Segir ríkið vera að bjóðast til þess að taka fólk á launaskrá

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að ríkið taki með aðgerðum sínum að sér að greiða stóran hlut launa í gegnum stuðn­ings­kerfi. Það sé ekk­ert annað en beinn stuðn­ingur og muni hann líka ná til ein­yrkja.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, segir að ekki liggi fyrir hvort trygg­inga­gjaldið verði fellt niður vegna þess ástands sem nú ríkir í efna­hags­málum lands­ins vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Hann segir það þó ekki úti­lokað.

Frá þessu greindi ráð­herr­ann á Alþingi í dag í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, spurði Bjarna hvort vænta mætti þess að trygg­inga­gjaldið yrði fellt niður út árið, hvort beinn efna­hags­legur stuðn­ingur kæmi beint til fyr­ir­tækja og hvaða áform væru uppi varð­andi stuðn­ing til ein­yrkja.

Bjarni bendir á að gjald­dögum vegna trygg­inga­gjalds hafi verið frestað og segir hann að það geti komið til þess á síð­ari stigum að „frest­uðu trygg­inga­gjaldi, sem menn telja ekki raun­hæft að inn­heimta, verði þá breytt í ein­hvers konar stuðn­ing.“

Segir einyrkja njóta góðs af aðgerðum

Ráð­herr­ann telur þó trygg­inga­gjalds­leið­ina mega sín lít­ils í sjálfu sér við hlið­ina á annarri stórri aðgerð sem rædd verður síðar í dag. „Hér á þing­inu verður rætt mál þar sem ríkið er að bjóð­ast til þess hrein­lega að taka fólk raun­veru­lega á launa­skrá sína. Að fyr­ir­tæki haldi ráðn­inga­sam­band­inu í gildi en ríkið taki að sér að greiða stóran hlut laun­anna í gegnum stuðn­ings­kerfi. Það er ekk­ert annað en beinn stuðn­ingur og hann mun líka ná til ein­yrkja,“ segir ráð­herr­ann.

Hann greinir frá því að ein­yrkjar, eða sjálf­stætt starf­andi, muni njóta góðs af þessum aðgerðum. „Það verður að fara vel ofan í saumana á þessu úrræði sem að mér sýn­ist á öllu miðað við það hvernig mál eru að þró­ast und­an­farna sól­ar­hringa að það geti þurft að útvíkka úrræðið eins og það er kynnt hér sem sér­stakt frum­varp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár