Flestir lifa af barnsmissi en enginn verður samur

Einn dag­inn var Hildur Óla­dóttir á leið út úr dyr­unum þegar hún fann að eitt­hvað var að, það var sem hún væri með kveikju­þráð innra með sér sem sífellt stytt­ist í þar til hún sprakk, brotn­aði niður og hágrét. Langan tíma tók að greina hana með kulnun sem má rekja til röð áfalla og streitu, en eftir barns­missi varð lífið aldrei samt. Hún fann sig á ný með því að gera upp hús í gamla þorp­inu sínu á Kópa­skeri þar sem hún hyggst reka ferða­þjón­ustu, með heitum pottum, sjó­böðum og litlum bát í höfn­inni.

Röð áfalla varð þess vald­andi að sorgin ruddi sér leið inn í hjarta Hildar Óla­dóttur, festi þar rótum og kippti síðar undan henni fót­unum. Á dimm­ustu dög­unum ákall­aði hún son sinn og föður sem báðir voru látnir. Með táraflaum­inn streym­andi ofan í kodd­ann, sam­an­hnipruð í fóst­ur­stell­ing­unni faðm­aði hún þétt­ings­fast að brjósti sér mynd af syni sínum og föður. Hún bað þá um að breiða út arma sína og leyfa sér að koma til þeirra. Hildur gat ekki afborið meiri sorg í þess­ari jarð­vist og var til­búin til þess að yfir­gefa hana, hún þráði hvíld, hún gat ekki meir. Ekkaþung tárin hættu ekki að streyma ofan í kodd­ann þar til hún að lokum sofn­aði. Hún vakn­aði nokkrum stundum síðar, horfði á mynd af eft­ir­lif­andi börnum sínum sem köll­uðu til hennar: „Mamma! Þú mátt ekki gleyma okkur, við erum hér!“

Barns­miss­ir­inn er stærsta áfallið í lífi Hildar, sem síðar átti stóran …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár