„Við vitum ekkert um það ennþá hversu lengi mótefni mun verja okkur“

Var þetta flensa sem þú fékkst í vetur eða mögu­lega COVID-19? Að því er hægt að kom­ast með mótefna­mæl­ingum en þær eru enn ekki nógu áreið­an­legar og því ekki not­hæfar til að stað­festa ónæmi. Íslensk yfir­völd ætla að hefja söfnun blóð­sýna fljót­lega.

Þórólfur: Vandamálið við þessa tilteknu veiru er að hún er ný og það verður að búa til ný próf.
Þórólfur: Vanda­málið við þessa til­teknu veiru er að hún er ný og það verður að búa til ný próf. Mynd: Lögreglan

Á hverjum vetri ganga ýmsar pestir sem valda óþæg­indum á borð við hita, háls­bólgu, hósta og bein­verkjum. Á öllum þeim sem fundu fyrir slíkum ein­kennum síð­ustu mán­uði brennur ein spurn­ing: Var ég með COVID-19 eða var þetta bara flensa?

Þeir sem ekk­ert veikt­ust eru mögu­lega að hugsa það sama því við vitum að þeir sem sýkj­ast af veirunni geta verið ein­kenna­litlir og jafn­vel ein­kenna­lausir.

Það er ekki af ein­skærri for­vitni sem fólk er að velta þessu fyrir sér. Góðar ástæður eru fyrir því, bæði fyrir fólk og sam­fé­lög, að vita hverjir hafi sýkst og hverjir ekki. Helst ber að nefna að hafi fólk fengið COVID-19 er það komið með mótefni fyrir veirunni sem sjúk­dómnum veldur. Þar með er það í lít­illi hættu að sýkj­ast af henni aftur, nema að hún stökk­breyti sér eins og árs­tíða­bundnar inflú­ensu­veirur gera gjarnan. „Kór­ónu­veirur eru hins vegar ekki þekktar fyrir að gera það,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í sam­tali við Kjarnann. „En hvort þessi veira mun haga sér öðru­vísi er ekki vitað.“

Nýja kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 er nefni­lega ólík­inda­tól og virð­ist haga sér að ýmsu leyti öðru­vísi en aðrar henni skyldar. Og af því að hún er svo ný, svo fram­andi, hefur ekki ennþá tek­ist að búa til örugg mótefna­próf. Rann­sóknir á ýmsum mótefna­prófum er þó í fullum gangi í fjöl­mörgum löndum, meðal ann­ars hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Enn sem komið er verður því bið á því að áreið­an­legar mótefna­mæl­ingar standi Íslend­ingum almennt til boða en von­andi verður það á næst­unni.

Vafi um lengd verndar

Ofan á allt saman leikur svo vafi á því hversu lengi það ónæmi mun vara. „Af því að þetta er ný veira þá vitum við ekk­ert um það ennþá hversu lengi mótefnið mun vernda okkur,“ segir Þórólfur. „Skapast lang­tíma­vernd eða skamm­tíma­vernd? Það verður tím­inn að leiða í ljós.“

Stjórn­völdum er mikið í mun að fá úr því skorið hversu margir hafi raun­veru­lega sýkst af veirunni sem valdið hefur sögu­legum áhrifum á hag­kerfi og sam­fé­lög heims. Vonast er til að nið­ur­stöður úr mótefna­mæl­ingum geti nýst til að skipu­leggja aflétt­ingu ýmissa tak­mark­ana – koma hinum umtöl­uðu hjólum atvinnu­lífs­ins aftur af stað. Að þær sé hægt að nota til að „end­ur­ræsa lífið að nýju“ eins og Andre Cuomo, rík­is­stjóri í New York, sagði nýverið. Þar vegur þyngst fjöldi þeirra sem hefur smit­ast.

Þær öfl­ugu aðgerðir sem beitt hefur verið hér á landi hafa gert það að verkum að lík­lega hefur aðeins um eitt pró­sent íslensku þjóð­ar­innar sýkst. Um 99 pró­sent hennar eru því mót­tæki­leg fyrir sýk­ing­unni. Það eru ansi margir lík­amar sem veiran getur komið sér fyrir í, fái hún tæki­færi til þess.

En byrjum á byrj­un­inni.

Hvað er mótefni og hvernig mynd­ast það?

Þegar ein­stak­lingur sýk­ist, hvort sem það er af völdum veiru eða bakt­eríu, þá bregst ónæm­is­kerfi lík­am­ans við og reynir að vinna á henni. „Margar frumur ræs­ast og það losna alls konar efni sem miða að því að vernda okkur,“ útskýrir Þórólfur. Eitt af því mik­il­væga sem ónæm­is­kerfið gerir við þessar aðstæður er að mynda mótefni, ýmis sér­hæfð prótín, sem snú­ast gegn veiru­teg­und­inni sem veldur sýk­ingu hverju sinni.

Ef lík­am­inn kemst svo aftur í tæri við sömu veiru þá bind­ast mótefnin henni og gera hana óskað­lega. Þar með verður engin sýk­ing.

„Þetta er gríð­ar­lega mik­il­vægt kerfi,“ segir Þórólfur. „Það sama ger­ist við bólu­setn­ingu, þá mynd­ast mótefni sem verndar mann svo áfram.“

En málið er ekki alveg svona ein­falt.

Mótefni er nefni­lega ekki ein­tölu­orð. Það mynd­ast fjöl­mörg mótefni í lík­am­anum fyrir hverri og einni veiru og sum eru meira vernd­andi en önnur.

Og þar liggur hund­ur­inn graf­inn. Hvaða mótefni eru vernd­andi og hver ekki? Og er víst að það mótefni sem mælist sé akkúrat það sem mynd­að­ist vegna til­tek­innar veiru ?

Út á þetta gengur þróun mótefna­prófa – að finna aðferð til að meta og mæla það mótefni sem er að veita okkur vernd fyrir end­ur­tek­inni sýk­ingu.

Mótefnin mynd­ast í lík­am­anum á mis­mun­andi tíma. Sum mynd­ast fljótt eftir að sýk­ingar verður vart og hverfa sömu­leiðis fljótt. Önnur mynd­ast á nokkrum vikum en end­ast þá að sama skapi miklu lengur.

Ýmsum og ólíkum aðferðum er beitt við að mæla mótefni. Þær geta verið mis­mun­andi nákvæmar og næmar. Sumar ná ekki að nema öll mótefni og geta gefið þá nið­ur­stöðu að mótefni sé ekki til staðar þó að það sé það. Aðrar aðferðir geta svo gefið þver­öf­uga nið­ur­stöðu: Nema mótefni þegar það er ekki fyrir hendi. Hvoru tveggja er auð­vitað jafn slæmt.

Aðrar sýkingar geta truflað mælingu

Ýmislegt getur að sögn Þórólfs truflað mæl­ing­una, til dæmis fyrri sýk­ingar af völdum ann­arrar veiru eða sýk­ing af skyldri veiru. „Prófin geta þá verið að sýna jákvæða en falska nið­ur­stöðu,“ segir Þórólfur. „Vanda­málið við þessa til­teknu veiru er að hún er ný og það verður að búa til ný próf. Það þarf svo að sann­reyna þau og ganga úr skugga um að þau gefi rétta nið­ur­stöðu.“

Nokkur lönd eru farin að mótefna­mæla og rík­is­stjóri New York greindi frá því í fyrra­dag að sam­kvæmt nið­ur­stöðum slíkra mæl­inga þar hefði einn af hverjum fimm íbúum New York-borgar smit­ast af veirunni. Mun fleiri en áður var talið.

Að sögn Þórólfs verður að taka þessum nið­ur­stöðum sem og öðrum af sama toga með fyr­ir­vara. Í sama streng hafa sér­fræð­ingar í smit­sjúk­dómum í New York tekið. Prófin séu ekki enn nógu áreið­an­leg.

Ein skýr­ingin er sú að það getur verið mis­mun­andi hversu mikið mótefni mælist í lík­am­anum eftir því hvort við­kom­andi sýndi mikil eða lítil ein­kenni á meðan hann var sýktur. „Það eru merki um það að þeir sem að veikj­ast mikið fram­leiði meira af mótefnum heldur en þeir sem veikj­ast lítið eða nán­ast ekki neitt,“ bendir Þórólfur á. Þetta er meðal nið­ur­staðna mótefna­rann­sókna sem Íslensk erfða­grein­ing hefur þegar unnið.

Að sögn Þórólfs er þetta nokkuð óvenju­legt en gæti skýrst af því að ekki er enn búið að finna almenni­lega út hvaða mótefni sé best að mæla.

Í mótefna­mæl­ingum Íslenskrar erfða­grein­ingar er stuðst við mis­jafnar aðferðir í þessum til­gangi. „Þau hafa verið að rann­saka blóð úr fólki hér á landi, bæði úr þeim sem sýkst hafa mikið og lítið. Og þau eru akkúrat að sjá þetta: Að það er mis­mun­andi svar eftir því hvort fólk hefur veikst mikið eða lítið. Einnig að það getur tekið langan tíma frá sýk­ingu og þar til mótefni eru að mæl­ast.“

Þó að full­komin mótefna­próf séu ekki fyrir hendi í augna­blik­inu ætla íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd að hefja söfnun blóð­sýna fljót­lega. Mótefna­mæl­ing verður fram­kvæmd á þeim og hún svo jafn­vel end­ur­tekin seinna með öðrum prófum.

„Við munum halda áfram mótefna­rann­sóknum og reyna að finna hvaða aðferð er best,“ segir Þórólfur. „Og þegar við finnum bestu lausn­ina þá getum við beitt henni á þau blóð­sýni sem hafa safn­ast en það er enn eitt­hvað í það að við fáum áreið­an­legar nið­ur­stöður úr þeim.“

Að þessu sögðu er ljóst að mótefna­mæl­ing á þess­ari stundu getur ekki nýst til að votta það að ein­stak­lingur hafi sýkst og sé nú var­inn. Rætt hefur verið um að gefa út ónæm­is­passa eða vott­orð til fólks sem auð­veldi því að ferð­ast, mæta til vinnu og hverfa aftur til ann­arra hefð­bund­inna lifn­að­ar­hátta. Engin vinna í þá átt er hafin hér á landi og Þórólfur er ekki viss að af þessu verði yfir höfuð. „Eins og staðan er núna þá er að minnsta kosti tölu­vert í það. Það hafa líka vaknað ýmsar sið­ferð­is­legar og lög­fræði­legar spurn­ingar í þessu sam­bandi svo þetta yrði alltaf snúið í fram­kvæmd.“

Þórólfur gerir sér grein fyrir því að margir bíða í ofvæni eftir að mótefna­mæl­ingar hefj­ist. „En áður en við förum að gera það verðum við að vita hvort hægt sé að treysta þeim. Fyrir marga er erfitt að lifa í óviss­unni en ef nið­ur­stöður prófa eru óör­uggar slá þau ekki á óviss­una hjá fólki heldur þvert á móti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár