Forseti Póllands staðfestir ekki umdeild lög

Umdeild lög um skipan dóm­ara verða ekki stað­fest af for­seta Póllands.

Andrzej Duda, forseti Póllands.
Andrzej Duda, for­seti Póllands. Mynd: EPA

Andrzej Duda, for­seti Póllands, hefur til­kynnt að hann ætli ekki að stað­festa umdeild lög sem myndu veita ráð­herrum vald til þess að reka og skipa dóm­ara án þess að bera það undir þing eða þjóð.

Breska rík­is­út­varpið BBC greinir frá þessu.

Lög­gjöf­inni sem sam­þykkt var í pólska þing­inu hefur verið mót­mælt harð­lega í Póllandi und­an­farna daga. Nýju lögin hafa einnig vakið gagn­rýn­is­raddir í Brussel því Evr­ópu­sam­bandið telur lögin ekki lýð­ræð­is­leg.

Evr­ópu­ráðið hefur meðal ann­ars hótað því að beita við­skipta­þving­unum á Pólland, sem er aðili að ESB, ef lögin yrðu stað­fest. Forseti Evr­ópu­ráðs­ins er Donald Tusk, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Póllands, en hann hefur varað við því að hægrisinnuð stjórn­völd í Varsjá jað­ar­setji sig í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár