Mynd: Kristinn Magnússon

Systur lýsa ofbeldi móður sinnar

„Ég var ekki orðin tíu ára þegar ég var farin að fara út með systur mína á sleða seinni part­inn og segja henni að horfa til stjarn­anna, því við gætum alltaf óskað okkur betri tíðar,“ segir Linda María Guð­munds­dóttir. Hún og systir hennar, Sveindís Guð­munds­dóttir, segja að móðir þeirra hafi beitt ofbeldi en hún hafnar ásök­unum og segir dætur sínar ljúga. Faðir þeirra vildi ekki tjá sig í sam­tali við Stundina.

Sextán ára gömul pakk­aði hún ein­hverjum fötum í flýti ofan í skóla­tösk­una sína, lædd­ist út úr her­berg­inu sínu þegar mamma hennar heyrði ekki til hennar og gekk út af heim­il­inu. Hún var farin að heiman, fyrir fullt og allt.„Ég var komin út á götu þegar mamma upp­götv­aði að ég væri farin. Hún kall­aði á eftir mér en ég hélt áfram án þess að líta við. Ég gekk göt­una á enda og burt, eins langt og ég komst. Ég kom aldrei heim aftur.“

Sveindís Guð­munds­dóttir stígur fram til að segja sögu sína í von um að vekja aðra til umhugs­unar um aðstæður barna sem alast upp við ofbeldi. Í kjöl­far þess að Dofri Her­manns­son sagði sögu sína í Stund­inni skrif­aði hún pistil um 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár