Vísbendingar um smit frá einkennalausum hunsaðar í tvo örlagaríka mánuði

Þegar sýkt en ein­kenna­laust fólk er smit­andi gerir það bar­átt­una gegn útbreiðslu smit­sjúk­dóms, aug­ljós­lega, erf­ið­ari. En þegar grunur vakn­aði um að þetta væri að eiga sér stað með nýju kór­ónu­veiruna huns­uðu heil­brigð­is­yf­ir­völd það í margar vikur.

Ef hlustað hefði verið á þá sem töldu veiruna berast út á meðal einkennalausra hefði verið hægt að bjarga mörgum mannslífum.
Ef hlustað hefði verið á þá sem töldu veiruna ber­ast út á meðal ein­kenna­lausra hefði verið hægt að bjarga mörgum manns­lífum. Mynd: EPA

Fyrsta til­felli nýju kór­ónu­veirunnar í Þýska­landi greind­ist 27. jan­úar. Þetta kom lækni sjúk­lings­ins mjög á óvart. Sjúk­ling­ur­inn, sem var eig­andi bíla­parta­sölu, hefði aðeins getað smit­ast af einum manni: Við­skipta­fé­laga frá Kína sem hafði komið í heim­sókn. En sá hafði engin ein­kenni sýnt.

Lækn­ir­inn Camilla Rothe, átti því erfitt með að trúa þessu. Hún taldi á þessum tíma ómögu­legt að ein­kenna­laus við­skipta­fé­lag­inn hefði getað borið veiruna í þýska bíla­parta­sal­ann. Nokkrum dögum eftir að hann snéri heim til Kína fór hann hins vegar að finna ein­kenni. Og greind­ist svo með veiruna.

Í ítar­legri frétta­skýr­ingu New York Times, þar sem farið er yfir hvað var vitað um hegðun og eðli kór­ónu­veirunnar og hvenær, kemur fram að í lok jan­úar töldu vís­inda­menn almennt enn að þessi nýja veira smit­að­ist aðeins frá fólki sem sýndi ein­kenni. Þá ályktun drógu þeir af því að hún var skyld veirunni sem olli SARS sautján árum áður en í hennar til­viki voru aðeins þeir sem voru með ein­kenni sýk­ing­ar­innar smit­andi.

[adspot]

Rothe rifjar upp í sam­tali við New York Times að vís­inda­menn, sem höfðu mun meiri þekk­ingu en hún sjálf á kór­ónu­veirum, höfðu á þessum tíma verið þess full­vissir að aðeins fólk með ein­kenni (hita, hósta o.s.frv.) gæti borið hina nýju veiru í aðra.

Rothe er smit­sjúk­dóma­læknir á háskóla­sjúkra­hús­inu í Munchen. Að henni lædd­ist sú hugsun að ef vís­inda­menn­irnir hefðu rangt fyrir sér, ef við­var­anir yfir­valda um að fólk með ein­kenni ætti að halda sig heima, að nóg væri að mæla hita flug­far­þega og þar fram eftir göt­unum, væru svo byggðar á orðum þess­ara vís­inda­manna, gætu afleið­ing­arnar orðið ham­fara­kenndar. Ef ein­kenna­lausir gætu smitað ætti jafn­vel að biðja alla að ganga með grímur meðal almenn­ings. Og setja miklar hömlur á ferða­lög fólks.

Fyrst til vekja athygli á málinu

Lækn­ir­inn Rothe og hennar sam­starfs­menn voru meðal þeirra fyrstu í heim­inum sem vör­uðu við því að nýja kór­ónu­veiran gæti smit­ast frá ein­kenna­lausum. En lítið mark var tekið á þeim. Og jafn­vel ekki þó að vís­bend­ingar frá fleirum bentu til hins sama.

Vikum saman gáfu stjórn­mála­menn og heil­brigð­is­yf­ir­völd ábend­ingum Rothe og félaga engan gaum. Á sama tíma var ein­kenna­laust fólk, sem enga hug­mynd hafði um að það væri smitað, að breiða veiruna út á ýmsum sam­komum; í kirkjum, á fót­bolta­leik­vöngum og á bar á skíða­svæði í Aust­ur­ríki.

[links]Í grein New York Times kemur fram að á við­tölum við lækna og annað heil­brigð­is­starfs­fólk í mörgum löndum megi sjá að í tvo örlaga­ríka mán­uði afneit­uðu stjórn­mála­menn og heil­brigð­is­yf­ir­völd á vest­ur­löndum nið­ur­stöðum þýsku lækn­anna eða drógu veru­lega úr mik­il­vægi þeirra. Á það er bent að í stað­inn hafi starfs­menn stofn­ana á borð við Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina og Evrópsku smit­sjúk­dómstofn­un­ina gefið út ráð­legg­ingar, stundum mis­vísandi, um hið gagn­stæða: Af ein­kenna­lausum staf­aði lítil hætta.

Seina­gang­ur­inn getur átt sér ýmsar skýr­ingar. Þær geta til dæmis falist í sam­keppni milli vís­inda­manna eða því að nið­ur­stöð­urnar hafi ekki verið nægi­lega und­ir­byggðar svo að mark væri tekið á þeim. En ein skýr­ingin, og sú sem margir hall­ast að, er sú að yfir­völd og stjórn­mála­menn vissu að ef þetta væri raunin, að ein­kenna­lausir væru smit­andi, þyrfti að grípa til mun rót­tæk­ari aðgerða til að hægja á útbreiðsl­unni. Aðgerða sem myndu lama hag­kerfi heims­ins. WHO hafði verið gagn­rýnd nokkuð harð­lega í kjöl­far SARS. Þá þótti stofn­unin bregð­ast óþarf­lega hart við og að afleið­ing­arnar á efna­hags­líf heims­ins hafi verið meiri en ástæða var til. Margir segja WHO því hafa verið hik­andi þegar COVID-19 spratt fram á sjón­ar­sviðið.

Mannslífum fórnað?

Í grein New York Times segir að ómögu­legt sé að meta hversu mörgum manns­lífum hefði verið hægt að bjarga ef gripið hefði verið til harðra aðgerða strax og vit­neskja um þessa hegðun veirunnar kom fram. Vitnað er í nið­ur­stöður lík­inda­rann­sókna sem benda til að hægt hefði verið að bjarga þús­undum manns­lífa. Þá er bent á að lönd á borð við Singapúr og Ástralíu hafi gengið betur en mörgum öðrum að halda far­aldr­inum í skefjum vegna þess að fljótt var gripið til umfangs­mik­illar sýna­töku, smitrakn­ingar og ferða­tak­markanna.

Í dag er öllum orðið ljóst að fólk sem virð­ist heil­brigt en er engu að síður með veiruna, getur verið smit­andi. Hins vegar er ekki vitað hversu stóran þátt slík smit hafa átt í útbreiðslu far­ald­urs­ins. Rann­sóknir á þessu sem gerðar hafa verið hingað til eru ekki sam­hljóða. Í þeim er ýmist talið að 30 pró­sent smita hafi borist frá ein­kenna­lausum eða jafn­vel 60 pró­sent þeirra.

WHO lengi að taka við sér

Í byrjun mars var WHO enn að halda því fram að smit frá ein­kenna­lausum væru fágæt. En þá voru vís­inda­menn víða farnir að sjá allt annað blasa við. Evrópsk sótt­varna­yf­ir­völd voru þó farin að hall­ast að þessu og sann­færð­ust loks um það í þeim mán­uði. Það gerðu þau banda­rísku líka í lok mars og end­ur­skoð­uðu t.d. til­mæli sín um notkun and­lits­gríma.

WHO tók seinna við sér og enn er stofn­unin að senda frá sér mis­vísandi skila­boð. Í grein New York Times er bent á að snemma í júní hafi einn yfir­manna stofn­un­ar­innar end­ur­tekið það sjón­ar­mið sitt að smit frá ein­kenna­lausum væri „mjög sjald­gæft“. Læknar um allan heim mót­mæltu þessu og gaf stofn­unin síðar út að þessi orð hefðu verið á mis­skiln­ingi byggð. Hins vegar hafa starfs­menn hennar á það bent að enn eigi eftir að skilja smit­leið­irnar til fulln­ustu – hverjir smita helst og hvenær eftir að þeir sjálfir hafa sýkst.

Í dag hafa yfir tíu millj­ónir manna um heim allan greinst með veiruna. Það er mikið van­mat þar sem sýna­tökur eru mjög mis­öflugar í hverju landi fyrir sig og ekki eru nið­ur­stöður allra þeirra gefnar út opin­ber­lega. Staðfest er að rétt tæp­lega hálf milljón manna hefur lát­ist vegna COVID-19 á heims­vísu.

Enn fjölgar smitum hratt. Í gær greindust fleiri smit í Banda­ríkj­unum á einum degi en nokkru sinni fyrr. Sömu sögu er að segja frá Afganistan. Í fleiri löndum bár­ust fréttir af snöggri fjölgun smita í gær.

Hópsmit hafa nýverið brot­ist út í kjöt­vinnslu­stöð í Þýska­landi, í kirkju í Suður-Kóreu, á mark­aði í Peking og á sjúkra­húsi á Ítalíu – svo dæmi séu tekin. Öll urðu þau eftir að slakað var á tak­mörk­unum á sam­komum og ferða­lögum íbú­anna og eftir að yfir­völd lýstu því yfir að far­ald­ur­inn væri í rénun.

Margir ótt­ast að önnur bylgja far­ald­urs COVID-19 sé í þann veg­inn að hefj­ast, skömmu eftir aflétt­ingar tak­markanna sem hægðu á öllu efna­hags- og félags­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár