Mynd: Kristinn Magnússon

Kveðjustundin

Albanskar fjöl­skyldur með lang­veik börn voru fluttar úr landi að næt­ur­lagi í lög­reglu­fylgd eftir að Útlend­inga­stofnun neit­aði þeim um dval­ar­leyfi. Umboðs­maður Alþingis tekur málið til skoð­unar.

Farið bara með þetta upp,“ segir einn úr hópi lög­regl­unnar. „Þeir geta beðið þar.“

Við erum á Kefla­vík­ur­flug­velli að fylgj­ast með brott­flutn­ingi albanskrar fjöl­skyldu sem var synjað um dval­ar­leyfi hér á landi. Við erum hér að næt­ur­lagi og eng­inn er á vell­inum nema við, fjöldi lög­reglu­manna og hópur hæl­is­leit­enda sem á að fara með sömu vél. Alls á að senda 26 ein­stak­linga úr landi í lög­reglu­fylgd, þeirra á meðal eru fimm fjöl­skyldur og þar af tvær fjöl­skyldur frá Albaníu með lang­veik börn. Hinar fjöl­skyld­urnar eru hvergi sýni­legar og eru senni­lega þegar komnar upp. Lögreglu­mað­ur­inn sem hefur sig mest í frammi og virð­ist stýra aðgerðum á vett­vangi fyr­ir­skipar að um leið og búið sé að inn­rita fólk verði það strax fært upp á næstu hæð. Án þess að átta sig á því kallar hann fólkið sem á að flytja úr landi „þetta“. Orð hans stinga, en and­rúms­loftið á vell­inum er almennt eins afslappað og mögu­legt er undir þessum kring­umstæðum. Tveir lög­reglu­menn fylgja hverjum ein­stak­lingi, eða fjöl­skyldu, úr landi. Flestir virð­ast þeir reyna sitt til að gera ferð­ina eins bæri­lega og hægt er með vin­gjarn­legu við­móti. Þegar búið er að inn­rita fjöl­skyld­una gengur hún fram hjá okkur í fylgd lög­regl­unnar og fer upp rúllu­stig­ann á aðra hæð.

Aðfararnótt alþjóðadags mannréttinda

Við hittum fjöl­skyld­una fyrst að heim­ili þeirra í Barma­hlíð átta. Jóla­ljósin lýsa upp hverfið í myrkri næt­ur­innar. Miðnætti nálg­ast og á morgun er alþjóð­legur dagur mann­rétt­inda. Í nótt bíða tvær albanskar fjöl­skyldur hins vegar örlaga sinna. Eftir rúman klukku­tíma mun lög­reglan banka upp á og fylgja þeim úr landi með lang­veik börn, sem geta ekki fengið nauð­syn­lega 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár