Leyniupptaka lýsir vinargreiða og hrossakaupum Bjarna og Jóns
Afhjúpun

Leyni­upp­taka lýsir vin­ar­greiða og hrossa­kaupum Bjarna og Jóns

Sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­sonar þing­manns full­yrðir í upp­tökum sem teknar voru af manni sem sagð­ist vera fjár­festir að Jón hafi sam­þykkt beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar um að þiggja sæti á lista gegn því að Jón kom­ist í aðstöðu til veita veiði­leyfi til Hvals hf. Það verði arf­leifð Jóns að tryggja Krist­jáni Lofts­syni nánum vini sínum leyfið. Það sé hins vegar eitt­hvað sem eigi að fara leynt.
Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Ljósið á koddanum bjargaði Yazan
Afhjúpun

Ljósið á kodd­anum bjarg­aði Yazan

Enn hafa ekki feng­ist skýr svör við því hvers vegna lög­regla sótti lang­veikt barn inn á sjúkra­hús á dög­unum og tek­ist er á um hvort það yfir­leitt megi. Land­spít­al­inn þver­tekur fyrir sam­vinnu við Rík­is­lög­reglu­stjóra­emb­ættið og yfir­læknir segir alrangt að rétt­læta aðgerð­irnar með vott­orði sem hann skrif­aði. Til­viljun réði þvi að brott­vísun Yazan Tamimi spurð­ist út og var að lokum aft­ur­kölluð.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gáleysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.
Ráðherrum ítrekað bent á að gjöf Haraldar stæðist ekki skoðun
AfhjúpunDýr skyldi Haraldur allur

Ráð­herrum ítrekað bent á að gjöf Haraldar stæð­ist ekki skoðun

Upp­lýs­ingar úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu styðja ekki þá full­yrð­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar að ráðu­neytið teldi rík­is­lög­reglu­stjóra hafa haft heim­ild til „útfærslu samn­inga“ sem sagðir eru gjafagjörn­ingar. Í ráðu­neyt­inu voru þvert á móti veru­legar efa­semdir um að sam­komu­lagið stæð­ist. Ráðu­neyt­is­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og lög­reglu­stjórar töldu rétt að skoða hvort Haraldur hefði brotið lög.
Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
AfhjúpunDýr skyldi Haraldur allur

Örlæti Haraldar kostar rík­is­sjóð yfir hálfan millj­arð

Rík­is­sjóður situr uppi með yfir 500 millj­óna króna reikn­ing eftir að Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi útval­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­réttar sem kallar verk Haraldar „örlæt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Haraldar skrif­aði undir opin­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síðar. Samn­ing­arnir standa samt því und­ir­menn­irnir vissu ekki betur en að Haraldur mætti gera þá. Ummæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
PMSG: „Hormón eymdar“ frá upphafi til enda
AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upp­hafi til enda

Lyf úr með­göngu­horm­óni fyl­fullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæski­legu auka­verk­anir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veikl­aðir, fæð­ast gyltum á þýskum svína­búum. Blóð­takan hefur frá því í byrjun nóv­em­ber, eftir áminn­ingu frá ESA, verið felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og sviss­nesku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem rann­sakað hafa iðn­að­inn í fjögur ár.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
„Gjordist Thorgerður heldur óð“  –  Sumar í utanríkisþjónustu Samherja
Afhjúpun

„Gjordist Thor­gerður heldur óð“ – Sumar í utan­rík­is­þjón­ustu Samherja

Íslensk stjórn­völd beittu fær­eysk ráðu­neyti miklum þrýst­ingi þegar breyta átti lögum um erlent eign­ar­hald í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi, sem snertu hags­muni eins íslensks fyr­ir­tækis. Þetta sýna gögn sem Heim­ildin fékk afhent úr tveimur fær­eyskum ráðu­neytum og íslensk stjórn­völd vildu ekki að birt­ust almenn­ingi. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sem fyrir tveimur árum þvertók fyrir að hafa rætt málið við fær­eysk stjórn­völd, gerði það hins vegar og flutti að sögn reiði­lestur yfir fær­eyskum starfs­bróður sínum.
Kalkþörungafélagið staðið að skattaundanskotum
Afhjúpun

Kalk­þör­unga­fé­lagið staðið að skattaund­anskotum

Eigendur Íslenska kalk­þör­unga­fé­lags­ins á Bíldudal hafa árum saman keypt afurðir verk­smiðj­unnar á und­ir­verði og flutt hagnað úr landi. Skatt­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu eftir að hafa rann­sakað skatt­skil félags­ins á fimm ára tíma­bili. Á 15 ára starfs­tíma verk­smiðj­unnar hefur hún aldrei greitt tekju­skatt. „Við erum ekki skattsvik­arar,“ segir for­stjóri félags­ins.
„Hann var ekki að kaupa aðgengi að mér þegar hann lánaði mér pening“
Afhjúpun

„Hann var ekki að kaupa aðgengi að mér þegar hann lán­aði mér pen­ing“

Katrín Lóa Kristrún­ar­dóttir þótt­ist heppin þegar henni var tjáð af vinnu­veit­anda sínum, Helga Vil­hjálms­syni í Góu, að hann gæti lánað henni fyrir útborgun í íbúð. Hún hefði þó aldrei þegið slíkt lán ef hún hefði vitað hvað það hefði í för með sér en Katrín Lóa lýsir því að eftir lán­veit­ing­una hafi hún þurft að sitja undir kyn­ferð­is­legri áreitni Helga svo mán­uðum skipti. Helgi biður Katrínu Lóu afsök­unar á fram­ferði sínu.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið undanfarið ár