Rekur bakarí í Kambódíu

Kristín Bára Har­alds­dóttir býr í Kambódíu þar sem hún kennir konum list­ina að baka og færir börnum sem búa við sára­fá­tækt smákökur.

Rekur bakarí í Kambódíu
Kristín Bára við morg­un­verkinHér er bakað í stórum mæli.

Ævin­týra­þráin hefur náð að lokka Kristínu Báru þvert yfir lönd og höf, alla leið að ströndum Kambódíu, lands­ins sem hefur hel­tekið hjarta hennar, kúvent lífs­sýn­inni og gert til­veru hennar rík­ari á svo marga vegu. Hún féll kylli­flöt fyrir land­inu, að sögn var það ást við fyrstu sýn. Það var ekki aftur snúið og ákvað Kristín ásamt manni sínum, Adrian Cowen, að stíga út fyrir þæg­ind­ara­mmann og byggja sér hús þar ytra. Þau óraði ekki fyrir því þegar þau tóku fyrstu skóflustung­una að nokkrum árum síðar myndu þau verja drjúgum hluta árs­ins á frum­stæðan hátt án nokk­urs raf­magns. Þar rekur hún bak­arí og gefur börnum sem búa við sára­fá­tækt smákökur. „Það getur vissu­lega tekið á að horfa upp á neyð­ina en við reynum að gera það sem í okkar valdi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár