Ný bylting á Beauty tips: Fór aftur heim til hans eftir hópnauðgun

Konur lýsa sam­skiptum sínum við ger­endur eftir nauðgun. Ragn­heiður Helga reyndi að láta sem ekk­ert væri eftir hópnauðgun og fór tvisvar sinnum aftur í húsið þar sem þetta gerð­ist.

Ný bylting á Beauty tips: Fór aftur heim til hans eftir hópnauðgun

„Ég var sautján ára þegar mér var hópnauðgað af fimm strákum sem voru saman í vina­hópi. Þetta voru strákar sem ég var búin að vera mikið með og gerð­ist heima hjá einum þeirra. Þeir tróðu alls­konar hlutum inn í mig og svo var mér nauðgað af einum þeirra. Ég barð­ist aðeins um en svo fraus ég þar til þessu lauk. Þá fór ég heim og sagði engum frá þessu fyrr en hálfu ári síða. Eftir að þetta gerð­ist þá fór ég tvisvar sinnum aftur heim til hans af því að ég kenndi mér um. Af því að ég gerði ekki neitt, af því að mér fannst þetta vera mín sök og ég var að leit­ast eftir því að þeir myndu segja að þetta væri þeirra sök, eitt­hvað sem tæki þessa sekt­ar­kennd frá mér.“

Þetta segir Ragn­heiður Helga Bergmann Haf­steins­dóttir. Hún er ein þeirra kvenna sem hafa lýst við­brögðum sínum eftir ofbeldi inni á lok­aðri síðu gegn nauðg­un­ar­menn­ingu, en nú eru konur einnig að deila reynslu sinni inni á Beauty Tips og Twitter undir myllu­merk­inu #eft­ir­kyn­ferð­is­of­beldi. 

Lýsti samskiptum brotaþola 

Það gera þær í kjöl­far umræðu sem skap­að­ist í vik­unni, þegar Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður manns sem var kærður fyrir nauðgun, sagði í við­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 að mikil sam­skipti hefðu verið á milli umbjóð­anda hans og stúlkunnar sem kærði nauðgun. Í því máli við­ur­kennir umbjóð­andi hans að hafa átt sam­ræði við stúlk­una en sagði það hafa verið með sam­þykki beggja aðila. „Í mál­inu liggja fyrir gögn sem sýna að þau eiga í miklum og góðum sam­skiptum í um það bil mán­að­ar­skeið eftir þetta. Þar á meðal strax nokkrum klukku­tímum eftir að kyn­mökin eiga sér stað.“
 
Spurður nánar út í þessi sam­skipti sagði Vil­hjálmur: „Þetta eru sam­skipti á Facebook og þetta eru tólf blað­síður. Þau eiga sér stað um langt skeið. Þessi sam­skipti eru á góðu nót­unum. Þar er meðal ann­ars farið yfir atburði þessa kvölds, hvort þetta hafi spurst út í skól­anum og annað slíkt. En aldrei minnst einu orði á það að ein­hver þvingun eða refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað. Það auð­vitað veitir vís­bend­ingu um það að þetta sé hreint og klárt kjaftæði, svo ég kveði skýrt að orði.“

Þessi sam­skipti segir hann hafa staðið í 25 daga.

„Eftir að þetta gerð­ist þá fór ég tvisvar sinnum aftur heim til hans af því að ég kenndi mér um.“

„Ég varð svo reið“

Í kjöl­farið deildi Ragn­heiður Helga sögu sinni. Hún segir af og frá að allar konur bregð­ist strax við með reiði. „Oft eru konur giftar mann­inum sem nauðg­aði þeim. Ég varð svo reið út af þess­ari umræðu. Það er full­kom­lega eðli­legt að bregð­ast alls­konar við ofbeldi. Það er algengt að þolendur láti sem ekk­ert sé og jafn­vel eðli­legt. Það er svo skrýtið ferli sem fer í gang þegar þér er nauðgað. Þú fyllist sekt­ar­kennd og við­bjóði og kennir sjálfri þér um.

Í mínu til­viki þá gerð­ist þetta í litlu bæj­ar­fé­lagi og ég gat ekki annað en rek­ist á þessa stráka stundum. Ég reyndi að forð­ast þá, en þegar ég hitti þá reyndi ég að halda uppi eðli­legum sam­skiptum, eins og ekk­ert hefði í skorist. Eins og ger­ist. Ég trúði þessu ekki. Ég hélt að þeir hlytu að hafa mátt þetta því þetta voru vinir mínir.

Það eru 24 ár síðan þetta gerð­ist en það er ekki fyrr en núna á þessu ári sem ég er að fá það stað­fest að þetta var ekki mín sök.“

Fyrirgefur aldrei ofbeldið

Hún seg­ist hafa fengið afsök­un­ar­beiðni frá stráknum sem nauðg­aði henni tveimur árum eftir að það gerð­ist. „Hann sagði að þetta hefði verið hræði­legt og hann þyrfti að lifa með það á sam­visk­unni. Í sumar sagði ég sögu mína á Press­unni og í kjöl­farið höfðu tveir sam­band. Annar tók ekki þátt í þessu en baðst afsök­unar á að hafa ekki komið mér til varnar. Hinn marg­baðst afsök­unar á því sem hann gerði.“

Hún segir að hún muni aldrei fyr­ir­gefa ofbeldið sem þeir beittu hana. Það að hún hafi verið í sam­skiptum við þá að því loknu breyti engu um það sem þeir gerðu. „Þeir eyðilögðu líf mitt. Ég vann aldrei úr þessu á sínum tíma og í dag er ég enn að glíma við áfallastreituröskun á háu stigi og kvíða. Ég mun aldrei fyr­ir­gefa þeim ofbeldið sem þeir beittu mig.“

Lét sem ekkert væri 

Þetta er ekki eina atvikið sem Ragn­heiður Helga lenti í. Ári síðar fór hún á Þjóð­há­tíð í Eyjum þar sem hún hitti mann sem hún var búin að þekkja frá því að hún var lítil og leit upp til. „Við fórum eitt­hvað að spjalla og hann sagð­ist vera með vín inni í tjaldi. Ég fór með honum þangað, þar sem hann fór að kalla mig druslu og fleiri ljótum nöfnum og nauðg­aði mér. Eftir fyrri nauðg­un­ina hafði ég farið að drekka mikið og sofa hjá og fannst að allir mættu nota mig. Ég fraus aftur og gat ekk­ert gert til að spyrna við þessu. Ég trúði ekki að þetta væri að ger­ast.“

Aftur lét hún sem ekk­ert væri. „Þegar hann hafði lokið sér af klæddi ég mig í og hellti í mig áfengi þar til ég var orðin svo ofurölvi að ég fór í óminn­is­á­stand. Ég var á áfram í Eyjum og til­kynnti þetta ekki. Aftur kenndi ég mér um.

Þessa helgi rakst ég nokkrum sinnum á þennan mann. Hann spjall­aði við mig eins og ekk­ert væri. Á ein­hverjum tíma­punkti reyndi hann jafn­vel að fá mig aftur með sér inn í tjald. Ég fór nú ekki með honum en gat ekki annað en talað við hann. Af því að ég var skít­hrædd við hann og full af sekt­ar­kennd.

Þessi maður býr í sama borg­ar­hluta og ég. Ég rekst reglu­lega á hann, en ég hef aldrei nefnt þetta við hann. Ég stundum íhugað að gera það en mér finnst ég ekki geta gert það. Hann á fjöl­skyldu. Ég veit ekki einu sinni hvort hann muni eftir þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár