FréttirJarðhræringar við Grindavík

Ríkið greiðir niður vexti og verð­bætur á lánum líf­eyr­is­sjóð­anna

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur und­ir­ritað sam­komu­lag við tólf líf­eyr­is­sjóði um hús­næð­is­lán sjóð­anna til ein­stak­linga í Grinda­vík. Samkvæmt sam­komu­lag­inu mun rík­is­sjóður greiða vexti og verð­bætur sem leggj­ast á líf­eyr­is­sjóðs­lán Grind­vík­inga frá des­em­ber 2023 til maí 2024.
Fréttir

Lagt til að ósáttir flug­far­þegar greiði Sam­göngu­stofu 5.000 króna mál­skots­gjald

Drög að nýrri reglu­gerð um rétt­indi flug­far­þega fóru nýverið í sam­ráðs­gátt. Samkvæmt drög­unum er lagt til að kvar­tendur greiði Sam­göngu­stöfu 5.000 króna gjald fyrir máls­með­ferð í ágrein­ings­málum sem skotið er til stofn­un­ar­innar. Þá kveður ný reglu­gerð á um að Sam­göngu­stofa muni fram­vegis ekki taka við erindum vegna skemmds eða glat­aðs far­ang­urs.
Greining

Heimilin greiddu 37 millj­arða í bein og óbein þjón­ustu­gjöld vegna notk­unar á greiðslu­kortum

Hreinar tekjur fyr­ir­tækja í greiðslu­miðlun voru næstum 33 millj­arðar króna árið 2022 og hækk­uðu um 37 pró­sent milli ára. Sú hækkun var einkum vegna þjón­ustu­gjalda á greiðslu­kortum. Hver debet­korta­færsla erlendis kost­aði 118 krónur og 177 krónur ef kredit­kort var notað. Í bígerð er óháð smá­greiðslu­lausn á vegum Seðla­banka Íslands sem þurrkar út stóran hluta af kostn­að­inum, ákveði heim­ilin að nota hana. Hún gæti verið í boði síðar á þessu ári.
Fréttir

„Þið eruð djöf­uls­ins fas­istar og ættuð að skamm­ast ykkar“

Drög að frum­varpi um lokað búsetu­úr­ræði hafa fengið á sig tölu­verða gagn­rýni í sam­ráðs­gátt stjórn­valda – bæði frá ein­stak­lingum og sam­tökum. Er frum­varps­til­lagan meðal ann­ars bendluð við fas­isma, fanga­búðir og aðför gegn mann­rétt­indum. Rauði kross­inn, Mann­rétt­inda­skrif­stofa, UNICEF og Barna­heill lýsa yfir áhyggjum af vistun barna í búsetu­úr­ræð­inu og segja ákvæði frum­varps­ins óljós og mats­kennd.

Mest lesið undanfarið ár