„Ég hef sagt upp reiðinni“

Í sex ár kvald­ist Kolbrún Ósk­ars­dóttir vegna mis­taka sem gerð voru í aðgerð sem hún gekkst undir. Sárs­auk­inn var svo mik­ill að hún gerði tvær til­raunir til að binda enda á líf sitt. Hún fann sína lífs­björg á Kleppi og gekkst svo undir vel heppn­aða stofn­frumu­með­ferð í Banda­ríkj­unum. Nú horfir hún björtum augum til fram­tíðar, þótt bar­áttan fyrir bættri heilsu sé rétt að byrja.

„Ég hef sagt upp reiðinni“

Þegar Erla Kolbrún Ósk­ars­dóttir var ung og hraust kona í blóma lífs­ins var fót­unum kippt undan henni. Hún hafði geng­ist undir skurð­að­gerð við enda­þarms­sigi en missti í kjöl­far þess heils­una, sem hún rekur til alvar­legrar van­rækslu lækn­is­ins sem fram­kvæmdi aðgerð­ina. Við tók sex ára tíma­bil sem ein­kennd­ist af óbæri­legum sárs­auka og sá Erla Kolbrún sér ekki annan kost en að svipta sig lífi. Hún þráði heit­ast að fá að sofa svefn­inum langa. Í dag hefur hún, vegna góð­vilja Íslend­inga sem tóku sig saman og söfn­uðu fé fyrir hana, geng­ist undir árang­urs­ríka stofn­frumu­með­ferð í Banda­ríkj­unum. Hún segir með­ferð­ina hafa bætt lífs­gæði hennar til muna en hún sé þó hvergi nærri hætt að berj­ast fyrir bættum lífs­gæðum. Baráttan fyrir heils­unni sé rétt hafin.  

Fundinn sekur um vanrækslu

Erla Kolbrún tók ákvörðun á vissum tíma­punkti um að láta mót­vind­inn ekki fella sig heldur blása styrk í hjarta sitt og sál. Barátta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár