Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er partýdvergurinn“

Þorgeir Gunn­ars­son elskar athygli, gerir í því að fá hana og not­færir sér hana í botn. Hann er jafn­vel pant­aður í afmæli, en er illa við það þegar fólk lætur eins og hann sé trúður, gerir dverga­grín eða lyftir honum í leyf­is­leysi. Hann segir frá lífs­hlaupi sínu, draumi sem var við það að ræt­ast og vonum sem brugð­ust.

Uppfært: Þorgeir varð bráð­kvaddur þriðju­dag­inn 24. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Við sendum aðstand­endum og vinum sam­úð­ar­kveðjur.

 

Veistu af hverju ég spila ekki fót­bolta? Af því að stráin á vell­inum kitla mig í pung­inn.“ Þorgeir Gunn­ars­son, eða Toggi dvergur eins og hann vill láta kalla sig, á auð­velt með að gera grín að sjálfum sér og elskar athygl­ina sem hann fær.

Hann hefur fengið nóg af henni í gegnum tíð­ina – um tíma var hann að rappa með Erpi og reglu­lega kom hann fram með Óla Geir þegar hann var að skemmta fólki. Í sjón­varps­þáttum Audda og Sveppa tók hann þátt í dverga­kasti og allskyns fífla­látum. Seinna birt­ist hann á skjánum með Stein­d­anum okkar. Nú síð­ast bauðst honum hlut­verk Litla Jóns í upp­færslu Þjóð­leik­húss­ins á Hróa Hetti, þótt það hafi reyndar farið öðru­vísi en hann vildi. Og reglu­lega er hann pant­aður í afmæli.

En jafn­vel þótt hann elski athygl­ina og nýti hana sér til fram­dráttar – til dæmis til að ganga í augun á stelp­unum á djamm­inu, þá er hún ekki alltaf góð. Það er ekki sama hver er með dverga­grín eða hvernig það er gert. Það er heldur ekk­ert gaman að láta stara á sig eða lyfta sér upp.

Það er ekki alltaf gaman að vera öðru­vísi en aðrir – þótt hann myndi aldrei vilja vera annar en hann er.

Dvergagrín 

„Ég er þekktur sem Toggi dvergur og vil ganga undir því nafni. Sumir halda að dvergur sé niðr­andi orð, en ég vil mikið frekar nota orðið dvergur en smá­fólk, eða Toggi litli.“

Þar með er ekki sagt að hver sem er megi segja hvað sem er. „Af því að ég er alltaf ótrú­lega hress, elska lífið og er alltaf bros­andi þá mis­skilur fólk það oft og heldur að ég leyfi öllum að vera með dverga­grín um mig.“

Vinir hans eiga það til að segja: „Æ, komdu hérna dverg­ur­inn.“ Það er allt í lagi því Þorgeir veit að þeir eru ekki að meina neitt illt með þessu. „Vinir mínir nota svona orð og kalla mig dverg, en þeir vita hvar mörkin liggja og virða það. Ég hlæ með því ég veit að þeir eru að fífl­ast. Þeir eru ekki að meina neitt illt með þessu. Ég geri líka hell­ings grín að mér sjálfur. Ég má það. Þetta er ég. En ég fíla það ekki þegar ókunn­ugir gera það.

Ef ég er að rölta á Lauga­veg­inum og mæti ein­hverjum gæja sem þekkir mig ekki neitt og kallar mig dverg þá fer það illa í mig. Mér finnst það vera diss. Þú gengur ekki að ein­hverjum með fatl­aða hendi og segir „hey, fatli“. Ég hitti einn um dag­inn sem kom upp að mér og sagði: „Hey, þú ert dvergur.“ Ég var bara – í alvöru? Er ég dvergur? Eins og ég viti það ekki.“

Dónalegt að stara 

Af því að hann er dvergur er ekki óal­gengt að full­orðið fólk stoppi og stari á hann. „Er þér illt í aug­unum?“ spyr hann stundum. „Ef ég sé strák sem er fatl­aður í hjóla­stól lít ég kannski rétt aðeins á hann. Ég stend ekki og stari á hann. Fólk glápir stundum á mig án þess að depla augum. Litlir krakkar sjá bara lít­inn strák með skegg og þeim finnst það skrýtið. Það pirrar mig ekki því ég skil það. Full­orðið fólk á hins vegar að vita betur. Það er dóna­legt að stara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár