Ólíkar kynslóðir mætast í Müllersæfingum

Á morgni hverjum stundar fjöl­mennur hópur fólks Müll­ersæf­ingar á bökkum Vest­ur­bæj­ar­laugar. For­sprakki hóps­ins er him­in­lif­andi með áhuga ungs fólks sem farið er að taka þátt í auknum mæli. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar slóst í hóp­inn.

Ólíkar kynslóðir mætast í Müllersæfingum
Leikfimi Dóri leiðir hóp fólks í gegnum æfing­ar­útínu sína. Mynd: Golli

Klukkan er sjö um morgun og fólk tín­ist inn í and­dyri Vest­ur­bæj­ar­laug­ar­innar enn með stírur í aug­unum. Eftir hálf­tíma mun hópur fólks taka þátt í Müll­ersæf­ingum á sund­laug­ar­bakk­anum. Þetta ger­ist á sama tíma alla virka daga en að baki því er fjög­urra ára­tuga hefð.

Vinir Dóra, rót­gró­inn hópur sem iðkar þessa leik­fimi sam­visku­sam­lega, sam­anstendur mest­megnis af fólki sem komið er yfir miðjan aldur. Þó hefur tals­vert af yngra fólki farið að láta á sér bera upp á síðkastið. Aðfar­irnar eru leiddar áfram af mik­illi inn­lifun af for­ystu­mann­inum Dóra.

Lækkuðu meðalaldurinn

Í mót­tök­unni skýrir Iðunn Gígja Krist­jáns­dóttir, sem er 24 ára, fyrir blaða­manni að hún hafi byrjað að mæta í sund á morgn­ana vegna þess að kær­asti hennar og vinur hafi farið að stunda það. En upp­haf­lega mættu þau alltaf í Vest­ur­bæj­ar­laug klukkan átta. „Þetta fór að vinda upp á sig og fleiri fóru að mæta. Á ein­hverjum …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár