Hélt hún mætti ekki fæða heima

Á árum áður fæddu þús­undir kvenna á fæð­ing­ar­heim­il­inu við Eiríks­götu, og var gríð­ar­leg ánægja með þá þjón­ustu sem þar var veitt. Eftir að heim­il­inu var lokað af rík­inu, og engin sam­bæri­leg þjón­usta kom í stað­inn, hefur orðið hæg aukn­ing á fjölda þeirra kvenna sem kæra sig ekki um að eiga sín börn í spít­alaum­hverfi, og sækja því frekar í að eiga heima hjá sér. Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir hefur átt tvö börn inni á sínu eigin heim­ili.

Hólm­fríður: „Árið 2008, þegar ég varð ólétt af stelp­unni minni, hugs­aði ég fyrst að ég færi bara þessa venju­legu leið, að fæða á spít­ala. Við bjuggum þá í Reykja­vík. Við flytjum svo norður á Akureyri, og það er í raun­inni ekki fyrr en ég er komin 34 vikur á leið að ég tek þessa ákvörðun. 

Við fórum á for­eldra­nám­skeið á vegum heilsu­gæsl­unnar. Mál­fríður Stefanía, ljós­móð­irin sem var með það nám­skeið, er heima­fæð­ing­ar­ljós­móðir og kynnti meðal ann­ars heima­fæð­ingar á þessu nám­skeiði. Það hitti á ein­hvern streng í mér. Ég hafði alltaf staðið í þeirri trú að ég mætti ekki eiga fyrsta barnið mitt heima, það er ein­hver mýta sem er mjög lang­líf. Margir hvá einmitt, þegar ég segi að ég hafi átt mitt fyrsta barn heima, og telja að það sé bannað. Þannig að ég var búin að afskrifa þessa hug­mynd, eig­in­lega áður en ég fékk hana. 

En eftir þetta nám­skeið gerð­ist eitt­hvað innra með mér. Ég hef alltaf synt á móti straumnum. Það býr lít­ill aktí­visti innan í mér og ég hef reynt að finna honum far­veg. Svo smám saman fann ég að þetta var eitt­hvað sem mig lang­aði til að gera. Ég var heil­brigð, og barnið líka.“ 

Tengdi við kött

„Þegar ég var lítil bjuggu stelpur í göt­unni minni sem áttu kött, og ein­hvern 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár