Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Ritstjóri

Systur lýsa ofbeldi móður sinnar
ViðtalKynbundið ofbeldi

Systur lýsa ofbeldi móður sinnar

„Ég var ekki orðin tíu ára þegar ég var farin að fara út með systur mína á sleða seinni part­inn og segja henni að horfa til stjarn­anna, því við gætum alltaf óskað okkur betri tíðar,“ segir Linda María Guð­munds­dóttir. Hún og systir hennar, Sveindís Guð­munds­dóttir, segja að móðir þeirra hafi beitt ofbeldi en hún hafnar ásök­unum og segir dætur sínar ljúga. Faðir þeirra vildi ekki tjá sig í sam­tali við Stundina.
„Ekkert réttlæti í réttarkerfinu“
FréttirKynbundið ofbeldi

„Ekkert rétt­læti í rétt­ar­kerf­inu“

„Hvað er að mér að taka fokk­ing vid­eoið,“ sagði maður sem Júlía Birg­is­dóttir kærði fyrir að taka upp kyn­lífs­mynd­band af þeim og dreifa á net­inu. Hann lýsir sig sak­lausan en á milli þeirra hafa gengið skila­boð þar sem hann seg­ist ekki muna eftir þessu, en við­ur­kennir að hafa tekið upp mynd­bandið og biðst afsök­unar á því. Júlía höfð­aði jafn­framt einka­mál á hendur honum en því var vísað frá fyrir hér­aðs­dómi. Hún hefur kært þá nið­ur­stöðu. Nú vill hún að hefnd­arklám verði skil­greint í hegn­ing­ar­lögum en fyrir liggur frum­varp á Alþingi þess eðlis.
Konan mín  beitti mig ofbeldi
Viðtal

Konan mín beitti mig ofbeldi

„Þegar talað er um heim­il­is­of­beldi er yfir­leitt verið að lýsa svo svaka­lega ljótum hlutum þar sem sterkir menn berja litlar konur í buff. Þetta var ekk­ert í lík­ingu við það. En þetta var samt hræði­legt,“ segir Dofri Her­manns­son. Hann seg­ist hafa búið í sextán ár með konu sem hafi beitt and­legu og lík­am­legu ofbeldi. Eftir skilnað hafi hann viljað leggja það að baki sér, en nú sé hann að missa sam­bandið við eldri börnin og það geti hann ekki sætt sig við.
Stúlka kærð  fyrir að kæra lögreglumann fyrir nauðgun
Fréttir

Stúlka kærð fyrir að kæra lög­reglu­mann fyrir nauðgun

Tanja M. Ísfjörð leit­aði til lög­regl­unnar eftir heim­sókn á hót­el­her­bergi eldri manns sem hún þekkti og treysti, en hann var fyrr­ver­andi öku­kenn­ari hennar og starf­aði fyrir lög­regl­una. Hún kærði hann fyrir nauðgun, en eftir að rík­is­sak­sókn­ari vís­aði mál­inu frá kærði mað­ur­inn hana fyrir rangar sak­ar­giftir. Málið er til með­ferðar hjá lög­reglu.

Mest lesið undanfarið ár