GreiningJarðhræringar við Grindavík

Stjórn­völd voru vöruð við

Minn­is­blöð sem Heim­ildin hefur fengið afhent sýna að mögu­legt hita­vatns­leysi á Suð­ur­nesjum hefur verið mikið áhyggju­efni mán­uðum saman og að stjórn­völd voru hvött til að hefja und­ir­bún­ings­vinnu til að takast á við verstu sviðs­myndir. Við­brögðin hafa verið af skornum skammti og í gær hit­uðu tug þús­undir íbúa á Suð­ur­nesjum upp hús sín með stökum raf­magns­ofnum eða hita­blás­urum.

9 mín. lestur

0:51
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Myndband: Vinnu­vélar í kappi við gló­andi hraun

Í mynd­skeiði sem ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar tók fyrr í dag má sjá verk­taka í kapp­hlaupi við tím­ann að fylla upp í skarð í varn­ar­garð­inum sem umlykur virkj­ana­svæði HS Orku og Bláa lónið. Í mynd­band­inu sést í gröfur og jarð­ýtur færa lausan jarð­veg yfir skarðið sem liggur við Norð­ur­ljósa­veg, skammt frá flæð­andi hraun­inu.
1:35
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Sjáið stofnæð­ina fuðra upp í hraun­inu

Myndband sem ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar tók í dag sýnir glöggt eyði­legg­ing­ar­mátt hraun­flæð­is­ins þegar það fór yfir heita vatns­lögn HS-Veitna. Ekkert heitt vatn er þvi á Reykja­nes­inu. Almanna­varnir lýstu fyrir skömmu yfir neyð­ar­á­standi og biðla til íbúa að tak­marka notkun sína á því litla magni af heitu vatni sem eftir er í miðl­un­ar­tönkum
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

„Erfitt sé fyrir lækna sem starfa á spít­al­anum að sætta sig við þá stöðu sem uppi er“

Runólfur Pálsson, for­stjóri Land­spít­ala-háskóla­sjúkra­húss, ræddi þá stöðu sem komin er upp á spít­al­anum vegna auk­innar einka­væð­ingar í heil­brigð­is­kerf­inu á fundi stjórnar hans. Aukin einka­væð­ing getur búið til hvata fyrir lækna að vera í hluta­starfi á Land­spít­al­anum en stjórn­endur hans hafa um ára­bil reynt að snúa þeirri þróun við.
ViðtalFöst á Gaza

„Ég biðla til stjórn­valda að sjá Palest­ínu­menn sem fólk“

Ahmed Murtaja á þriggja ára lang­veika dóttur og eig­in­konu á Gaza og þær kom­ast ekki út. Dóttir hans fær ekki þau lyf sem hún þarf og hún fær ekki lækn­is­þjón­ust­una sem hún þarf. Á meðan þær sitja fastar á Gaza búa þær í tjaldi og matur og vatn af svo skornum skammti að það stefnir lífi þeirra í hættu. Dóttir hans heitir Sham og upp­á­halds lit­ur­inn hennar er blár en Ahmed hefur ekki séð hana frá því að hún var hálfs árs.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Reykja­nes­bær lokar sund­laugum og biðlar til íbúa að draga úr raf­magns­notkun

Erfið staða er komin upp í ýmsum bæjum og byggð­ar­lögum á Reykja­nes­inu eftir að heita­vatns­lögn HS Veitna rofn­aði eftir að hraun flæddi yfir leiðsl­una. Svið­stjóri umhverfis- og fram­kvæmda­sviðs Reykja­nes­bæjar segir að búið sé að loka sund­laugum og skrúfa fyrir alla óþarfa heita­vatns­notkun. Þá sé byrjað að ræða hugs­an­lega flutn­inga á fólki frá hjúkr­un­ar­heim­ilum.
FréttirRáðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Deilan um ráðn­ingu Lúðvíks Arnar: „Á þetta hlusta bara ekki bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins“

Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir, bæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Garðabæ, segir að minni­hlut­inn í sveit­ar­fé­lag­inu sé ekki hættur að gagn­rýna ráðn­ingu Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar til bæj­ar­ins. Þóra Hjalte­sted, sem Lúðvík var ráð­inn fram yfir, seg­ist ekki ætla að tjá sig um málið.

Mest lesið undanfarið ár