ósk­ars­dóttir vegna mis­taka sem gerð voru í aðgerð sem hún gekkst undir. Sárs­auk­inn var svo mik­ill að hún gerði tvær til­raunir til að binda enda á líf sitt. Hún fann sína lífs­björg á Kleppi og gekkst svo undir vel heppn­aða stofn­frumu­með­ferð í Banda­ríkj­unum. Nú horfir hún björtum augum til fram­tíðar, þótt bar­áttan fyrir bættri heilsu sé rétt að byrja.
Eldar hollan mat sem börnin elska
Uppskrift

Eldar hollan mat sem börnin elska

Heil­næmar og hollar mat­ar­venjur barna standa nærri hjarta Magneu Guðnýjar Ferdin­ands­dóttur, sem fyrir fjórtán árum fann ástríðu sinni far­veg í starfi þegar hún réð sig sem mat­ráð á Leik­skól­anum Reyn­is­holti. Þar töfrar hún fram hina ýmsu græn­met­is­rétti og hreina fæðu sem falla vel í kramið hjá börn­unum. Hún hefur helgað sig nær­ingu ungra barna og segir aldrei of seint að breyta mat­ar­venjum barna til góðs.
Flestir lifa af barnsmissi en enginn verður samur
Lífið

Flestir lifa af barns­missi en eng­inn verður samur

Einn dag­inn var Hildur Óla­dóttir á leið út úr dyr­unum þegar hún fann að eitt­hvað var að, það var sem hún væri með kveikju­þráð innra með sér sem sífellt stytt­ist í þar til hún sprakk, brotn­aði niður og hágrét. Langan tíma tók að greina hana með kulnun sem má rekja til röð áfalla og streitu, en eftir barns­missi varð lífið aldrei samt. Hún fann sig á ný með því að gera upp hús í gamla þorp­inu sínu á Kópa­skeri þar sem hún hyggst reka ferða­þjón­ustu, með heitum pottum, sjó­böðum og litlum bát í höfn­inni.

Mest lesið undanfarið ár