FréttirJarðhræringar við Grindavík

Rúmlega 200 fjár í og við Grinda­vík

Yfir­dýra­læknir á Mat­væla­stofnun segir heim­ildir fyrir því að rúm­lega 200 fjár séu í og við Grinda­vík. Vitað er til þess að fólk hafi flutt dýr sín aftur á svæðið, þvert á til­mæli Mat­væla­stofn­unar. MAST hefur verið í sam­bandi við vett­vangs­stjórn og óskað eftir því að mögu­leiki verði til að fjar­lægja dýrin eins skjótt og hægt er.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

„Kom mér á óvart hve hratt ég gat hlaupið“

Sigfúsi Öfjörð ýtu­stjóra tókst að bjarga jarð­ýtu sinni með miklum naum­indum frá hraun­flæð­inu í morgun. En eftir að gos hófst í grennd við Grinda­vík flæddi hraunið í átt að vinnu­vélum verk­taka sem unnið höfðu að gerð varn­ar­garða. Jarðýta Sigfúsar er sú stærsta sinnar teg­undar hér á landi. Þegar Sigfús fékk leyfi til þess að forða ýtunni frá hraun­inu var ein rúðan þegar sprungin vegna hit­ans. Slík var nálægðin.

Mest lesið undanfarið ár