FréttirFöst á Gaza

Konurnar þrjár reyna nú að bjarga þriggja ára lang­veikri stúlku frá Gaza

Íslensku kon­urnar þrjár sem hjálp­uðu konu og þremur sonum hennar frá Gaza í gær vinna nú að því að bjarga palest­ínskri konu og þriggja ára dóttur hennar yfir landa­mærin til Egypta­lands. Eig­in­maður kon­unnar, faðir litlu telpunnar er á Íslandi. „Þær eru í stöðugri hættu eins og allt fólkið á Gaza og litla stúlkan er lang­veik,“ segir Kristín Eiríks­dóttir, rit­höf­undur ein kvenn­anna þriggja sem vinnur að því að bjarga fólki frá Gaza.
Skýring

Einka­væð­ing elli­heim­il­anna: 3,8 millj­arðar fóru út úr Sóltúni

Árs­reikn­ingar einka­rek­inna hjúkr­un­ar­heim­ila sem eru starf­andi á Íslandi sýna hversu arð­bær slíkur rekstur, sem byggður er á samn­ingum við íslenska ríkið, getur verið. Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra vill auka aðkomu einka­að­ila að hjúkr­un­ar­heim­ilum en Alþýðu­sam­band Íslands segir sporin hræða og að einka­væð­ing komi niður á þjón­ust­unni við fólk.

11 mín. lestur

Úttekt

Móðir Marks heit­ins: „Þetta er í raun og veru léttir“

Mark Gunnar Roberts lést á Þor­láks­messu. Nokkrum dögum áður hafði hann fund­ist með­vit­und­ar­laus í fanga­klefa sínum á Hólms­heiði. Mark ólst upp við drykkju og ofbeldi föður síns og ára­tugum saman reyndi móðir hans að fá hjálp fyrir son sinn, sagði hann „hættu­legan án lyfja­gjafar“, en án árang­urs. Síðustu ár átti Mark ekki í nein hús að venda önnur en neyð­ar­skýli fyrir heim­il­is­lausa eða fang­elsi.

12 mín. lestur

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Fjöl­skylda frá Grinda­vík bregður búi í sjö­unda sinn

Róbert Paul Scala og fimm manna fjöl­skylda hans flutti nýverið úr Airbnb-íbúð í Njarðvík sem fjöl­skyldan hefur búið í um þrjár vikur. Þetta er í sjö­unda sinn sem að fjöl­skyldan neyð­ist til þess að flytja og mikil óvissa ríkir um það hvert fjöl­skyldan muni halda næst. Róbert sagð­ist engin svör hafa fengið frá Bríeti leigu­fé­lagi um hugs­an­legt hús­næði fyrir sig og fjöl­skyldu sína
Menning

Líklega sá stiga­hæsti af þeim sem vilja fara út sem myndi keppa í Svíþjóð

Nokkur óvissa hefur ríkt um það hvort sig­ur­veg­ari Söngvakeppn­innar verði sá sem segir af eða á um þátt­töku Íslands í Eurovision. Samkvæmt Stefáni Eiríks­syni útvarps­stjóra mun sá sem lendir í öðru sæti lík­leg­ast vera beð­inn um keppa vilji sig­ur­veg­ar­inn það ekki. Hann ítrekar að ákvörð­unin sé þó alltaf RÚV og ábyrgðin á henni útvarps­stjóra. Ekki hefur verið ákveðið end­an­lega hvort Ísland keppi í Eurovision.
0:51
Fréttir

Myndband sýnir lög­reglu bera tvo ung­linga í svartan sendi­ferða­bíl

Myndband sem sýnir lög­reglu hand­taka tvo drengi á ung­lings­aldri á mót­mæl­unum við Alþing­is­húsið hefur farið í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Nemendur frá Haga­skóla í Vesturbæ fjöl­menntu fyrir skömmu á Aust­ur­velli þar sem stefnu rík­is­ins gagn­vart fjöl­skyldu­sam­ein­ingu palest­ínskra flótta­manna var mót­mælt. Mótmælin voru að mestu leyti frið­sæl en lög­reglan þurfti þó að hafa afskipti af nokkrum ung­mennum sem höfðu kastað eggjum í þing­húsið
FréttirFöst á Gaza

Katrín: „Það er búið að senda nafna­lista til egypskra stjórn­valda“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að nafna­listi hafi verið sendur til egypskra stjórn­valda með nöfnum dval­ar­leyf­is­haf­anna á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar sem fastir eru á Gasa. Þetta sé þó ekki svo ein­falt að nóg sé að senda nafna­lista. Þetta sé stór aðgerð fyrir íslensku utan­rík­is­þjón­ust­una.
FréttirFöst á Gaza

Strandar á beinni aðkomu íslensks full­trúa á landa­mærum Egypta­lands

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur sent lista með nöfnum palest­ínska fólks­ins, með dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, til sendi­ráðs Egypta­lands í Osló til þess að fólkið kom­ist yfir landa­mæri Gaza og Egypta­lands. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir málið þurfi beina aðkomu íslensks full­trúa á landa­mær­unum. Enginn slíkur er á vett­vangi og óvíst að það breyt­ist.

Mest lesið undanfarið ár