„Go´daw, jeg hedder Lars Larsen, jeg har et godt tilbud“

Danski millj­óna­mær­ing­ur­inn Lars Lar­sen lést á heim­ili sínu í síð­ustu viku, 71 árs að aldri. Hann var á meðal auð­ug­ustu manna í Danmörku og jafn­framt þeirra þekkt­ustu. Kjarninn rifjar hér upp sögu hans.

Lars Larsen
Lars Larsen Mynd: Úr safni

Auðkýf­ing­ur­inn Lars Lar­sen lést á heim­ili sínu í Sil­ke­borg í Danmörku í byrjun síð­ustu viku. Hann var 71 árs þegar hann lést en fyrir tveim­ur mán­uðum lét hann af stjórn­ar­for­mennsku í versl­un­arkeðj­unni JYSK vegna veik­inda. Jacob Bruns­borg, sonur Lars, tók þá við stjórn­ar­for­mennsku í fyr­ir­tæk­inu en hann hafði greinst með lifr­ar­krabba­mein nokkru áður. Borgþór Arn­gríms­son fjall­aði um Lars árið 2014 fyrir Kjarnann og verður hér rifjuð upp sú umfjöllun.

Lars Larsen, Dyne Larsen eða Rúmfata-Larsen kom í heim­inn þann 6. ágúst árið 1948. Hann var yngstur fjög­urra systk­ina sem fædd­ust á fimm árum en sá skuggi hvíldi þó yfir þess­ari fjölgun í fjöl­skyld­unni að heim­il­is­fað­ir­inn, Lars Krist­inus Larsen, lést áður en dreng­ur­inn fædd­ist, aðeins 55 ára gam­all, og móð­irin, Signe Vera Kirstine Hansen, ákvað að sá stutti skyldi bera nafn föð­ur­ins og hann var því skírður Lars Krist­inus.

Þegar þau Lars eldri og Signe kynnt­ust var hann kom­inn undir fimm­tugt en hún tíu árum yngri. Þau voru bæði af fátæku fólki komin en tókst að kaupa jörð við þorpið Arnborg á Mið-Jótlandi og lifðu fyrst og fremst af kart­öflu­rækt. Lars eldri tók tals­verðan þátt í félags­málum, sat í safn­að­ar­nefnd og í stjórn sjúkra­sam­lags­ins á svæð­inu. Signe var mjög trúuð og hafði starfað með Hjálp­ræð­is­hernum áður en hún gift­ist.

[adspot]

Skyldi verða kaupmaður

Fráfall hús­bónd­ans var reið­ar­slag fyrir fjöl­skyld­una. Ekkjan reyndi að halda búskapnum áfram en neydd­ist fljót­lega til að selja jörð­ina. Hún keypti minni jörð og reyndi líka fyrir sér í hót­el­rekstri en hún var heilsu­veil og eftir skamman tíma var hót­elið selt. Signe keypti þá litla sæl­gæt­is­verslun í Hurup á Norður-Jótlandi. Lars sagð­ist fá vatn í munn­inn þegar hann minn­ist sæl­gæt­is­ins en sér, og öðrum, hafi snemma orðið ljóst að bóndi yrði hann ekki.

Skóla­gangan hófst 5. ágúst 1956, þá var Lars sjö ára en dag­inn eftir varð hann átta ára. Hann segir í ævi­sögu sinni að vegna reglna um að börn skyldu byrja í skóla þegar þau væru sjö ára, miðað við fæð­ing­ar­dag en ekki fæð­ing­arár, hafi hann verið elstur í bekknum og það hafi oft komið sér vel.

Framan af gekk sæl­gæt­is­versl­unin prýði­lega en síðan tók að halla undan fæti. Signe var illa haldin af gigt og auk þess sótti á hana þung­lyndi sem ágerð­ist hratt. Lars segir í ævi­sögu sinni að þegar hann var 12 ára hafi móðir hans verið orðin óvinnu­fær og dvalist lang­tímum saman á sjúkra­húsum. Börnin bjuggu þó áfram í litla hús­inu sem móðir hans hafði keypt, þau stund­uðu ýmiss konar íhlaupa­vinnu til að afla tekna. Eldri systk­inin hættu í skól­anum þegar skyldu­nám­inu lauk, eftir sjö­unda bekk, en fyrir hvatn­ingu skóla­stjór­ans hélt Lars áfram og lauk gagn­fræða­prófi árið 1966. Hann hafði mik­inn áhuga á að verða kenn­ari en eldri bróð­ir­inn Hans sagði að það væri ekki rétta starfið, hann ætti að verða kaup­maður.

Lars fékk starf sem lær­lingur í versl­un­inni Magasin H&L í Thisted, þar voru seldar sængur og koddar, dýnur, gard­ínur, kjóla­efni og margt fleira. Á þessum tíma kynnt­ist hann hjúkr­un­ar­fræði­nem­anum Kristine Bruns­borg, sem varð eig­in­kona hans.

Löng röð fyrir utan búðina

Árin hjá H&L voru lær­dóms­rík og Lars vakti athygli yfir­manna sinna fyrir dugnað og útsjón­ar­semi. Einu sinni gerð­ist það að Lars var sendur til að líta á rúm­dýnur hjá nokkrum fram­leið­endum, en þar sá hann meðal ann­ars nokkrar dýnur sem höfðu orðið fyrir lít­ils­háttar hnjaski þegar flutn­inga­bíll valt.

Lars keypti dýn­urnar og margt fleira á mjög lágu verði. Svo mikið reyndar að það hefði dugað til að fylla versl­un­ina hjá H&L tíu sinnum. Svo var aug­lýst að vörur sem sumar væru eilítið útlits­gall­aðar yrðu seldar í versl­un­inni föstu­dag og laug­ar­dag. Þegar starfs­fólkið mætti til vinnu á föstu­deg­inum var löng röð fyrir utan búð­ina og allt seld­ist upp á þessum tveim dögum. Þarna, sagði Lars, fékk hann kannski hug­mynd­ina að JYSK.

Nokkru síðar sagði Lars upp starf­inu hjá H&L og þau Kristine, sem ætíð var kölluð Kris, fluttu til Ála­borgar. Hún hafði fengið starf á sjúkra­húsi og Lars fékk vinnu í verslun sem seldi gard­ínur og glugga­tjöld. Árið 1974 fékk hann vinnu hjá annarri verslun sem seldi rúm, rúm­fatnað, gard­ínur og áklæði.

[adspot]

Vildu hafa gæs í lógóinu

Árið 1979 ákvað Lars Larsen að nú væri komið að honum sjálfum að ráða ferð­inni. Í sam­vinnu við tvo félaga sína ákvað hann að opna verslun í Árósum. Þeir tóku á leigu 500 fer­metra skemmu við Sil­ke­borg­vej, svo­lítið fyrir utan mið­bæ­inn. Húsnæðið var ódýr­ara en við aðal­versl­un­ar­götur bæj­ar­ins og þarna voru næg bíla­stæði. Þeir félagar ákváðu að versl­unin skyldi heita Jysk sen­getøjsla­ger. Þeir voru jú allir frá Jótlandi og seinna orðið í nafn­inu lýsti vör­unum en end­ingin „lager“ gaf jafn­framt til kynna að þetta væri öðru­vísi verslun.

Nokkrar aug­lýs­inga­stofur sem þeir leit­uðu til sögðu að nafnið væri allt of langt og þegar þeir félagar sögðu að þeir vildu hafa gæs og eitt­hvað sem tákn­aði rúm sem lógó versl­un­ar­innar sögðu aug­lýs­inga­stof­urnar: „Nei, takk.“ Ein lítil stofa tók verk­efnið að lokum að sér og gerði eins og Lars og félagar vildu, hann­aði merkið og jafn­framt aug­lýs­ingar, sem voru í senn ein­faldar og lýsandi.

Þann 2. apríl 1979 klukkan 8 um morg­un­inn var versl­unin við Sil­ke­borg­vej opnuð, en þá biðu á annað hund­rað manns við dyrnar og nán­ast allt seld­ist upp á fyrsta degi. „Við höfðum gert eitt­hvað rétt,“ sagði Lars síðar í við­tali. Hálfum mán­uði síðar var verslun númer tvö opnuð í Hadsund á Jótlandi. Nokkrum dögum síðar var svo opnuð verslun í Álaborg.

Vel þekktur í Danmörku

Lars varð fljót­lega lands­þekktur, hann kom sjálfur fram í aug­lýs­ingum fyr­ir­tæk­is­ins sem voru bæði ein­faldar og ódýrar, svo ein­faldar að aug­lýs­inga­fram­leið­endur hlógu. Þeir hefðu þó getað sparað sér hlát­ur­inn því text­inn sem Lars fór með, „Go´daw, jeg hedder Lars Larsen, jeg har et godt til­bud,“ hitti algjör­lega í mark og bæði versl­an­irnar og mann­inn þekkir hvert ein­asta danskt manns­barn.

Árið 1983 keypti Lars Larsen hlut beggja félaga sinna og hefur síðan verið eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Árið 2001 var nafn­inu breytt og það heitir nú JYSK. Gæsin er enn hluti af merkis fyr­ir­tæk­is­ins en rúm­gafl­inn er horf­inn.

Fyrsta verslun Jysk sen­getøjsla­ger utan Dan­merkur var opnuð í Þýska­landi 1984, nú eru þar hund­ruð JYSK-versl­anir. Alls eru versl­anir JYSK nú um 2000 tals­ins í 35 löndum. Nokkur hluti þess­ara versl­ana er í eigu ann­arra – til að mynda Rúm­fatalager­inn á Íslandi – sem hafa sér­stakan samn­ing við JYSK. Vöru­úr­valið er í dag miklu meira en það var í upp­hafi, en Lars sagði í við­tali að versl­anir JYSK væru fyrir almenn­ing sem gæti fengið flesta hluti til heim­il­is­ins, annað en mat­vöru, á hag­stæðu verði. „Hús­gögnin eru ekki hönn­un­ar­vara en duga vel til síns brúks og kosta lítið,“ bætti hann við. Mikið af fram­leiðsl­unni verður til í verk­smiðjum JYSK víða um lönd en annað er keypt af öðrum fram­leið­endum.

JYSK rek­ur nú rúm­lega 2.800 versl­an­ir í 52 lönd­um í Evr­ópu, Mið-Aust­ur­lönd­um og Asíu, þar með talið versl­an­ir Rúm­fa­tala­gers­ins á Íslandi. Tekj­ur keðj­unn­ar nema um 26 millj­örðum danskra króna á ári, jafn­v­irði 480 millj­arða ís­lenskra, sam­kvæmt árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins.

Vinnan áhugamálið

Lars lét sér ekki nægja að beina kröftum sínum að JYSK. Hann keypti einnig hús­gagna- og hús­bún­að­ar­versl­an­irnar ILVA og IdeMöbler en vöru­úr­valið þar var annað en í versl­unum JYSK og verðið hærra. Bolia-hús­bún­að­ar­versl­an­irnar, sem skiptu tugum og eru í nokkrum Evr­ópu­löndum auk Dan­merkur, voru einnig í eigu Rúmfata-Larsens. Árið 1990 stofn­aði hann ferða­skrif­stof­una Larsen rejser en sá rekstur gekk ekki vel og árið 1998 keypti ferða­skrif­stofan Kuoni Larsen rejser.

Árið 2004 gaf Lars Larsen út æviminn­ingar sínar, sem hann skrif­aði sjálfur. „Go´daw, jeg hedder Lars Larsen – Jeg har et godt til­bud“, var dreift inn á öll heim­ili í Danmörku. Lars sagði þar að þrátt fyrir fátækt og erf­ið­leika í æsku hefði hann átt gott líf og verið gæfu­maður. Hann sagði að eig­in­konan Kris, sem enn vann í versl­un­inni í Sil­ke­borg, hefði verið sinn stóri happ­drætt­is­vinn­ingur. Þau áttu tvö börn; son­ur­inn Jacob vann hjá JYSK en dóttirin Mette var kúa­bóndi. Sjálfur vann Lars alla daga í fyr­ir­tæk­inu. Blaða­maður dag­blaðs­ins Berl­ingske spurði Lars Larsen eitt sinn hvort ekki væri tími til kom­inn að þriðji rík­asti maður Dan­merkur færi að slaka á og sinna áhuga­málum. „Sinna áhuga­mál­unum, það hef ég gert síðan 1979 og ætla að halda því áfram,“ svar­aði Lars og bætti við: „Það er ríki­dæmi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár