2:17
Fréttir

„Við íslenskir nem­endur neitum því að Ísland verði sam­sekt í þjóð­ar­morði“

„Stjórn­völd eru ekki að gera neitt í þessu og þau eru þau einu sem geta gert eitt­hvað.“ Hópur íslenskra nem­enda var saman kom­inn á Aust­ur­velli að mót­mæla upp úr klukkan 11 í dag. Mótmælin voru að mestu frið­sæl en lög­reglan þurfti að hafa afskipti af nokk­urum ung­mennum sem tóku upp á því að kasta eggjum í þing­húsið.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Býður fólki í einka­rekna heilsu­gæslu á Akureyri: „Þeir sem vilja halda áfram hjá mér“

Heim­il­is­læknir sem starf­aði á Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Akureyri, Valur Helgi Krist­ins­son, hefur boðið fyrr­ver­andi skjól­stæð­ingum sínum á opin­beru heils­gæsl­unni í við­skipti við einka­reknu heilsu­gæsl­una Heilsu­vernd. Engin samn­ingur um einka­rekna heilsu­gæslu­stöð liggur fyrir á Akureyri en Heilsu­vernd getur látið sjúkra­tryggða ein­stak­linga skra sig á heilsu­gæslu­stöð í Kópavogi en þjón­u­stað þá á Akureyri.
VettvangurSjávarútvegsskýrslan

„Þýðir ekk­ert enda­laust að horfa bara niður á bryggju“

Flateyri skagar út í Önund­ar­fjörð, umvafin háum fjöllum. Snjórinn í fjöll­unum hjó sár í sam­fé­lagið, á sama tíma og þorpið tókst á við ofveiði og brot­hættan sjáv­ar­út­veg sem hafði verið lífæð sam­fé­lags­ins í ára­tugi. Eftir fólks­fækkun, minnk­andi þjón­ustu og nið­ur­brot þurfi sam­fé­lagið að finna sér annan far­veg. Í dag er fram­tíðin eitt­hvað allt annað en fiskur. Og það er allt í lagi, segja íbúar, fullir bjart­sýni og með von um bjarta tíma framundan.

30 mín. lestur

Fréttir

Fjár­sterkir ein­stak­lingar og félög keyptu upp stóran hluta nýrra íbúða

Samkvæmt tölum frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun fjölg­aði íbúðum í eigu lög­að­ila og ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð um 2.300 á síð­asta ári. Á sama tíma hefur fjölgun íbúða í eigu ein­stak­linga sem aðeins eiga eina íbúð dreg­ist mikið saman und­an­farin þrjú ár. Líta þarf aftur til árs­ins 2010 til þess að sjá sam­bæri­lega þróun.
12:20
FréttirPressa

„Fólk sem að þarf ekki á þess­ari vernd að halda heldur er að leita að betri lífs­gæðum“

Guðrún Haf­steins­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, segir mark­miðið vera að fækka umsóknum um vernd á Íslandi. Guðrún var við­mæl­andi Helga Seljan í tíunda þætti af Pressu. Umfjöll­un­ar­efnið var útlend­inga­mál og afleið­ingar jarð­hrær­ing­anna í Grinda­vík. Hún segir mála­flokk­inn vera stóran og knýj­andi.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Sigríður Dögg segir lög­reglu­stjór­ann beita rit­skoðun og hefta tján­ing­ar­frelsi

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands segir það rit­skoðun og skerð­ingu á tján­ing­ar­frelsi hve tak­markað aðgengi blaða­manna er að Grinda­vík­ur­svæð­inu. Fjöl­miðlar fengu að fara inn í Grinda­vík í dag í rútu undir eft­ir­liti sér­sveit­ar­manns – en aðeins til að skoða skemmdir. Ekki mátti fara inn í íbúa­götur né mynda Grind­vík­inga. Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum, segir fyr­ir­komu­lagið ekki vera vegna skrif­legra beiðna frá Grind­vík­ingum.
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Grinda­vík í gær - degi eftir blót

Grind­vík­ingar blót­uðu þorr­ann í Kópavogi á laug­ar­dag. Á sunnu­dags­morgun ók heil hers­ing sendi­bíla inn í bæinn. Hluti bæj­ar­búa fékk að fara inn til að ná í eigur sínar. Heim­ildin skoð­aði bæinn þegar hún slóst í för með fjöl­skyld­unni á Blómst­ur­völlum 10 sem fyllti sendi­bíl og yfir­gaf heim­ili sitt í óvissu um hvort og hvenær þau sneru aftur.
Greining

Fimm ráð­herrar í hættu á að detta af þingi og Sam­fylk­ingin með fleiri þing­menn en stjórnin

Sam­fylk­ingin myndi fá fjórum þing­mönnum fleiri en allir stjórn­ar­flokk­arnir til sam­ans ef kosið yrði í dag. Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Framsókn myndu tapa helm­ingi þing­manna sinna og mæl­ast nú með minni stuðn­ing en flestar fyrri rík­is­stjórnir rétt áður en þær misstu völdin. Fimm flokka þyrfti til að mynda rík­is­stjórn, með minnsta mögu­lega meiri­hluta, ef slík ætti ekki að inni­halda Sam­fylk­ing­una.
Skýring

Álfta­dauði í gæsa­veiði­landi á borði lög­reglu – Fuglar lokk­aðir á „blóð­völl“

Þær elska korn og þegar því er dreift í tonna­vís á akra og tún eru þær mættar um leið. Hund­ruðum eða þús­undum saman. Kroppa kornið. Þar til skot­hríðin hefst. Þessar veiði­að­ferðir á gæs eru vel þekktar. En umdeildar. Fleiri fuglar, sumir frið­aðir, sækja í beit­una. Og eiga þá á hættu að lenda í skot­lín­unni.

10 mín. lestur

Neytendur

Skíða­iðkun: Byrj­enda­pakki í kringum hund­rað þús­und kall­inn

Sófa­kart­öflur geta létti­lega byrjað að skíða að mati sölu­manns sem selur skíða­búnað og fatnað. Hann mælir með því að byrja á því að leigja búnað til að bruna niður brekk­una í fyrsta skipti, sem kostar í Blá­fjöllum um sjö þús­und krónur. Flestir byrj­enda­pakkar kosta í kringum hund­rað þús­und krónur og í þeim eru skíði, skór, bind­ing og stafir, þó það sé reyndar ekki mælt með því að nota stafi til að byrja með.

Mest lesið undanfarið ár