Fréttir

Kallar eftir fyr­ir­byggj­andi aðgerðum: ,,Við erum komin inn í eld­gosa­tíma­bil“

Land við Svarts­engi er að rísa mun hraðar en það gerði vik­urnar fyrir jarð­skjálft­ana föstu­dag­inn 10. nóv­em­ber. Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að ef fram heldur sem horfir gætu orðið stærri atburðir á svæð­inu en síð­ustu daga. Hann segir rým­ing­ar­á­ætl­anir góðar en kallar eftir því að ráð­ist sé í fyr­ir­byggj­andi aðgerðir á Reykja­nesi og höf­uð­borg­ar­svæð­inu ,,því að við erum komin inn í eld­gosa­tíma­bil.“
GreiningJarðhræringar við Grindavík

Heppi­legra ef það væri golf­völlur en ekki byggð í sig­dæld­inni

„Ég hefði viljað sjá að það væri golf­völlur þarna en ekki byggð,“ segir jarð­fræð­ingur um svæðið í Grinda­vík sem nú hefur sigið um rúman metra. Þóra Björg Andr­és­dóttir segir að stundum sé eins og þekktar sprungur hrein­lega gleym­ist þegar svæðum hefur verið raskað af hendi manna. Áhætta vegna jarð­hrær­inga rati því ekki inn í skipu­lags­á­ætl­anir.
Skýring

Á svig við regl­urnar: Fengu risa­samn­ing eftir rán­dýra boðs­ferð til Singapúr

Danskt fyr­ir­tæki fékk nýlega risa­samn­ing um smíði her­skipa fyrir danska flot­ann, án þess að reglum um útboð væri fylgt. Skömmu áður en samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður bauð fyr­ir­tækið nokkrum for­svars­mönnum flot­ans í rán­dýra ferð til Singapúr. Málið lyktar af klíku­skap segja þing­menn og varn­ar­mála­ráð­herr­ann krefst skýr­inga frá flot­anum.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Stjórn­völd um Bláa lónið: „Að verja slíka starf­semi getur ekki talist til fram­kvæmdar í þágu almanna­varna“

Ekki er gerð krafa í lögum um að ráð­herrar gæti að sér­stöku hæfi sínu við vinnslu og fram­lagn­ingu laga­frum­varpa. Aðilar nátengdir tveimur ráð­herrum eiga fjár­hags­legra hags­muna að gæta vegna Bláa lóns­ins, sem er innan varn­ar­garða en telst ekki til mik­il­vægra inn­viða.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Styðja stjórn­ina í að taka utan um stöðu Grind­vík­inga

Frá flokk­unum í stjórn­ar­and­stöðu á þingi ber­ast þau svör við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar að þeir hygg­ist styðja stjórn­völd í aðgerðum til að taka utan um stöðu íbúa í Grinda­vík­urbæ. Píratar telja til­efni til að taka upp frum­varp sem þing­maður flokks­ins kom fram með á síð­asta þing­vetri og felur í sér afnám sjálfs­á­byrgðar hjá þeim sem fá tjón bætt frá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands.
Greining

Everton lenti í „full­komnum stormi“ kór­ónu­veiru, Úkra­ínu­stríðs og rann­sóknar á Gylfa Sig­urðs­syni

Í gær voru tíu stig dregin af enska úrvals­deild­ar­lið­inu Everton vegna þess að það tap­aði aðeins hærri upp­hæð en það mátti tapa á þriggja ára tíma­bili. Everton telur ensku úrvals­deild­ina sýna mikla óbil­girni og að verið sé að búa til víti til varn­aðar úr félag­inu. Á meðan sé stærri félögum, sem hafi stað­fest framið mun alvar­legri brot og sæti rann­sóknum vegna mun umfangs­meiri brota, hlíft.

18 mín. lestur

MyndirJarðhræringar við Grindavík

„Allt sem lifir er komið í skjól“

Fjöl­skylda sem flúði Grinda­vík hefst nú við á ætt­ar­óð­ali við Sogið. Þau eru þar tíu saman, fjórir ætt­liðir en einnig hundar og hænur. ,,Allt sem lifir er komið í skjól,” segir Ísak Þór Ragn­ars­son. Valdís Ósk Sig­ríð­ar­dóttir, unnusta hans, segir mik­il­vægt að tek­ist hafi að bjarga mynda­albú­mum og kassa sem í voru fæð­ing­ar­skýrslur barn­anna og fyrstu fötin þeirra og skór.

Mest lesið undanfarið ár