Fimm ráðherrar í hættu á að detta af þingi og Samfylkingin með fleiri þingmenn en stjórnin

Fimm ráðherrar í hættu á að detta af þingi og Samfylkingin með fleiri þingmenn en stjórnin

Sam­fylk­ingin myndi fá fjórum þing­mönnum fleiri en allir stjórn­ar­flokk­arnir til sam­ans ef kosið yrði í dag. Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Framsókn myndu tapa helm­ingi þing­manna sinna og mæl­ast nú með minni stuðn­ing en flestar fyrri rík­is­stjórnir rétt áður en þær misstu völdin. Fimm flokka þyrfti til að mynda rík­is­stjórn, með minnsta mögu­lega meiri­hluta, ef slík ætti ekki að inni­halda Sam­fylk­ing­una.

Eftir síð­ustu kosn­ingar þá voru stjórn­ar­flokk­arnir þrír: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn þrír stærstu flokkar lands­ins. Þeir fengu 54,4 pró­sent atkvæða og sam­an­lagt 37 þing­menn kjörna. Stuttu síðar bætt­ist einn við meiri­hlut­ann þegar Birgir Þór­ar­ins­son hætti í Mið­flokknum, sem hann hafði verið kjör­inn á þing fyrir, og gekk til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Staðan var því heldur væn­leg fyrir stjórn­ar­flokk­anna þrjá þegar þeir lögðu upp í aðra sigl­ingu sína, enda deildu fimm stjórn­ar­and­stöðu­flokkar með sér sam­an­lagt ein­ungis 25 þing­mönnum. Enginn þeirra hafði náð tveggja stafa tölu í fylgi. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur mæld­ist 62,2 pró­sent í upp­hafi ann­ars kjör­tíma­bils hennar. 

Í dag, rúmum 28 mán­uðum síðar, er staðan gjör­breytt. Ef kosið yrði í dag, og nið­ur­staðan yrði í sam­ræmi við nýj­ustu könnun Gallup, þá myndu stjórn­ar­flokk­arnir þrír fá 32,1 pró­sent atkvæða og vera búnir að tapa 22,3 pró­sentu­stigum.

Vinstri græn yrðu minnsti flokk­ur­inn sem næði inn á þing með …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Öfga-hægri-fylgið hefur sagt skilið við sjálfstæðisflokkinn og gengið í björg miðflokksins. Þess vegna er sjálfstæðisflokkurinn að róa sífellt lengra og ákveðnara út á öfga-hægri miðin í von um að endurheimta flóttafólkið, eða flótta-fylgið, á ný.

    Nú lítur út fyrir að hægri-fasismi sé kominn í tísku á skerinu. Það er ógnvænlegt en þó vissulega fyrirsjáanegt.
    4
    • SIB
      Sigurður I Björnsson skrifaði
      Því miður held ég að þetta sé rétt hjá þér. Og trúlega verður útkoman sú sama og venjulega sviðin jörð og fólskt samfélag.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár