Mynd: Golli

Stjórnvöld voru vöruð við

Minn­is­blöð sem Heim­ildin hefur fengið afhent sýna að mögu­legt hita­vatns­leysi á Suð­ur­nesjum hefur verið mikið áhyggju­efni mán­uðum saman og að stjórn­völd voru hvött til að hefja und­ir­bún­ings­vinnu til að takast á við verstu sviðs­myndir. Við­brögðin hafa verið af skornum skammti og í gær hit­uðu tug þús­undir íbúa á Suð­ur­nesjum upp hús sín með stökum raf­magns­ofnum eða hita­blás­urum.

Svarts­engi er lífæð Suð­ur­nesja þegar kemur að heita­vatns­fram­leiðslu. Þaðan hafa 30 þús­und íbúar á Reykja­nesi, að íbúum Grinda­víkur með­töldum, heita vatnið sitt.

Í marga mán­uði, allt frá því að Grinda­vík var rýmd 10. nóv­em­ber í fyrra, hefur verið varað við því af Orku­stofnun, HS Orku og HS Veitum að sú staða gæti raun­gerst að þessir íbúar gætu orðið heita­vatns­lausir. Það gerð­ist í gær, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og yfir stofn­lögn sem flytur heitt vatn frá Svarts­engi til Fitja í Reykja­nesbæ. Þegar það gerð­ist blasti við að ekk­ert heitt vatn yrði til staðar í Reykja­nesbæ, Suð­ur­nesjabæ, Grinda­vík og Vogum eftir nokkra klukku­tíma, þegar vatns­birgðir í miðl­un­ar­tönkum myndu klár­ast.

Klukkan 12.44 í gær sendu Almanna­varnir út smá­skila­boð á íbúa á þessu svæði þar sem þær biðl­uðu til íbúa að spara bæði heitt vatn og raf­magn. „Mik­il­vægt er að allir legg­ist …

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Hvað er tilgangurinn með því að hamra á því að hlutafélag sem fjárfestir EKKI hér á landi og fer með allan gróða út í skattaskjól, sé á einhvern óskiljanlegan veg skilgreint sem hluti af „Innviðum“ Íslenskts þjóðfélags? Það er ekki ekki frekar en laxveiðiár Radcliffs eða Ísal og Rio Tinto! Er þetta gert til þess að réttlæta fjáraustur í varnargarða fyrir HS og Bláa Lónið sem er ekki heldur „Innviður“. Eða vita menn ekkert hvað innviðir eru?
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Eg var að hlusta a siðdegis Utvarp Ruv 8 jan um kl 1700, þar kom i heimsokn maður ur Grindavik hann sat i Bæjarstjorn Grindavikur fra 2018 til 2022, Hann sagði að þetta hefði legið fyrir þa og menn vissu að það Versta gat gertst. Nu hefur það gerst. Engin Varalögn hefur verið Plönuð og ekki neitt spað i slikt. Þessi maður talaði Skyrt og let sina meiningu i ljos. Einkavæðingin er Skaðvaldurinn Hluthöfum HS Orku og Veitum hefur verið Greiddur ut Arður trekk i trekk, Ekki pælt i Neytendum eða Forvörnum
    Einkavæðingin er MEINSEMDIN, Bæjarfelög sem seldu sinn hlut Pissuðu i Skoinn sinn
    Rikið atti að koma inn og stoppa Einkavæðingu og Halda meirihluta RIKISINS.
    Nu hefur það versta skeð. Suðurnesja Buar sitja með kaldan Rass. Hlusta ma a Viðtal við þennan Skyra fyrrum Bæjarstjornarmann i Grindavik 2018 til 2022. ÞAÐ Ma heyra a Spilara RUV. Þar kom skyrt fram að EINKAVÆÐING a INNVIÐUM Þjoðarinar er GLAPRÆPUR sama er með BANKA.
    Svara
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár