„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“
ViðtalVindorka á Íslandi

„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“

Í sjö ár hefur Steinunn M. Sig­ur­björns­dóttir háð margar orr­ustur í bar­áttu sinni gegn vind­myllum sem til stendur að reisa allt umhverfis sveit­ina hennar. Hún hefur tapað þeim öllum. „Ég er ekki búin að ákveða hvort ég hlekki mig við jarð­ýt­urnar, það fer eftir því hvað ég verð orðin gömul,” segir hún glettn­is­lega. En þó með votti af alvöru. Hún ætli að minnsta kosti ekki að sitja hjá og „horfa á þetta ger­ast”.
Lautarferð á vígvellinum
Viðtal

Laut­ar­ferð á víg­vell­inum

Bragi Ólafsson hefur sent frá sér bók­ina Inn­an­ríkið – Alexíus sem má kannski kalla end­ur­minn­ingar-ess­eyjur. Í verk­inu er þó þráður, í anda spennu­sögu, nefni­lega leit Braga að dánum manni! Manni sem vitj­aði föður hans. Bókin fangar hug­ar­heim Braga, iðandi af bókum og plötum og atvikum – eins og honum er einum lagið að segja frá því. Enda gæti verið endað í níu bindum. En hvað hefur Bragi um það að segja – og bara allt!
Tími jaðranna er ekki núna
ViðtalFormannaviðtöl

Tími jaðr­anna er ekki núna

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er sá stjórn­mála­maður sem miðað við fylg­is­mæl­ingar og legu flokks­ins á hinum póli­tíska ás gæti helst lent í lyk­il­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að loknum þing­kosn­ingum. Þor­gerður boðar fækkun ráðu­neyta, frek­ari sölu á Íslands­banka og sterkara geð­heil­brigð­is­kerfi. Hún vill koma að rík­is­stjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar reyni að koma sér saman um stjórn lands­ins.
Mataræði er vanræktur þáttur í svefnvanda
Viðtal

Mataræði er van­ræktur þáttur í svefn­vanda

Góður svefn er seint ofmet­inn en vanda­mál tengd svefni eru algeng á Vest­ur­löndum. Talið er að um 30 pró­sent Íslend­inga sofi of lítið og fái ekki end­ur­nær­andi svefn. Ónógur svefn hefur áhrif á dag­legt líf fólks og lífs­gæði. Svefn er flókið fyr­ir­bæri og margt sem getur haft áhrif á gæði hans, má þar nefna lík­am­lega og and­lega sjúk­dóma, breyt­inga­skeið, álag, kvíða, skort á hreyf­ingu og áhrif sam­fé­lags­miðla á svefn­gæði. Áhrif nær­ingar og neyslu ákveð­inna fæðu­teg­unda á svefn hafa hins vegar ekki vakið athygli þar til nýlega.
Glamúrvæðing áfengis í íslensku raunveruleikasjónvarpi: „Freyðivínið alltaf við höndina“
Viðtal

Glam­úr­væð­ing áfengis í íslensku raun­veru­leika­sjón­varpi: „Freyði­vínið alltaf við hönd­ina“

Guðbjörg Hildur Kolbeins byrj­aði að horfa á raun­veru­leika­þætt­ina Æði og LXS eins og hverja aðra afþr­ey­ingu en blöskr­aði áfeng­is­neysla í þátt­unum. Hún setti upp gler­augu fjöl­miðla­fræð­ings­ins og úr varð rann­sókn sem sýnir að þætt­irnir geta hugs­an­lega haft skað­leg áhrif á við­horf ung­menna til áfeng­is­neyslu enda neyslan sett í sam­hengi við hið ljúfa líf og lúxus hjá ungu og fal­legu fólki.
Allir verða sósíalistar fyrir kosningar
ViðtalFormannaviðtöl

Allir verða sós­í­alistar fyrir kosn­ingar

Hug­mynda­fræði sós­í­al­ism­ans hefur ekki beðið skip­brot heldur virð­ast allir flokkar verða sós­íal­ísk­ari fyrir kosn­ingar. Þetta segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drif­kraftur hennar og boðar rétt­lát­ara skatt­kerfi og stefnu­breyt­ingu í hús­næð­is­upp­bygg­ingu. Þar eigi hið opin­bera að stíga inn og fjár­magna upp­bygg­ingu á félags­legum grunni.

Mest lesið undanfarið ár