FréttirJarðhræringar við Grindavík

Ríkið kaupir íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga á 61 millj­arð króna

Rík­is­stjórnin hefur komið sér saman um frum­varp sem kveður á um að rík­is­sjóður muni bjóð­ast til þess að kaupa íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga og taka yfir íbúð­ar­lán sem á þeim hvíla. Tilkynnt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að frum­varpið hafi verið sam­þykkt á rík­is­stjórnar fundi í dag og birt í sam­ráðs­gátt. Kostn­aður aðgerð­ar­innar er met­inn á 61 millj­arð króna. Sérstakt félag verður stofnað til að ann­ast fram­kvæmd­ina.
Viðskipti

Áfram­hald­andi tap­rekstur hjá Play sem stefnir á aðal­markað og hluta­fjár­út­boð

Play stefnir á aðal­markað Nasdaq á fyrri hluta þessa árs. Sömu­leiðis ætlar fyr­ir­tækið að halda annað hluta­fjár­boð með það fyrir sjónum að afla fjóra til fimm millj­arða króna til þess að styrkja láu­afjár­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Heild­ar­tap Play nam 4,9 millj­örðum í lok árs 2023 og í árs­reikn­ingi félags­ins er settur fyr­ir­vari við rekstr­ar­hæfi fyr­ir­tæk­is­ins.
ErlentÁrásir á Gaza

Net­ana­yhu boðar „alls­herj­ar­árás“ og fyr­ir­skipar „rým­ingu Rafah“

Benjamin Net­anyahu, fyr­ir­skip­aði rétt í þessu rým­ingu Rafah, þar sem alls­herj­ar­árás Ísra­els­hers sé yfir­vof­andi. 1,5 milljón manns sem leitað hafa sér skjóls á Rafah geta hins vegar ekk­ert flúið, Ísra­els­her umkringir borg­ina í norðri og landa­mærin við Egypta­land til suð­urs eru lokuð. Læknir segir stríðan straum af saur fylla göt­urnar og að mann­fall geti tvö­fald­ast eða þre­fald­ast beiti Ísraelar sömu vopnum á Rafah og þeir gera ann­ars staðar á Gaza.
28:27
FréttirPressa

Vara­þing­maður VG segir að mál dval­ar­leyf­is­haf­anna strandi á Bjarna

Bryn­hildur Björns­dóttir, sitj­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, segir þing­flokk sinn sam­stíga í að vilja sækja dval­ar­leyf­is­haf­ana sem fastir eru á Gaza. Það sé þó ekki hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra að stíga inn á vald­svið ann­arra ráð­herra. Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, segir að málið snú­ist um sið­ferð­is­lega skyldu – ekki bara laga­lega ábyrgð.
Fréttir

Heitt vatn til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins kemur úr fjórum áttum

Dagur B. Egg­erts­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, segir að gott væri ef kerfi Veitna og HS-veitna væri tengt með hring­teng­ingu og að virkjað yrði frekar í Krýsuvík. Þetta myndi tryggja heitt vatn á svæð­inu jafn­vel þótt aðflutn­ings­leiðslur færu í sundur. Ekki er úti­lokað að gossprungur gætu ein­hvern­tíma opn­ast nálægt Nesja­valla­virkjun sem þjón­ustar höf­uð­borg­ar­svæðið.
FréttirFöst á Gaza

Fjöl­skyldan frá Gaza er á leið til lands­ins

Móðir og þrír drengir hennar sem setið hafa föst á Gaza, þrátt fyrir að vera með dval­ar­leyfi á Íslandi, eru nú á leið til lands­ins. Með í för eru rit­höf­und­arnir Kristín Eiríks­dóttir og Bergþóra Snæ­björns­dóttir auk Maríu Lilju Þrast­ar­dóttur fjöl­miðla­konu. Íslensku kon­urnar þrjár hafa und­an­farna viku unnið að því að hjálpa mæðgin­unum kom­ast frá átaka­svæð­inu og til fjöl­skyldu­föð­ur­ins sem býr á Íslandi.
Greining

Hagnaður Íslands­banka stóð í stað milli ára en stefnt að því að skila um 15 millj­örðum til hlut­hafa

Tveir starfs­loka­samn­ingar við stjórn­endur sem voru látnir hætta störfum eftir að Íslands­banki við­ur­kenndi að hafa framið marg­þætt lög­brot við sölu á sjálfum sér kost­uðu bank­ann 146 millj­ónir króna í fyrra. Hann greiddi alls um 1,2 millj­arð króna í sekt vegna lög­brot­anna, sem er met hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki.
Viðtal

„Nátt­úru­verndin á enga rödd í stjórn­málum lengur“

Græn póli­tík er ekki áber­andi á Alþingi, að mati Bjargar Evu Erlends­dóttur, sem flutti sig úr stóli fram­kvæmda­stjóra Vinstri grænna til Land­verndar í haust. Í nýja starf­inu telur hún sig geta gert nátt­úru­vernd meira gagn. „Land­vernd er bless­un­ar­lega ekki í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi, þar sem hags­munir stór­fyr­ir­tækja eru ráð­andi.“

18 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár