Aflaverðmæti jókst um 13 prósent milli ára

Afla­verð­mæti íslenskra skipa í ágúst 2018 nam tæpum 11,9 millj­örðum króna. Á 12 mán­aða tíma­bili, frá sept­em­ber 2017 til ágúst 2018, nam afla­verð­mæti úr sjó rúmum 125 millj­örðum króna sem er 13 pró­sent aukn­ing miðað við sama tíma­bil á síð­asta ári.

Verðmæti sjáv­ar­afla íslenskra skipa í ágúst 2018 nam tæpum 11,9 millj­örðum króna sem er jafn mikið og í ágúst 2017. Verðmæti botn­fisk­afl­ans nam rúmum 6,9 millj­örðum og jókst um tæp þrjú pró­sent. Afla­verð­mæti þorsks var tæpir fjórir millj­arðar sem er á pari við ágúst 2017. Verðmæti upp­sjáv­ar­afla nam tæpum 3,2 millj­örðum og dróst saman um 13,6 pró­sent sam­an­borið við ágúst 2017. Verðmæti flat­fisk­teg­unda nam 1,3 millj­örðum og verð­mæti skel- og krabba­dýra­afla 385 millj­ónum. Frá þessu er greint á vef Hag­stof­unnar.

Á tólf mán­aða tíma­bili frá sept­em­ber 2017 til ágúst 2018 jókst afla­verð­mæti um þrettán pró­sent miðað við sama tíma­bil árið áður. Afla­verð­mætið úr sjó nam rúmum 125 millj­örðum króna. Verðmæti upp­sjáv­ar­afla jókst um 17 pró­sent á milli tíma­bila og munar þar mest um ýsuna og karfa. Verðmæti karfa jókst um tæp 21,5 pró­sent. 

Um 70 pró­sent af heild­ar­verð­mæt­unum í sjáv­ar­út­vegi má rekja til starf­semi á lands­byggð­inni, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Hagstofu Íslands um verð­mæti afla eftir stað­setn­ingu verk­un­ar­staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár