Gervigreindin mun breyta heiminum jafnmikið og tilkoma snjallsímans

Í Tæknispá árs­ins 2024 segir Hjálmar Gíslason, fram­kvæmda­stjóri GRID, að gervi­greind sé upp­hafið að svo mik­illi bylt­ingu að fátt annað sé þess vert að kom­ast að í spá árs­ins.

Síðan 2006 hef ég gert mér að leik um ára­mót að skoða strauma og stefnur í tækni­heim­inum og spá fyrir um það sem er lík­legt til að standa upp úr á kom­andi ári. Árang­ur­inn hefur oft verið ágætur, en líka stundum alveg úti á túni. Hér skrifar til dæmis mað­ur­inn sem spáði því árið 2014 að öpp í síma og spjald­tölvum myndu senn heyra sög­unni til og virkni þeirra fær­ast í vafra!

Í fyrra taldi ég upp þrjá hluti sem ég taldi að myndu verða áber­andi árið 2023:

  • Gervi­greind

  • Sýnd­ar­veru­leika

  • Per­sónu­legri sam­fé­lags­miðla

Allt eru þetta sann­ar­lega hlutir sem vöktu athygli á árinu, Apple kynnti sýnd­ar­veru­leika­græju sem mun hafa mikil áhrif þegar hún kemur á markað á næstu mán­uðum. Notkun á sam­fé­lags­miðlum heldur áfram að þró­ast í þá átt að fólk deili efni í smærri hópum frekar en …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár