FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Willums Þórs segir þagn­ar­skyldu ríkja á aðstoð­ar­mann­inum

Aðstoð­ar­maður Willums Þórs Þórs­sonar réði sig til einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar nú í nóv­em­ber. Ráðu­neytið segir að aðstoð­ar­mað­ur­inn, Guðrún Ása Björns­dóttir, sé bundin þagn­ar­skyldu um störf sín í ráðu­neyt­inu jafn­vel þó hún sé hætt þar.
Fréttir

Gunnar Bragi snýr aftur í þingið

Gunnar Bragi Sveins­son fyrr­ver­andi ráð­herra er kom­inn til tíma­bund­inna verk­efna fyrir þing­flokk Mið­flokks­ins og skráður sem starfs­maður þing­flokks á vef Alþingis. Sjálfur seg­ist hann vera í öðrum ráð­gjafa­störfum sam­hliða verk­efnum sínum fyrir þing­flokk­inn. Störfum hans fyrir stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um eyði­merk­ur­samn­ing­inn í Bonn lauk fyrr á þessu ári.
ViðskiptiKjarabrot í ferðaþjónustunni

Leitað til stétt­ar­fé­laga út af meintum kjara­brotum Trölla­ferða

Starfs­menn ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæks­ins Trölla­ferða hafa leitað til bæði VR og stétt­ar­fé­lags­ins Leið­sagnar, sem gætir rétt­inda leið­sögu­manna. Gagnrýni starfs­mann­anna bein­ist meðal ann­ars að því að þeir hafi ekki fengið laun sam­kvæmt kjara­samn­ingi og að þeim sé meinað að vera í stétt­ar­fé­lagi.
FréttirSamherjaskjölin

„Samherji gegndi lyk­il­hlut­verki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til for­sæt­is­ráð­herra frá Namibíu

Sléttum fjórum árum eftir að ljóstrað var upp um fram­ferði Samherja í Namibíu kallar leið­togi namibísku stjórn­ar­and­stöð­unnar eftir því að íslensk stjórn­völd taki ábyrgð, í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Hundrað millj­óna rík­is­styrkur til Samherja vekur reiði í Namibíu.

Mest lesið undanfarið ár