ViðtalLandflótti

Fluttur úr landi: Fær meira fyrir elli­líf­eyr­inn í Berlín

Kristján E. Guð­munds­son tók upp á því á gam­als­aldri að rífa sig upp með rótum og flytj­ast til Berlínar. Hann hefur komið sér vel fyrir í höf­uð­borg Þýska­lands og sækir meðal ann­ars leir­list­ar­nám­skeið. Þá drekkur hann í sig menn­ingu borg­ar­innar og nýtur lista­lífs­ins. Ekki skemmir fyrir að hægt er að fá mun meira fyrir elli­líf­eyr­inn í þess­ari fjöl­menn­ing­ar­legu borg þar sem verð­lagið er allt að helm­ingi lægra en á Íslandi.

8 mín. lestur

ViðtalForsetakosningar 2016

Forseti á að berj­ast fyrir umhverf­inu, lýð­ræði og mann­rétt­indum

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, nýtur lang­mestra vin­sælda í könnun Stund­ar­innar sem mögu­legur for­seti. Katrín talar um for­seta­emb­ættið, sjálfa sig og mis­tök síð­ustu rík­is­stjórnar. Hún býr í fjöl­býl­is­húsi, er flug­hrædd og tók á sig meiri ábyrgð um tví­tugt þegar faðir hennar féll frá.

16 mín. lestur

Viðtal

„Hlut­irnir fara nákvæm­lega eins og þeir eiga að fara“

Mánu­dags­morg­un­inn eftir að loka­þáttur Ófærðar var sýndur í sjón­varp­inu gekk Lilja Nótt Þór­ar­ins­dóttir leik­kona út úr hús­inu sínu og fannst sem allir væru að horfa á sig. Kvöldið áður komst þjóðin loks­ins að hinu sanna um það sem gerð­ist raun­veru­lega í afskekkta svefn­þorp­inu úti á landi og var aðild Maríu, sem leikin var af Lilju, lík­lega það sem kom helst á óvart. Lilja stapp­aði í sig stál­inu, sagði sjálfri sér að skrúfa sjálf­hverf­una aðeins niður, eng­inn væri að pæla í þessu og gekk af stað til vinnu. Í þann mund sem hún var að finna gleð­ina á ný var bíl­rúða skrúfuð niður og kall­aði á eftir henni: „Morðingi!“

12 mín. lestur

Viðtal

Stórt skref að tala um árás en ekki slys

„Ertu tryggð?“ var eitt það fyrsta sem banda­ríski bráðalið­inn spurði Silju Báru Ómars­dóttur þar sem hún lá alblóðug á heim­ili sínu í Los Angeles eftir alvar­lega árás. Örlög bráðalið­ans, sem valdi sér það starf að bjarga manns­lífum, eru þau að hann verður að spyrja þess­arar spurn­ingar áður en ákveðið er hvert skuli fara með sjúk­ling. Banda­rískt heil­brigð­is­kerfi gerir það að verkum að hann fer ekki með fólk á besta mögu­lega stað, heldur á þann stað sem fjár­ráð sjúk­lings leyfa. Silju Báru tókst með naum­indum að hvísla nafn háskóla síns, USC, og bráðalið­inn tók því sem stað­fest­ingu á því að hún væri með trygg­ingar frá skól­anum. Sem betur fer.

18 mín. lestur

Viðtal

„Ég þoli ekki órétt­læti“

Margir kann­ast vafa­lítið við nafn Hermanns Ragn­ars­sonar, vel­gjörð­ar­manns albönsku fjöl­skyld­unnar sem var vísað úr landi en fékk síðan rík­is­borg­ara­rétt. Mörgum brá í brún þegar fréttir bár­ust af því að tveimur lang­veikum börnum hefði verið vísað úr landi ásamt fjöl­skyldum og aftur til heima­lands­ins þar sem þau höfðu ekki aðgengi að við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu. Hermann, vinnu­veit­andi ann­arrar fjöl­skyld­unnar, tók málið í sínar hendur, barð­ist fyrir rík­is­borg­ara­rétti þeirra og stóð fyrir söfnun sem fjár­magn­aði meðal ann­ars flugið aftur heim til Íslands. Stundin varði degi með Hermanni Ragn­ars­syni og fékk að kynn­ast mann­inum á bak við góð­verkið.

12 mín. lestur

Viðtal

Hélt hún mætti ekki fæða heima

Á árum áður fæddu þús­undir kvenna á fæð­ing­ar­heim­il­inu við Eiríks­götu, og var gríð­ar­leg ánægja með þá þjón­ustu sem þar var veitt. Eftir að heim­il­inu var lokað af rík­inu, og engin sam­bæri­leg þjón­usta kom í stað­inn, hefur orðið hæg aukn­ing á fjölda þeirra kvenna sem kæra sig ekki um að eiga sín börn í spít­alaum­hverfi, og sækja því frekar í að eiga heima hjá sér. Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir hefur átt tvö börn inni á sínu eigin heim­ili.
Viðtal

Ég beiti mann­inn minn ofbeldi

„Ég veit að það sem ég geri er rangt, ósann­gjarnt og meið­andi. Ég veit að ég er að gera öðrum það sem ég þoldi ekki að mér væri gert. En mér finnst ég ekki geta hamið mig,“ skrifar Sigga, íslensk kona á þrí­tugs­aldri sem hefur vakið athygli fyrir að skrifa undir dul­nefni um bata­ferli sitt sem ger­andi and­legs ofbeldis. Sál­fræð­ingur telur algeng­ara að konur beiti and­legu ofbeldi í ást­ar­sam­böndum, en fáir tali um það vegna skammar og ótta við við­brögð ann­arra. Þá sé ofbeldi sem karlar beita maka sinn yfir­leitt mun áþreif­an­legra og sýni­legra. Karlar geri sér ekki alltaf grein fyrir and­lega ofbeld­inu.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár